Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • FMA 2018 - ÍTV 2018 - MT 2018 ofl.
    Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent síðasta miðvikudag og þau Færeysku síðasta laugardagskvöld í Thorshavn. Rokkland var á báðum stöðum og ætlar að miðla músík og máli á sunnudaginn. Svo eru músíktilraunir að hefjast í kvöld (18. mars) og úrslitin eru næsta laugardag.
    1 hr 55 min
  • Ég drakk ekki einu sinni Lager ...
    Underworld heimsækir Ísland um næstu helgi og spilar Sónar 2018 í Hörpu.
    Underworld hefur einu sinni áður spilað í Reykjavík en það var fyrir 24 árum þegar Underworld-menn voru gestir Bjarkar og spiluðu á eftir henni í Laugardalshöll og héldu íslenskri æsku dansandi í höllinni langt inn í bjarta sumarnóttina.
    Underworld hefur verið starfandi í meira en 30 ár og um tíma á 10unda áratugnum var Underworld ein vinsælasta hljómsveit heims. Smellurinn þeirra Born Slippy var spilaður yfir öllum dansgólfum heims og klagið fleytti þessum ensku náungum upp í hæstu hæðir. Lagið var notað í kvikmyndinni Trainspotting sem sló eftirminnilega í gegn fyrir 20 árum. Í Born slippy gólar Karl Hyde aftur og aftur Lager, lager, lager, lager og kallar þannig á meiri bjór. Hann er löngu hættur að drekka og drakk aldrei bjór heldur allt annað.
    Ég sló á þráðinn til Karls Hyde sem er helmingur Underworld, sá sem syngur, í vikunni sem leið og við ræddum hitt og þetta; Brian Eno, Bítlana, aldur, Stanley Kubric, íslenska jökla, bjórdrykkju og margt fleira.
    Rokkland var á Færeysku tónlistarverðlaununum í gær í Thorshöfn og við heyrum aðeins af því líka.
    1 hr 55 min
  • Public Service Broadcasting * Bítlar og Hyljur
    The Beatles koma við sögu, hljómsvetin Public Service Broadcasting og "kóver"lög og uppruni þeirra. Einnig ný músík með "gömlum" breskum hljómsveitum eins og Simple Minds, Muse, Belle & Sebastian og Embrace. Í seinni hluta þáttarins ætla ég að segja frá skemmtilegri hljómsveit frá London sem heitir Public Service Broadcasting og er búin að senda frá sér 3 stórar plötur sem eru instrumental í grunninn en saman við músíkina sem er fjölbreytt og skemmtileg er blandað töluðu máli úr gömlum heimildamyndum frá Britist film institute. Þetta hljómar kannski ekki spennandi en það er best að hlusta sjálfur og með eyrunum. Rokkland mælir amk. með Public Service Broadcasting og öllum þeirra plötum. Og Rokkland mælir með er líka nýr playlisti á Spotify (hér fyrir neðan) sem var uppfærður og endurnýjaður á föstudaginn. Þar er eitt og annað nýtt og eldra sem Rokkland mælir með og Rokkland mælir með að þið tékkið á því og Rokkland er að safna fylgjendum að sjálfsögðu. Ég ætla líka að tala aðeins um nýlega heimildamynd um Bítlana og áhrif þeirra. Myndin heitir How the Beatles changed the world og er á Netflix. Rokkland mælir með henni. Og svo eru það Kóverlögin sem sumir kalla ábreiður eða þekjur - jafnvel hyljur! þetta eru allt hugtök sem útvarpsmenn t.d. nota dálítið. Það hefur verið vinsælt á undanförnum árum að fá hljómsveitir og listamenn í útvarpið í þeim tilgangi að fá þá til að "þekja" eitthvert lag, þ.e.a.s spila lag eftir einhvern annan höfund, aðra hljómsveit - eitthvað úr óvæntri átt og sýna þannig á sér nýja hlið. Og lagið sem hann Dagur Sigurðsson sem komst í úrslit Söngvakepninnar syngur og má heyra og sjá hérna fyrir neðan er ekxta svona lag - kóverlag. Við veltum okkur uppúr sögu "kóverlaganna" í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min
  • Ég drakk ekki einu sinni Lager ...
    Underworld heimsækir Ísland um næstu helgi og spilar Sónar 2018 í Hörpu. Underworld hefur einu sinni áður spilað í Reykjavík en það var fyrir 24 árum þegar Underworld-menn voru gestir Bjarkar og spiluðu á eftir henni í Laugardalshöll og héldu íslenskri æsku dansandi í höllinni langt inn í bjarta sumarnóttina. Underworld hefur verið starfandi í meira en 30 ár og um tíma á 10unda áratugnum var Underworld ein vinsælasta hljómsveit heims. Smellurinn þeirra Born Slippy var spilaður yfir öllum dansgólfum heims og klagið fleytti þessum ensku náungum upp í hæstu hæðir. Lagið var notað í kvikmyndinni Trainspotting sem sló eftirminnilega í gegn fyrir 20 árum. Í Born slippy gólar Karl Hyde aftur og aftur Lager, lager, lager, lager og kallar þannig á meiri bjór. Hann er löngu hættur að drekka og drakk aldrei bjór heldur allt annað. Ég sló á þráðinn til Karls Hyde sem er helmingur Underworld, sá sem syngur, í vikunni sem leið og við ræddum hitt og þetta; Brian Eno, Bítlana, aldur, Stanley Kubric, íslenska jökla, bjórdrykkju og margt fleira. Rokkland var á Færeysku tónlistarverðlaununum í gær í Thorshöfn og við heyrum aðeins af því líka.
    1 hr 55 min
  • Á hvað hlustar Margrét drottning?
    Rokkland hefur ekki hugmynd um það en dönsk tónlist er samt í aðalhlutverki í Rokklandi dagsins. Í seinni hluta þáttarins koma við sögu hljómsveitir og listamenn eins og Kim Larsen, Roberta Flack, Kim Carnes, Led Zeppelin, Santana og George Harrison sem hefði orið 75 ára í dag ef hann hefði lifað. En í fyrri hlutanum er það herraþjóðin okkar gamla Danmörk og Dönsk tónlist, danskt popp og rokk og eitthvað í þá veru. Trúnó eru fjórir þættir sem Anna Hildur Hildibrandsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Útón og Nomex (Nordic Music Export var að gera) Hún er framleiðandi og hún tekur viðtölin við tónlistarkonurnar fjórar sem þættirnir fjalla um. Þessar fjórar konur eru; Ragga Gísla, Lay Low, Sigríður Thorlacius og Emiliana Torrini. Í þessum 40 mínútna þáttum segja þær frá sér og tónlistinni - og segja frá allskonar hlutum sem þær hafa aldrei talað um áður - og /eða fara dýpra í það. Andrea Jónsdóttir vinkona okkar kemur svo við sögu í öllum þáttunum. Ég ætla að segja aðeins frá þessu betur í þættinum. Carsten Holm heitir kollegi minn hjá danska útvarpinu DR P6BEAT. Hávaxinn maður með sítt hár og sítt skegg, lítur út eins og hálfgerður risi, víkingarisi kannski. Hann er þekktur í Danmörku fyrir sitt sérstaka útlit, síða hárið og skeggið, en ekki síður fyrir útvarpsþættina sem eru orðnir ótrúlega margir. Carsten skemmtir dönum á föstudags, laugardags og sunnudags-morgnum frá 10-12. Við Carsten höfum verið að rekast hver á annan á tónlistarhátíðum í meira en 20 ár, fyrst og fremst á Hróarskeldu. Við hittumst núna í janúar á Eurosonic Festival í Hollandi og þar sem hátíðin lagðií ár áherslu á Danska tónlist bað ég Carsten um að setja sig í sérfræðings-stellingar , setjast niður með mér og segja mér frá því sem er að gerast í danskri tónlist. Það voru 22 danskar hljómsveitir á Eurosonic í ár og ég bað hann um að velja nokkrar þeirra og ákveðin lög með þeim fyrir Rokkland. Ein af þeim er D/troit -
    1 hr 55 min
  • Bara blóm - engir kransar
    Konudagsmúsík, Yoko Ono 85 ára, Oscarslögin, Bjössi Thor 60 ára og Bee Gees. Þetta er meðal þess sem kemur við sögu í Rokklandi dagsins. Björn Thoroddsen gítarleikari varð sextugur á föstudaginn. Rokkland kíkti í afmælið sem var haldið í Salnum í Kópavogi og ræddi við nokkra gítarleikara sem voru þar gestir um gítarleikarann Bjössa. Óskarsverðlaunin verða afhent í 90. Sinn í Dolby leikhúsinu í Los Angeles þann 4. Mars nk. Þar verður verðlaunað fyrir besta leik í aðal og auka-hlutverkum, bestu myndina, fyrir leikstjórn og klippingu, búninga og svo framvegis. En þar er líka einn flokkur sem heitir Bestu lögin, eða lög; frumsamin fyrir kvikmyndir. Við hlustum á þau. Svo er það konudagsmúsíkin - allskonar músík sem tengist konum. Lög með E.L.O. - Foreigner, Beyoncé, Annie Lennox, U2, Sandi Shaw, James Brown ofl. Maurice Gibb úr The Bee Gees kvæntist þennan dag árið 1969 söngkonunni Lulu. VIð rifjum upp hvað var að gerast hjá Bee Gees um þetta leiti, en þetta er 8 árum fyrir diskóið í Saturday night Fever. Og svo er það afmælisbarn dagsins; Yoko Ono sem er 85 ára í dag. Hún kemur við sögu í Rokklandi dagsins.
    1 hr 55 min
  • Við erum Clash!
    Clash dagurinn var haldinn hátíðlegur víðsvegar um heiminn í vikunni sem leið og í Rokklandi í dag framlengjum við. En við minnumst líka Jóhanns Jóhannssonar sem lést í gær 48 ára að aldri og Quincy Jones kemur líka við sögu. International Clash day er skemmtilet fyrirbæri sem útvarpsmaður á útvarpsstöðini KEXP í Seattle í Bandaríkjunum startaði fyrir 5 árum síðan - bara vegna þess að hann gat það. Hann langaði til þess og hann gerði það. Í ár tóku meira en 100 útvarpsstöðvar víðsvegar um heim þátt í Clash deginum og Rás 2 var þar á meðal og Rás 1 líka! Við tökum enn frekar ofan fyrir Clash í dag - heyrum t.d. viðtal við þá Mick Jones og Paul Simonon liðsmenn sveitarinnar en umsjíonarmaður Rokklands hitti Mick Jones á Hróarskeldu fyrir nokkrum árum þar sem hann var að spiloa með Damon Albarn og Gorillaz. Við heyrum brot af því spjalli í þættinum og heyrum Háskólarektor; Jón Atla Benediktsson segja frá dálæti sínu á Clash. Henry Rollins gerir það líka og Kevin Cole hjá KEXP. En við byrjum á að minnast Jóhanns Jóhannssonar sem fannst látinn á heimili sínu í Berlín í gær. Jóhann var einn þekktasti tónlistarmaður íslendinga fyrr og síðar, marg verðlaunaður en fyrst og fremst afskaplega hæfileikaríkur. Jóhann kom víða við en síðustu árin var það fyrst og fremst kvikmyndatónlistin sem hann einbeitit sér að enda var hann kominn þar í fremstu röð. Hann hlaut mikið lof fyrir tónlist sína í kvikmyndir kanadíska leikstjórans Dennis Villeneuves, Prisoners, Sicario og Arrival. Hann hlaut Golden Globe-verðlaun árið 2014 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything og var jafnframt tilnefndur til Óskars-, BAFTA- og Grammy-verðlauna fyrir þá mynd. Hann var aftur tilnefndur til Óskars- og BAFTA-verðlauna fyrir Sicario árið eftir og til Golden Globe og BAFTA-verðlauna 2016 fyrir Arrival og Grammy-verðlauna ársins 2017 fyrir sömu mynd.
    1 hr 50 min
  • Trönuberið frá Limerick
    Söngkona Cranberries, Dolores O'Riordan lést núna fyrir rétt rúmum hálfum mánuði. Cranberries var í eina tíð ein vinsælasta hljómsveit heims, en svo hneig frægðarsólin eins og gengur. Það gekk á ýmsu hjá Cranberries sem flaug hátt um tíma, hætti og byrjaði aftur og fór svo aftur í frí og kom enn aftur. Cranberries var starfandi með hléum í næstum 30 ár og sendi frá sér sjö stórar plötur. Þar að auki gaf Dolores út tvær sólóplötur og var undir það síðasta í hljómsveit með Andy Rourke sem var bassaleikari The Smiths, og sambýlismanni sínum Olé Koretsky sem var talsvert yngri en hún. Hljómsveitin Valdimar kemur líka við sögu, valdimar á AFÉS og Valdimar á Eurosonic Festival núna um daginn og við heyrum í Sting og Shaggy og UB 40. Dolores fannst látin á hótelherbergi á Hilton hótelinu við Park Lane í London mánudaginn 15. janúar sl. og það er enn verið að rannsaka dánarorsök, en samkæmt því sem ég kemst næst erum við ekki að tala um neitt saknæmt, ngan glæp. Dolores bjó undir það siðasta í New York með unnusta sínum, tónlistarmanninum Ole Koretzky, en hún skildi við eiginmann sinn til 20 ára, fyrrum umboðsmann hljómsveitarinnar Cranberries árið 2014. Þau áttu saman þrjú börn. Hljómsveitin Cranberries hætti störfum árið 2003 en tók aftur saman 2009. Sagan segir að líf Dolores hafi lengi verið litað af þunglyndi og geðhvarfasýki, lystarstoli og alkóhólisma. Rótin af þessu öllu var kynferðisleg misnotkun sem hún varð fyrir þegar hún var ung stúlka sagði hún sjálf. Hún þurfti oftar en einu sinni að berjast fyrir lífi sínu við sjálfa sig og hún viðrkenndi í viðtali við Belfast Telegraph árð 2014 að árið áður hafi hun reynt að stytta sér aldur með því að taka inn stóran skammt af sterkum verkjalyfjum. Það fékk mikið á hana þegar pabbi hennar lést 2011. Þá sökk hún á kaf í þunglyndi sem hún átti í erfiðleikum með að ná sér uppúr. Dolores var yngst sjö systkina, fædd 6. September 1971 í Ballybricken, litlu sveitaþorpi í Limerick-sýslu á Írlandi.
    1 hr 55 min
  • Tommi Tomm - Grammy og Sindri Mid Atlantic
    Rokkland fjallar um Tómas M. Tómasson Stuðmann sem lést í vikunni í seinni hluta þáttarins en í þeim fyrri skoðum við aðeins Grammy verlaunin sem verða afhent í New York í kvöld og spjöllum við Sindra Ástmarsson hjá Mid Atlantic Entertainment. Rokkland var í vikunni sem leið á Eurosonic Festival í Groningen í Hollandi og þar var Sindra Ástmarsson framkvæmdastjóri umboðsskrifstofunnar Mid Atlantic Entertainmnent sem er t.d. með Glowie, Kaleo, Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauta á sínum snærum. Sindri var á Eurosonic fjórða árið í röð að fylgja sínu fólki. Rokkland ræddi við hann í dönsku samkvæmi sem haldið var vegna þess að Danmörk og dönsk tónlist var í fókus á Eurosonic. En Eurosonic er svo stærsta tónlistarhátíð Evrópu sem gengur út á að kynna nýja tónlist fyrir nýjum eyrum. Svo verða Grammy verðlaunin afhent í nótt og það verður sýnt beint frá því á RÚV. Verðlaunin verða afhent í New York og við skoðum það aðeins í þættinum, skoðum t.d. hvaða lög eru tilnefnd í flokkunum Best Alternative Music Album og Best Americana Roots performance. En svo var það Tommi Tomm, Stuðmaðurinn og Þursaflokksmaðurinn Tómas M. Tómasson sem lést í vikunni eftir snarpa baráttu við krabbamein. Við höfum tekið ofan fyrir Tómasi í vikunni hérna á Rás 2 og Rokkland ærlar að minnast hans aðeins í dag og svo betur síðar.
    1 hr 55 min
  • Úlfur Úlfur á Eurosonic
    Rokkland var á Eurosonic Festival í Groningen í vikunni sem leið. Ein af fimm íslenskum hljómsveitum sem kom fram á hátíðinni í ár var Úlfur Úlfur sem spilaði í gamla leikhúsinu Grand Theatre í hjarta borgarinnar, þar sem ýmsar íslenskar hljómsveitir hafa spilað á Eurosonic í gegnum tíðina. Hollenska útvarpið hljóðritaði tónleikana og við heyrum þá í seinni hluta þáttarins. Það verður svo meira frá Eurosonic í næsta Rokklandi eftir viku. Í fyrri hlutanum er það meiri músík - minna mas og fyrst og fremst splunkuný músík með fólki eins og David Byrne, Justin Timberlake, Nathaniel Rateliff, Bruno Mars, Joan as Policewoman, Franz Ferdinand, Simple Minds, U2, The Vaccines ofl.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners