Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Konur-karlar-hvítir-svartar-svona-hinsegin..
    Janelle Monae, James Bay og Arctic Monkeys eru í aðalhlutverki í Rokklandi dagsins. Allt þetta fólk er búið að senda frá sér fínar plötur nýlega og við heyrum lög af þeim. Janelle Monae er 32 ára gömul kona frá Kansas City en býr í dag í Atlanta í Georgíu. Hennar nýja plata heitir Dirty computer og er þriðja platan hennar. Hann er líka 32 ára gamall hann Alex Turner söngvari og frystusauður hljómsveitarinnar Arctic Monkeys frá Sheffield á Englandi. Hann sjálfur býr í Los Angeles og þar varð nýjasta plata Arctic Monkeys til að mestu - heima hjá honum. Hún heitir Tranquility base Hotel & Casino og er sjötta plata sveitarinnar sem hefur verið starfandi síðan 2002 þegar strákarnir sem hana skpa voru 15-16 ára gamlir. James Bay er 27 ára gamall og var að senda frá sér plötu númer tvö. Fyrsta platan hans heitir Caos and the Calm (2015) og hún vakti mikla athygli, seldist vel og var mikið spiluð í útvarpi um allan heim. Hún fór á toppinn á Folk-lista Billboard, náði 15. Sæti stóra vinsældalistans og fyrsta sæti á Breska aðal-listanum, sem og þeim sænska og Írska t.d. Platan hlaut gagnrýnendaverðlaun Bresku tónlistarverðlaunanna 2015 og árið eftir var hann valinn besti breski listamaðurinn á Bresku tónlistarverðlaununum. Hann hlaut líka þrjár tilneningar til Grammy verðlauna 2016; Nýliði ársins, Rokkplata ársins og rokklag ársins. Og núna var svo að koma ný plata með James Bay. Hún heitir Electric Light.
    1 hr 55 min
  • Útlendingur í meira en 40 ár
    Mick Jones gítarleikari og stofnandi hljómsveitarinnar Foreigner er á línunni í Rokklandi í dag. Hljómsveitin Foreigner spilar á Íslandi í fyrsta sinn föstudaginn eftir viku, (18. maí) í Laugardalshöll. Foreigner er hljómsveit sem var vinsælust um 1985 þegar lagið þeirra I wan´t to know what love is gerði allt brjálað, en í leiðinni markaði það á vissan hátt endalok hljómsveitarinnar. Foreigner var og er rokkhljómsveit en "power- ballaðan" I want to know what love is sló annan og nýjan tón og myndaði gjá milli forystysauða hljómsveitarinnar, söngvarans Lou Gramm og gítarleikarans og stofnandans Mick Jones. Lagið ruglaði líka þá sem komu að sjá hljómsveitina á tónleikum í ríminu en margir komu eingöngu til að heyra þetta lag og önnur svipuð en skildu ekkert í öllu þessu rokki og hávaða sem kom frá sviðinu. Mick Jones er rokk-gítarleikari af guðs náð og Lou Gramm rokk-söngvari eins og þeir gerast bestir. Hann fékk t.d. þá umfjöllun þegar fyrsta plata Foreigner kom út 1976 að hann væri með rödd sem Robert Plant mætti öfunda hann af. Það var rokkmúsík sem tengdi þá Lou og Mick saman á sínum tíma og Lou vildi spila rokk, en Mick vildi þegar þarna var komið sögu meira elta sándið sem var vinsælast sem var miklu mýkra rokk, soft-rokk segir sagan. Vegna þess að Foreigner er að koma fékk Rokkland hjálp tónleikahaldaranna til að ná í Mick Jones í síma, en hann er einn eftir af upphaflegu hljómsveitinni sem hann stofnaði árið 1976. Það breytir því ekki að Foreigner gengur vel og spilar fyrir fullum húsum um allan heim, var í Búlgaríu með tvenna tónleika þegar Rokland sló á þráðinn til Micks á þriðjudaginn og síðustu tónleikar fyrir tónleikana á Íslandi eru í Royal Albert Hall í London á miðvikudaginn. Það er allstaðar uppselt. Rokkland rekur sögu Foreigner í dag með Mick Jones á línunni.
    1 hr 55 min
  • Bassi, trommur og raddir duga.. í bili.
    Ben trommuleikari bresku tveggja manna rokksveitarinnar Royal Blood er á línunni frá Ástralíu í Rokklandi í dag. Royal Blood spilar í Laugardalshöll 19. Júní nk. Royal Blood er í raun dúett, skipaður vinunum Mike Kerr sem syngur og spilar á bassa og trommaranum Ben Thatcher. Ben er fæddur 1988 og Mike 1990. Royal Blood sem gerir út frá Broghton á Englandi hefur sent frá sér tvær stórar plötur, hefur unnið til fjölda verðlauna, túrað um heiminn með stærstu rokksveitum heims og spilað á öllum stærstu tónlistarhátíðunum. Félagarnir eru staddir þessa dagana í Ástralíu, eru að spila í Townswille í kvöld og í Brisbane á morgun. Rokkland sló á þráðinn til þeirra í vikunni og spjallaði við trommarann Ben. Sniglabandið heimsótti stúdíó 12 á föstudaginn og spilaði nokkur lög hljómsveitarinnar The Band, en það voru tónleikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær þar sem Sniglabandið ásamt gestum spilaði eingnögu lög sem The Band spilaði á sögufrægum tónleikum sem fóru fram í San Fransisco árið 1976 og voru lokatónleikar þessarar mögnuðu hljómsveitar sem t.d. bakkaði Bob Dylan upp þegar hann skipti kassagítarnum út fyrir rafmagnsgítarinn á sínum tíma og breytti þar með farvegi rokksins. Við heyrum Sniglabandið spila The Band í Rokklandi dagsins. Við heyrum svo aðeins af nýrri plötu frá Willie Nelson. Kántrísöngkonan Margo Price veltir fyrir sér jafnréttismálum og launa-bilinu milli karla og kvenna. Belgíski egyptinn Tamino syngur fyirr okkur og kanadíski tónlistarmaðurinn Bahamas. Eminem kemur aðeins við sögu og Florence and The Machine, Celine Dion og Angélique Kidjo sem er fædd og alin upp í vestur-Afríku ríkinu Benin en flúði þaðan árið 1983 til Parísar. Og í París eignaðist hún fljótlega plötu sem heillaði hana upp úr skónum - Remain in the Light með Talking Heads. Nú er hún búin að taka upp sína útgáfu af þessari gömlu plötu Talking Heads. Við heyrum af henni í þættinum.
    1 hr 55 min
  • Tónlist lifir, menn deyja..
    Avicii, Johnny Cash, Chris Cornell og Elton John eru fyrirferðarmiklir í Rokklandi vikunnar. Í tilefni af kveðju-tónleikaferð Eltons John sem hann kallar Farewell Yellow Brick Road voru að koma út tvær plötur, einskonar systraplötur með lögum Eltons við texta Bernie Taupin sem hinir og þessir syngja og spila. Plöturnar heita Revamp og Restoration; Reimagening the songs of Elton John and Bernie Taupin og á meðan önnur er kántrí er hin meira Popp. Bernie valdi listamennina á aðra og Elton á hina. Við heyrum af þessu hérna á eftir. Við veltum líka aðeins fyrir okkur hvort tónleikabransinn sé á brauðfótum, en það eru ansi margir að kveðja. Elton John er í kveðjutúr, Paul Simon, Neil Diamond og Joan Baez líka. Svo eru margir komnir á aldur, Bob Dylan er 76 ára og er enn að túra, Neil Young er 72ja, Eagles halda áfram þó svo þeir missi mann og annan en Glenn Frey lykilmaður í Eagles lést fyrir tveimur árum og sonur hans er kominn inn í hans stað. Don Henley trommari Eagles er sjötugur. Kiss kallarnir Paul og Gene eru 66 og 68 ára og Bruce Springsteen er 68 ára. Við kíkjum aðeins á þetta í þættinum. Og ég ætla að segja ykkur frá nýrri plötu með nýjum lögum eftir hina og þessa við texta eftir Johnny Cash sem var að koma út. Chris Cornell á þar t.d. eitt lag. Guns´n Roses koma aðeins við sögu í dag og líka hinn sænski Avicci sem lést nýlega, 28 ára að aldri í Múskat, höfuðborg Oman. Dánarorsök var sjálfsvíg. Avicii hét í raun Tim Berglingl sló í gegn árið 2011 með laginu Levels og var m.a. tilnefnt til Grammy verðlauna. Hann sendi frá sér tvær breiðskífur, True árið 2013 og Stories árið 2015, en á báðum plötum má finna gríðarlega vinsæl lög sem spiluð hafa verið mörg hundruð milljón sinnum á streymisveitum eins og Youtube og Spotify og líka í útvarpi um allan heim. Avicii sem var einn eftirsóttasti DJ í heimi hætti að koma fram á tónleikum árið 2016 vegna þess að hann réði ekki við álagið sem fylgdi því.
    1 hr 55 min
  • Lauryn Hill snýr aftur
    Lauryn Hill úr hljómsveitinni The Fugees er á leiðinni í tónleikaferð um Bandaríkin í sumar þar sem hún ætlar að halda upp á 20 ára afmæli fyrstu og einu sólóplötunar sinnar; The Miseducation of Lauryn Hill. Eftir að hafa gefið út tvær plötur með Fugees sem þeyttu henni og félögum hennar, þeim Wyclef Jean og Praz MIchael upp á stjörnuhimininn sagði hún skilið við Fugees og gerði sólóplötu árið 1998. Platan sló í gegn, seldist vel og sópaði að sér verðlaunum og er í dag orðin klassík - plata sem skiptir máli í poppsögunni. Undanfarin 20 ár hefur gengið á ýmsu hjá Lauryn Hill. Hún hefur haldið sig að mestu utan sviðsljóssins, hefur ekki gert aðra plötu í stúdíói en sent frá sér lag og lag undanfarin ár. Hún hefur leikið í nokkrum kvikmyndum en hún hefur líka hafnað mörgum stórum hlutverkum í stórmyndum. Lauryn lenti í vandræðum með skattamál og þurfti að sitja í fangelsi í nokkra mánuði fyrir nokkrum árum vegna þess. Hún á 6 börn, þar af 5 með Rohan Marley sem er einn af sonum Bob´s Marley - yngsta barnið á hún með öðrum manni. En hvað gerðist? Hvernig atvikaðist það að þessi hæfileikaríka unga kona gerði bara þessa einu plötu og sagði svo næstum skilið við músíkina, eða kannski frekar músík-bransann fyrir öllum þessum árum. Rokkland reynir að finna út úr því í dag. U2, Tamino, Prince og Gryff Rhys koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Bubbi segir sögur af landi
    Bubbi hlustar á plötuna Sögur af landi frá 1990 með umsjónarmanni Rokklands og segir frá lögunum og plötunni í Rokklandi vikunnar. En núna á miðvikudaginn, 18. Apríl - síðasta vetrardag mun Bubbi ásamt hljómsveit, flytja í heild sinni í Eldborg í Hörpu tvær af sínum þekktustu plötum; Konu sem kom út 1985 og Sögur af landi sem kom út 1990. Sögur af Landi er ein af mest seldu plötum Bubba og þar eru lög eins og Syneta, Blóðbönd, Fjólublátt flauel og fleiri smellir. Platan var að mestu hljóðrituð og hljóðblönduð í Grjótnámunni 30. júlí - 16. ágúst 1990. Hægri hönd Bubba við gerð plötunnar var sænski upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Christian Falk, en með voru líka Ken Thomas og Hilmar Örn Hilmarsson. Bubbi segir sjálfur að Sögur af landi sé þjóðlagaplata (folkmúsík) og hljóðheimurinn ferðast víða.
    1 hr 55 min
  • Útópía Bjarkar - Joan Baez og hinsegin-lög
    Björk kemur við sögu í seinni hluta þáttarins en Joan Baez í þeim fyrri. Björk heldur tvenna tónleika í Reykjavík í vikunni og byrjar tónleikaferð sína um heiminn í Háskólabíó mánudaginn 9. og fimmtudaginn 12. apríl. Útópía er 10. sólóplata Bjarkar, hún kom út í lok síðasta árs og var valin ein af bestu plötum síðasta árs í ýmsum miðlum víða um heim og fyrir síðustu plötu þar á undan; Vulnicura, hlaut hún bresku tónlistarverðlaunin í flokknum „besta alþjóðlega söngkonan“. Á Útópíu-túrnum kemur Björk fram með 7 flautuleikurum, slagverksleikara og raftónlistarmanni. Rokkland spjallaði við Björk þegar Útópía kom út og spurði t.d. hvort hún væri enn að fást við popp-músík eða hvort þetta væri eitthvað allt annað. Við skoðum líka nýja „plötu“ sem heitir Universal Love og hefur að geyma „hinsegin“ útgáfur af ýmsum þekktum lögum og flytjendur eru Bob Dylan, Kele söngvari Bloc Party ofl. En í fyrri hluta þáttarins er Joan Baez yfir og allt um kring. Hún sendi fyrir skömmu frá sér plötuna Whistle down the road sem hún segir að verði hugsanlega og líklega sín síðasta plata og hún ætlar að fylgja henni eftir með síðustu alvöru tónleikaferðinni sem hófst í mars í Svíþjóð og stendur út árið. Joan Baez er 77 ára gömul og búin að vera að syngja fyrir fólk í meira en 60 ár. Við heyrum lög af nýju plötunni en líka músík frá fyrstu árunum.
    1 hr 55 min
  • Guð er ekki til, veik í leikföng og öll hin...
    Life´s too good - fyrsta plata Sykurmolanna kom út fyrir bráðum 30 árum síðan.
    Platan kom út sumarið 1988 um allan heim og er ekki bara frábær plata og fersk, heldur er hún fyrsta breiðskífa íslenskrar hljómsveitar sem vakti athygli og seldist í bílförmum frá Tálknafirði til Timbuktu.
    Sykurmolarnir voru afsprengi félagsskaparins Smekkleysu sem var sett á laggirnar til þess að gefa út úrgang félagsmanna, ljóðabækur ofl. Það kostar peninga að gefa út hvort sem það er músík eða ljóðabækur og til þess að standa straum að kostnaði við útgáfustarfsemina ákvað hluti Smekkleysufólksins að stofna popp-hljómsveit sem myndi búa til peninga fyrir Smekkleysu. Þar að auki höfðu flestir liðsmanna verið saman í hljómsveitinni Kukl sem varð til í útvarpsþætti á Rás 1 árið 1982.
    Sykurmolarnir urðu fyrsta íslenska popphljómsveitin til að vekja athygli á heimsvísu ef Mezzoforte og velgengni Garden party er undan skilin.
    Life´s too good er fyrsta Sykurmolaplatan og er eiginlega alveg jafn freks og frábær og hún var fyrir 30 árum síðan.
    Molarnir þeir Einar Örn (söngur) og Sigtryggur Baldursson (trommur) rifja upp árið 1988 þegar platan kom út, aðdragandann og eftirleikinn, og hlusta með umsjónarmanni á plötuna í Rokklandi vikunnar, en þessi plata hefur að geyma smelli eins og Birthday, Deus, Cold Sweat ofl.
    1 hr 55 min
  • Guð er ekki til, veik í leikföng og öll hin...
    Life´s too good - fyrsta plata Sykurmolanna kom út fyrir bráðum 30 árum síðan. Platan kom út sumarið 1988 um allan heim og er ekki bara frábær plata og fersk, heldur er hún fyrsta breiðskífa íslenskrar hljómsveitar sem vakti athygli og seldist í bílförmum frá Tálknafirði til Timbuktu. Sykurmolarnir voru afsprengi félagsskaparins Smekkleysu sem var sett á laggirnar til þess að gefa út úrgang félagsmanna, ljóðabækur ofl. Það kostar peninga að gefa út hvort sem það er músík eða ljóðabækur og til þess að standa straum að kostnaði við útgáfustarfsemina ákvað hluti Smekkleysufólksins að stofna popp-hljómsveit sem myndi búa til peninga fyrir Smekkleysu. Þar að auki höfðu flestir liðsmanna verið saman í hljómsveitinni Kukl sem varð til í útvarpsþætti á Rás 1 árið 1982. Sykurmolarnir urðu fyrsta íslenska popphljómsveitin til að vekja athygli á heimsvísu ef Mezzoforte og velgengni Garden party er undan skilin. Life´s too good er fyrsta Sykurmolaplatan og er eiginlega alveg jafn freks og frábær og hún var fyrir 30 árum síðan. Molarnir þeir Einar Örn (söngur) og Sigtryggur Baldursson (trommur) rifja upp árið 1988 þegar platan kom út, aðdragandann og eftirleikinn, og hlusta með umsjónarmanni á plötuna í Rokklandi vikunnar, en þessi plata hefur að geyma smelli eins og Birthday, Deus, Cold Sweat ofl.
    1 hr 55 min
  • Sko þetta heita Músíktilraunir
    Við byrjum þáttinn í dag í Norðurljósum í Hörpu þar sem Músíktilraunir fóru fram í gær í 36. sinn. Hljómsveitin sem sigraði er stúlknatríó úr vesturbæ Reykjavíkur sem samanstendur af systrum og frænku þeirra sem er 12 ára. Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent fyrir rúmri viku í Hörpu líka, við heyrum í sigurvegurum eins og Mammút, Vök og Between Mountains sem eiga það allir sameiginlegt að hafa sigrað í Músíktilraunum. Tónleikahald er langstærsta tekjulind íslenskra tónlistarmanna, samkvæmt nýrri skýrslu um íslenska tónlistariðnaðinn sem var kynnt á föstudaginn. Rokkland hitt og ræddi við Sigtrygg Baldursson trommuleikara, Sykurmola og framkvæmdastjóra ÚTÓN. Gítarleikarinn Tryggvi Hübner var útnefndur heiðursfélagið Blúsfélags Reykjavíkur við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2018. Tryggvi hefur um árabil verið ein af burðarstoðunum í íslenskri blústónlist og leiðandi í íslensku tónlistarlífi bæði sem eftirsóttur gítarleikari og virtur gítarkennari. Hann kemur aðeins við sögu í dag eins og Björn Thoroddsen, Neil Young ofl.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners