Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Ekki þessi leiðindi - Bogomil Font og Milljónamæringarnir
    Í mars 1993 var tekin upp á BALLI í Hlégarði í Mosfellsbæ fyrsta og eina BALL-plata íslenskrar tónlistarsögu. Aldeilis stórskemmtileg plata sem heitir Ekki þessi leiðindi og er með Bogomil Font og Milljónamæringunum. Fyrsta plata Millanna og eina platan þeirra þar sem Bogomil Font er söngvari. Platan er 26 ára um þessar mundir og af því tilefni og vegna þess að það eru páskar fékk ég þá Steingrím Guðmundsson trommara og söngvarann Bogomil (Sigtrygg Baldursson) til að heimsækja Rokkland og við ætlum í Rokklandi á páskadag að hlusta saman á alla plötuna. Ekki þessi leiðindi!
    1 hr 50 min
  • Lög af hljómplötum og allskonar
    Það er gamall og góður siður að byrja útvarpsþætti á orðunum; það verður víða komið við í þessum þætti og stundum er þetta bara alveg satt, eins og t.d. í Rokklandi dagsins. Neil Young kemur aðeins við sögu, sem og Mick Jagger, The Proclaimers og David Bowie. Ólafur Björnsson framkvæmdastjóri Hammond hátíðarinnar sem fer fram á Djúpavogi dagana 25. - 28. apríl verður á línunni og við heyrum upptökur frá Hammondhátíðinni með Valdimar og Mugison. Heimspekingurinn Otto Tynes sem var að senda frá sér plötu undir nafninu Wasabi kemur í heimsókn, en öll 9 lög plötunnar eru án viðlags. 8 eru eftir Ottó sjálfan en 9unda lagið er úr smiðju The Smiths. Við heyrum líka frá heimsókn Langa Sela og Skugganna í stúdíó 12 síðasta föstudag, en sveitin sendi í gær (á alþjóðlega plötubúðadaginn) frá sér fjögurra laga vinyl sem heitir Bensínið er búið.
    1 hr 50 min
  • Jenny Lewis, Proclaimers og Músíktilraunir 2019
    Músíktilraunir eru fyrirferðarmiklar í Rokklandi vikunnar. Við heyrum í hljómsveitunum sem lentu á verðlaunapalli, en þær eru: Hljómsveit fólksins - Karma Brigade 3. sæti - Ásta 2. sæti - Konfekt 1. sæti - Blóðmör Við heyrum upptökur frá þessum hljómsveitum frá úrslitakvöldi Músíktilrauna og þau Árni Matthíasson, Arnar Eggert Thoroddsen og Heiða Eiríksdóttir úr dómnefnd Músíktilrauna tala um sveitirnar. Bandaríska tónlistarkonan Jenny Lewis kemur við sögu og við heyrum nokkur lög af hennar nýjustu plötu sem heitir On the line og er alveg stórfín plata. Hulda geirsdóttir náði í annan Reid bróðirinn skoska úr The Proclaimers í vikunni í síma og við heyrum hvað þeim fór á milli, en Proclaimers eru með tónleika í Eldborg í Hörpu 15. apríl nk. Við heyrum svo í íslensku hljómsveitinni Bagdad Brothers í std. 12 síðasta föstudag.
    1 hr 50 min
  • Mannakorn; Í gegnum tíðina
    Mannakornin Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson hlusta með umsjónarmanni á plötuna Í gegnum tíðina sem kom út 1977 og segja sögurnar bakvið lögin. Þeir Pálmi og Maggi segja sögurnar á bakvið perlurnar sem plata hefur að geyma, lög eins og Garún, Sölvi Helgason, Reyndu aftur, Gamli góðir vinur g Göngum yfir brúna. Í gegnum tíðina er önnur plata Mannakorna, sú fyrsta sem heitir einfaldlega Mannakorn, kom út 1975. Mannakorn er ennþá starfandi og það eru tvennir tónleikar framundan í Háskólabíó, síðasta vetrardag og sumardaginn fyrsta.
    1 hr 50 min
  • GDRN og trommari Wrecking Crew
    Tónlistarkonan GDRN kemur í heimsókn í Rokkland vikunnar og við minnumst trommuleikarans Hal Blaine sem lést á dögunum, 90 ára að aldri. GDRN sem heitir Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og er úr Mosfesllsbænum fór heim með fern verðlaun af Íslensku tónlistarverðlaunuum á dögunum. Þar á meðal fyrir Poppplötu ársins, en hún sendi frá sér fyrstu plötuna sína; Hvað ef, í fyrra. Og hún var líka valin söngkona ársins. Við heyrum slatta af nýrri músík með fólki eins og Arcade Fire, Hozier, Mavis Staples, JJ Cale, Jade Bird, Mac Demarco, Lambchop, Wintersleep, The Head and the heart, Robert Forster ofl. Og svo minnumst við trommuleikarans Hal Blaine sem lést núna á dögunum 90 ára að aldri, en hann spilaði meira en 5000 lög inn á plötur og þar af voru 40 sem náðu toppsæti Bandaríska vinsældalistans og um það bil 150 lög náðu inn á topp 10. Frá 1966 - 1971 trommaði hann í öllum lögunum sem voru valin lög ársins (record of the year) á Grammy verðlaununum.
    1 hr 50 min
  • Bubbi og Frelsi til sölu
    Í Rokklandi dagsins hlusta Bubbi og umsjónarmaður saman á plötuna Frelsi til sölu sem Bubbi sendi frá sér árið 1986. Árið 1986 var Bubbi búinn að vera að gefa út plötur í 6 ár og plöturnar orðnar 15 talsins á þeim tíma. Frelsi til sölu er sjöunda sólóplatan hans og er að margra mati ein af hans allra bestu plötum. Platan er að mestu tekin upp í Svíþjóð og upptökustjóri var svíinn Christian Falk sem var liðsmaður hljómsveitarinnar Imperiet. Frelsi til sölu er ein pólitískasta plata Bubba og jafnvel sú pólitískasta. Það skemmtilega við hana er að hún talar alveg jafn mikið til samtímans í dag og hún gerði fyrir 33 árum. Bubbi fjallar á plötunni um spillta pólitíkusa, hvalveiðar, forseta Íslands, sundrungu Evrópu og þjóðernis populisma, um stríðsbrölt, flóttamenn, útlendingahatur, aðgerðaleysi og afstöðuleysi almennings og frelsi til sölu. Bubbi segir sögurnar á bakvið lögin og frá því sem var að gerast í lífi sínu þegar platan var gerð.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners