Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Ellen Kristjáns
    Ellen Kristjánsdóttir tónlistarmaður og söngkona er gestur Rokklands á sunnudaginn. Ellen var kornung þegar hún byrjaði að syngja með hljómsveitum á borð við LJósin í bænum og Mannakorn. Ellen varð sextug á árinu og fagnar því með afmælis og ferilstónleikum í Háskólabíó 12. október nk. Ellen segir frá hinu og þessu úr lífi sínu í þættinum. Hún talar um það hvernig hún byrjaði á syngja, um ást sína á Bítlunum, hvenrig það gerðist að fjölskyldan flutti til kaliforníu áður en hún fæddist. Hún talar líka um það hvernig hún kynntist manni sínum, Eyþóri Gunnarssyni og margt fleira, auk þess sem fjölmörg þeirra laga sem þjðóðin þekkir og Ellen syngur heyrast í þættinum.
    1 hr 48 min
  • Lloyd Cole í 35 ár
    Ásgeir Eyþórsson leysir Óla Palla af í þætti dagsins. Ásgeir fer yfir feril breska tónlistarmannsins Lloyd Cole sem á dögunum gaf út sína elleftu sólóplötu.
    1 hr 52 min
  • Listin að lifa í 30 ár...
    Núna fyrir skemmstu sleppu hinir einu sönnu Stuðmenn öllu sínu efni, allri sinni músík á Spotify og aðrar streymisveitur. Og af því tilefni fannst Rokklandi tilvalið að biðja Stuðmenn um að heimsækja sig og hlusta á eina gamla og góða Stuðmannaplötu frá upphafi til enda. Stuðmenn svöruðu kallinu og þeir Jakob Frímann og Þórður Árnason sitja með umsjónarmanni og hlusta á plötuna Listin að lifa sem kom út árið 1989 frá upphafi til enda. Það er ýmslegt rætt en helstu tíðindi þáttarins eru þau að gítarleikarinn Þórður Árnason er kominn með "annan fótinn" amk. í Stuðmenn á ný eftir langa fjarveru.
    1 hr 50 min
  • Definitely Maybe 25 ára
    Fyrsta plata hljómsveitarinnar Oasis, Definitley Maybe kom út í ágúst árið 1994. Við fögnum því í Roklkandi vikunnar og rennum yfir þessa merku plötu.
    1 hr 50 min
  • Nick Cave og Cate Le Bon
    Rokkland í dag er tvískipt. Í fyrri hlutanum fjallar umsjónarmaður um spjalltónleika Nick Cave sem voru í Eldborg í Hörpu í gær, og spilar nokkur lög sem hann tók í tónleikunum, meðal annars upptökur úr safni Rásar 2 með Cave frá Broadway í Reykjavík í desember 2002. Í seinni hlutanum er welska tónlistarkonan Cate Le Bon á línunni. Umsjónarmaður talaði við hana í síma í vikunni sem leið. Hún er með tónleika í Hljómahöll í Reykjanesbæ 9. september nk.
    1 hr 55 min
  • Tónaflóð 2019 - brot af því besta
    Menningarnótt fór fram í gær í góðu veðri með tilherandi viðbyrðum um alla borg, Reykjavíkurmaraþoni og allskonar um alla borg allan daginn og fram á kvöld og gestir Menningarnætur 100.000 eða þar um bil segir lögreglan. Eins og venulega undanfarin rúm 15 ár var Tónaflóð Rásar 2 einn af hápunktum Menningarnætur, tónleikar Rásar 2 á Arnarhóli. Og í Rokklandi í dag ætlum við að hlusta á brot af því best frá Tónaflóði 2019; Auður, Vök, Valdimar, Hjaltalín og Stjórnin.
    1 hr 50 min
  • Sálin Hans Jóns Míns
    Sálin Hans Jóns Míns, ein allra lífseigasta og vinsælasta hljómsveit Íslenskrar tónlistarsögu kveður aðdáendur sína um næstu helgi með þrennum tónleikum í Eldborg í Hörpu.
    Það verða tvennir tónleikar á laudagradkvöld, klukkan 20 og 22.30. og aukatónleikar föstudaginn 19. október klukkan 19.
    Í þessum þætti rifjum við upp viðtal við forystusauði Sálarinnar, þá Gumma og Stebba frá því fyrir áratug þegar sveitin fagnaði 20 ára afmæli sínu með útgáfu mikils Sálar-safns sem Sena gaf þá út undir yfirskriftinni; Hvar er Daumurinn. Það voru í það heila þrjár glæsilegar afurðir sem báru allar þetta nafn; Hvar er Draumurinn. Stærstu viðhafnarútgáfunni og þreföldu hljóðdiskaútgáfunni fylgdi 92 blaðsíðna bók, fagurlega skreytt myndum og fróðleik um sögu sveitarinnar frá upphafi til þess tíma, skrifað af Stefáni Hilmarssyni.
    Sálin er merkileg hljómsveit, og bara það eitt að hafa verið starfandi í 30 ár er stórmerkilegt. Og þessi hljómsveit hefur afrekað svo margt, hún er búin af mikilli eljusemi og metnaði að senda frá sér helling af plötum auk þess að úti um allt fyrir fullu húsi áratugum saman.
    Og plötur Sálarinnar eru alls ekki ekki allar heðfbundnar smella-plötur, Sálin gerði plötu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hélt tónleika og gerði plötu með Gospelkór Reykjavíkur og samdi söngleik sem sýndur var í Borgarleikhúsinu fyrir fullu húsi mánuðum saman, svo eitthvað sé nefnt.En nú er komið að kveðjustund og af því tilefni tökum við ofan fyrir Sálinni og rifjum upp viðtal sem umsjónarmaður átti við þá Gumma og Stebba hérna í Rokklandi fyrir áratug í sitthvoru lagi.
    Þeir félagar segja frá áhrifvöldum sínum, frá samstarfinu sem stundum hefur verið gott en stundum ekki og margt fleira.
    52 min
  • Himnasending frá Ný Dönsk
    Þeir Björn Jörundur og Daníel ágúst eru gestir Rokklands og ætla að hlusta á plötuna Himnasendingu með umsjónarmanni.
    Himnasending er fimmta plata sveitarinnar en áður höfðu komið út:
    · Ekki er á allt kosið (1989)
    · Regnbogaland (1990)
    · Kirsuber (1991)
    · Deluxe (1991)
    Hljómsveitin sló í gegn strax með fyrstu plötunni en vegur hennar óx jafnt og þétt með hverri plötu. Þegar komið var að gerð Himnasendingar var ákveðið að fara til Englands og taka hana upp þar og reyna þar fyrir sér í leiðinni, þetta voru ungir menn með stóra drauma.
    Þeir Björn og Daníel voru rétt rúmlega tvítugir þegar þetta var og búnir að gefa út fjórar stórar plötur og spila um allt land síðan þeir voru 16-17 ára gamlir.
    Um næstu helgi ætlar Nýdönsk að flytja Himnasendingu, og plötuna sem kom út á eftir henni, Hunang (1993), í heild sinni á tónleikum í Eldborg í Hörpu.
    1 hr 50 min
  • Fontains D.C. - The Good the ba dand the Queen ofl.
    Það er víða komið við í Rokklandi vikunnar. Við kynnumst skemmtilegum ungum rokkstrákum frá Dublin sem kalla sig Fontains D.C. Við heyrum líka lög af plötunni sem Súpergrúppan hans Damns Albarn sendi frá sér í fyrra; The Good the Band and the Queen. Platan sem er stórskemmtileg heitir Merrie Land og er hugsuð sem einskonar kveðjukoss til Evrópusambandsins frá Damon og félögum. Rokkland býður líka upp á nýja músík frá OMAM, Snow Patrol, Skunk Anansie, Hjaltalín, Aldous Harding, Ed Sheeran, Sam Fender, The Head and the Heart, White Reaper, Beyoncé ofl.
    1 hr 50 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners