Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Iron & Wine
    Sam Beam heitir hann bandaríkjamaðurinn sem ætlar að spila í kvöld í Eldborg í Hörpu undir nafninu Iron & Wine. hann er gestur Rokklands í dag. Sam Beam hefur verið að gera músík undir nafninu Iron & Wine í uþb 15 ár. Ég reyndi að ná í hann í síma í vikunni, það gekk ekki en ég fékk hann til að heimsækja mig í útvarpshúsið á föstudaginn og við áttum saman gott spjall. Samuel Ervin Beam er 43 ára gamall Bandaríkjamaðurm, fæddur 1974 í Suður Karólínu en ólst að hluta til upp í Florída líka og gekk þar í skóla. Hann býr í dag í Norður Karolínu með eiginkonu sinni og fjórum af fimm dætrum. Á ferli sínum hefur Sam Beam gefið út sex plötur sem Iron & Wine, fjölda stutt- og smáskífa, í bland við plötur með fágætu efni sem gefnar eru út í takmörkuðu upplagi. Til að byrja með deildi hann tónlistinni aðeins með konu sinni og dætrum en stuttu eftir að hann byrjaði að gefa tónlist sína út kolféll almenningur fyrir honum. Tónlistin hefur oft hljómað undir í hinum ýmsu kvikmyndum og þáttum, má þar t.a.m. nefna The O.C., Grey's Anatomy, Twilight, House M.D., Ugly Betty og 90210. Sub Pop útgáfan í Seattle bauð Sam plötusamning og gaf fyrstu plötuna út árið 2002 en þá þegar átti Sam tvær dætur og hann sjálfur var tæplega þrítugur, starfaði sem kennari í kvikmyndaskóla. Mike Bridwell sem er bróðir Ben Bridwell forsprakka hljómsveitarinnar Band of Horses og Sam eru gamlir vinir sem bjuggu saman þegar þeir voru í skóla og Ben bjó líka með þeim um tíma líka. Og það var Mike þessi sem kom upptökum með Sam til Sub Pop útgáfunnar á sínum tíma þegar hann var að reyna að koma hljómsveitinni sem Ben var í á undan Band of Horses, á samning hjá útgáfunni, hljómsveitinni Carissa´s Weird. Fólkið hjá Sub Pop bauð Sam útgáfusamning og síðan er hann búinn að vera að gefa út helling af músík og túra um heiminn þveran og endilangan. Þegar Sam er spurður út í fyrirmyndir og lærimeistara nefnir hann söngvaskáldin stóru; Leonard Cohen, Bob Dylan, Joni Mitchell, Paul Simon, Townes Van Zandt og svo framvegis, fólk orðanna.
    1 hr 55 min
  • Brot af 2017
    Þetta er fyrsta Rokkland ársins 2018 og það er löngu orðið hefð að nota fyrsta þátt nýs árs til að rifja upp eitt og annað sem var til umfjöllunar á árinu sem var að kveðja Það var heilmikið af stórafmælum og tímamótum til umfjöllunar á árinu. SSSÓL varð 30 ára og því var fagnað. Dögun Bubba, Í Fylgd með Fullorðnum Bjartmars og Leyndarmál Grafíkur, já og Joshua Tree U2 urðu allar 30 ára og það var haldið upp á það. Það var líka haldið upp á 10 ára afmæli útgáfnnar Record Records og 40 ára afmæli Mezzoforte. Rokkland fór á Eistnaflug, fór til Færeyja á Færeysku tónlistarverlaunin, á Secret Solstice, Airwaves auðvitað og Sónar, ÍTV og hingað og þangað. Rokkland tók líka ofan fyrir þeim sem kvöddu á árinu, t.d. Chris Cornell, Glen Campbell og Tom Petty. Í þessum þætti heyrum við brot af því besta frá Rokklandi 2017.
    1 hr 55 min
  • Í fylgd með fullorðnum í 30 ár
    Platan í fylgd með fullorðnum er þriðja breiðskífa Bjartmars Guðlaugssonar. Hún var í öðru sæti yfir mest seldu plötur ársins 1987 og lög af henni eins og Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki og Járnkallinn hljómuðu í útvarpinu næstum stanslaust. Síðan eru liðin 30 ár og Bjartmar kom í Rokkland á sunnudgainn til að segja frá plötunni og lögunum sem hana prýða. Í upphafi þáttar er líka skautað yfir líf Bjartmars og tónlistarferil til ársins 1987 þegar hann gerði þessa plötu. Hann segir frá uppvextinum á Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum og ræðir um músíkina, trommarann Bjartmar og svo framvegis. Titillag plötunnar; Í fylgd með fullorðnum, fjallar um unga drenginn Bjartmar sem hlustaði á útvarpið í eldhúsinu heima hjá sér fullur skelfingar og átti allt eins von á að dagar sínir og allra annara væru brátt taldir. Bjartmar segir m.a. í þættinum: “þegar ég var drengur var ég alveg óskaplega hræddur við stríð. Ég var hræddur við Kóreustríðið en sérstaklega var ég hræddur við Kúbudeiluna þegar ég var 11 ára. Og ég var svo skelfingu lostinn þegar ég var 11 ára gamalt barn að ég vildi frekar þola ávítur fyrir það að koma ekki heim í hádegismat eða kvöldmat, og vera heldur niðri á bryggju, en þurfa að hlusta á raddir Ríkisútvarpsins skýra frá þessari deilu. Ég var orðinn ótrúlega hræddur við röddina í útvarpinu sem var að segja mér að kannski yrði engin veröld til á morgun. Ég tók inná mig ýmsar fréttir og ótti minn við stríð hefur alla stríð verið og er enn mjög mikill. Og ég fór að hugsa þarna þegar ég gerði þessa plötu; aumingja börnin í dag sem þurfa að hlusta á allar þessar fréttir í stereo, og eru þau ekki jafn hrædd við þetta og ég var“.
    2 hr 5 min
  • Chris Cornell 1964 - 2017
    Söngvarinn, gítarleikarinn og tónlistarmaðurinn Chris Cornell úr Soundgarden og Audioslave stytti sér aldur fyrir rúmri viku eins og margir eflaust vita og Rokkland vikunnar er helgaður Chris, lífi hans og verkum.
    Chris sem er fæddur og alinn upp í rokkborginni Seattle í Bandaríkjunum varð 52 ára gamall. Hann framdi sjálfsmorð eins og það er kallað á hreinni og beinni íslensku á hótelherbergi í Detroit Rock City eftir að hafa spilað tónleika með gömlu hljómsveitinni sinni, Soundgarden, í Fox Theatre fyrr um kvöldið.
    Hann fór upp á hótelherbergi eftir tónleikana, hringdi í konuna sína, hún hafði orð á því að hann væri eitthvað skrýtinn og hann sagði að það væri hugsanlega vegna þess að hann hefði tekið tveimur kvíða-töflum of mikið. Hann hafði lengi verið að díla við kvíða og þunglyndi og var á lyfjum sem heita Ativan, en ein af aukaverkunum ku vera sjálfsmorðshugsanir. En svo hefur meira komið í ljós varðandi þetta mál síðustu daga og það er talið að hann hafi innbyrt eitthvað meira en þessi kvíðalyf þetta kvöld. Chris byrjaði ungur að nota fíkniefni og var búinn að vera án alls slíks árum saman en það má vera að hann hafi nýlega byrjað að nota eitthvað aftur.
    Chris Cornell hélt tvisvar tónleika á íslandi. Hann spilaði lágstemmda sóló-tónleika í Eldborg í Hörpu í fyrra, en kom með hljómsveit í Laugardalshöllina fyrir áratug. Í þeirri heimsókn óskaði ég eftir að fá viðtal við hann og Ísleifur Þórhallsson tónleikahaldari bjargaði því og mætti með honum í útvarpshúsið við Efstaleiti. Við heyrum talsvert af því spjalli í þættinum en við ræddum um æskuárin, unglisgsárin, áhrifavalda, upphaf Soundgarden, um Temple of the Dog og Eddie Vedder, um plötur Soundgarden, um Audioslave ofl. Við ætlum við að kynnast þessum merkilega náunga frá Seattle aðeins betur.
    1 hr 53 min
  • Músíktilraunir og Færeysku tónlistarverðlaunin
    Fyrri hluti Rokklands í dag er tileinkaður Færeysku tónlistarverðlaunum og færeyskri tónlist, en sá síðari íslenskri tónlist og Músíktilraunum sem fóru fram í Norðurljósum í Hörpu í gær í 35. sinn. Færeysku tónlistarverðlaunin voru afhent um miðjan mars í Norðurlandahúsinu í Færeyjum við hátíðlega viðhöfn eins og gengur, á laugardagskvöldi og í beinni útsendingu í Kringvarpinu sem er Ríkis-sjónvarp þeirra Færeyinga og er einmitt staðsett við hliðina á Norðurlandahúsinu sem segja má að sé einskonar Harpa þeirra Færeyinga eða blanda af Hörpu og félagsheimili. Það er mikið af góðu tónlistarfólki í Færeyjum og við heyrum í nokkrum þeirra í Rokklandi dagsins, t.d. Hans Andrias, Gudrid Hansdottir, Danny & The Veetos, Lena Anderssen og Heidrik. Úrslit Músíktilrauna fóru fram í gær í Norðurljósum í Hörpu í 35. Sinn. 32 hljómsveitirnar tóku þátt, aðeins færri en í fyrra. Undankvöldin voru fjögur og fóru fram í Norðurljósum líka og í úrslitunum voru í gær voru 12 hljómsveitir og sigursveitin koma keyrandi frá Súgandafirði og er skipum tveimur vinkonum, 14 og 16 ára. Sú yngri er systir bræðranna í sigursveitinni 2015; Rythmatik. 1. sæti Between Mountains 2. sæti Phlegm 3. sæti Omotrack Hljómsveit fólksins sem er valin með símakosningu er Misty Söngvari Músíktilrauna eru þær stöllur Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Ásrós Helga Guðmundsdóttir úr Between Mountains Gítarleikari Músíktilrauna er Helgi Freyr Tómasson úr Hewkii Bassaleikari Músíktilrauna er Flemming Viðar Valmundsson úr Phlegm Píanó-hljómborðsleikari Músíktilrauna er Dagur Bjarki Sigurðsson öðru nafni Adeptus Trommuleikari Músíktilrauna er Ögmundur Kárason úr Phlegm Rafheili Músíktilrauna er Helgi Freyr Tómasson úr Hewkii og piltarnir sem kalla sig Hillingar fengu viðurkenningu fyrir textagerð á íslensku.
    1 hr 53 min
  • Pönk í Reykjavík...
    ...á Iceland Airwaves 2016 Rokkland var á Iceland Airwaves alla vikuna og helgina eins og undanfarin 17 ár. Rokkland fór á opnum Pönksafnsins, heimsótti Johnny Rotten, sá Sonics á Kex, Fufanu í Silfurbergi, RuGl í Kaldalóni, Pj. Harvey og Mammút í Valsheimilinu, Vök á Slippbarnum, Pétur Ben í Gamla bíó, Seratones og Teit Magnússon á Nasa, heimsótti Johnny Rotten og líka Mammút og ýmislegt fleira. Þei sem koma við sögu í þættinum eru: Robert Majerink frá Eurosonic Festival, Árni Matthíasson, Björk, Johnny Rotten, Dr Spock, Mammút, Curver Thoroddsen, Fræbbblarnir, Utangarðsmenn, Purrkur Pillnikk, Kevin Cole, KEXP, Kex Hostel, Pelican, The Sonics, Singapore Sling, Samaris, Sigurður Arnar Jónsson, Birgir Blomsterberg, Sex Pistols, Pönksafnið, Axel Hallkell Jóhannesson, Birgitta Jónsdóttir ofl.
    1 hr 45 min
  • Úlfurinn í Súđavík
    Mugison var gestur Rokklands síđasta sunnudag.
    Hann rćddi um starf tónlistarmannsins, ferđalög, heimavinnu, Súđavík, Petur Ben, Múkkana, Dranga, Brennivín, ţunglyndi, úlfinn, Bítlana, Kassann, Haglél, međvirkni, Stingum af, brass, rokk, Afríku, riff, geimstöđina, afa, efa, Fjallabrćđur, Abbey road, Hljómalind, Reykjavík og margt fleira, og í forgrunni var nýja platan, Enjoy, sem kemur út í vikunni.
    Mugison segir frá öllum lögunum í ţćttinum og ţau frumflutt hér í Rokklandi.
    1 hr 48 min
  • Söngvar um lífiđ, Guđ og kynsvelti
    Bon Iver - Hórmónar og Bob Dylan.
    Í seinni hluta Rokklands í dag koma ţćr í heimsókn ţćr Urđur og Brynhildur úr hljómsveitinni Hórmónar sem er sigursveit Músíktilrauna 2016. Hórmónar sem koma úr Garđabćnum eru hrátt og skemmtilegt band sem syngur á íslensku, um hluti sem allir skilja. Sveitin er búin ađ taka upp sína fyrstu plötu, fjögurra laga EP sem kemur út innan skamms en verđur frumflutt hér í Rokklandi í dag.
    Bob Dylan kemur örlítiđ viđ sögu í ţáttalok en mál málanna er Bon Iver sem sendi nýveriđ frá sér ţriđju stóru plötuna, 22, a Million sem er allt öđruvísi en síđasta plata sem kom út fyrir 5 árum.
    Platan hefur fengiđ frábćra dóma og sumir gagnrýnendur afa líkt stökkinu sem Bon Iver tekur milli platna viđ ţađ ţegar Radiohead gaf út Kid A eftir Ok Computer.
    Hér er lagalisti ţáttarins:
    Bon Iver / 00000 Million
    Bon Iver / 22 (Over soon)
    DeYarmond Edison / First impression
    Bon Iver / Flume
    Bon Iver / Skinny Love
    Bon Iver / For Emma /
    Kanye West feat. Bon Iver / Lost in the world
    Bon Iver / Perth
    Bon Iver / Towers
    Bon Iver / Holecene
    Bon Iver / Calgary
    Bon Iver / Beth/Rest
    Bon Iver / 10 death breasts
    Bon Iver / 33 „GOD“
    Bon Iver / 29 Strafford APTS
    Hórmónar / Frumeymd
    Hórmónar / Hamskipti
    Hórmónar / Ekki sleppa
    Hórmónar / Kynsvelt
    Bob Dylan / Most of the time
    1 hr 50 min
  • Lestarsöngvar, vögguvísur og harmakvein
    Iron Maiden kemur aðeins við sögu í Rokklandi dagsins, en sjötta platan þeirra, Somewhere in time er 30 ára um þessar mundir og sveitin ætlar að túra aðeins um Bretland og nokkur Evrópulönd næsta sumar.
    Hljómsveitin Leaves fagnar 15 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni hljóðritaði sveitin aftur fyrsta lagið sem varð til, titillag fyrstu plötunnar sem kom út árið 2002 og heitir Breathe. Við heyrum það á eftir, rifjum upp 14 ára gamalt Popplands-viðtal við Leaves, heyrum tónleikaupptökur með þeim frá Eurosonic Festival 2002 og Reykjavík Tropic Festival í Reykjavík 2006.
    Suede er að koma til Íslands í annað sinn og spila í Laugardalshöll 22. Október. Suede spilaði í Laugardalshöll á annari Airwaves hátíðinni árið 2000. Við heyrum upptökur Rásar 2 þaðan með Suede og líka 2 lög af nýju plötunni.
    Quarashi spilaði á Nasa í ágúst. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir Rás 2 og við heyrum brot af því og líka frá útgáfutónleikum Svavars Knúts sem fóru fram í Gamla bíó í otkóber í fyrra.
    Billy Bragg er kjaftfor en hjartahlýr og vinstrisinnaður Englendingur, orðinn gráhærður en í fínu formi. Hann hefur gert nokkarar fínar plötur, t.d. tvær plötur og rúmlega það reyndar með Bandarísku hljómsveitinni Wilco en þar sömdu hann og Wilco lög við texta Woody Guthrie sem engin lög voru til við. Núna í síðustu viku var hann að senda frá sér ansi merkilega plötu ? ásamt öðrum náunga sem heitir Joe Henry og meðal annars mágur Madonnu. Platan heitir Shine a Light: Field Recordings from the Great American Railroad.
    Þeir bókuðu far með járnbraut yfir Bandaríkin þver, frá Chicago yfir til Los Angeles með Texas Eagle 421 Amtrak, höfðu gítarana sína með og upptökutæki og upptökumann og tóku upp flækingslög og lestarsöngva úr Bandarísku söngvabókinni á lestarstöðvum. Heyrum af þessu í þætti vikunnar.
    Stærsta tónlistarfrétt vikunnar hér á Íslandi er sú að Björk ætlar að spila á Iceland Airwaves í Eldborg í nóvember. BJörk kemur við sögu í þætti dagsins.
    Lagalisti þáttarins:
    Björk / Lion song
    Björk / Virus
    Björk / All is full fo love
    Suede / The wild ones
    Suede / Everything will flow
    Suede / When you are young
    Suede / What i´m trying to tell you
    Leaves / Catch
    Leaves / I go down
    Leaves / Breathe
    Quarashi / Chicago
    Quarashi / Mr. Caulfield (live á Nasa)
    Quarashi / Baseline (live á Nasa)
    Billy Bragg / A new England
    Billy Bragg & Joe Henry / Rock Island line
    Billy Bragg & Joe Henry / Midnight special
    Billy Bragg & Joe Henry / Early morning rain
    Svavar Knútur / Yfir holt og yfir hæðir (Live í Gamla bíó)
    Svavar Knútur / Brot (Live
    1 hr 55 min
  • Stooges, Bítlar og nýtt og eldra frá Sviss
    Rokkland fer í víða í dag - ég segi það satt.
    Iggy Pop og Stooges koma við sögu en leikstjórinn Jim Jarmusch er búinn að gera heimildarmynd sem heitir Gimme Danger og Bíó Paradís ætlar að sýna hana innan skamms.
    Pixies koma við sögu, Muse, Paul Simon, Peter Gabriel, Van Morrison, Bob Weir úr Grateful Dead og Hope Sandoval úr Mazzy Star.
    Svi förum við til Sviss og heyrum í náunga sem heitir Julian Gross og starfar við tvær stærstu tónlistarhátíðirnar í Sviss, Label Suisse sem fór fram núna í september í Lausanne, og svo Paleo sem var í sumar. Julien segir okkur frá þessum hátíðum og við kynnumst Björk þeirra í Sviss, ungri konu sem heitir Sophie Hunger. Svissneska hljómsveitin Yello kemur líka við sögu en það var að koma út ný plata með Yello.
    Og svo eru það sjálfir Bítlarnir, en það var að koma út tónleikaplata sem hefur að geyma tónleikaupptökur frá 1964 og 1965 sem voru gerðar í Hollywood Bowl. HLuti af þessum upptkum kom út á einu tónleikaplötu Bítlanna árið 1977, en hún hefur aldrei verið gefin út aftur, fyrr en núna og með nokkrum aukalögum. Tilefnið er heimildarmynd sem heitir Eight days a week ? the touring years og var frumsýnd í september.
    Hér er lagalisti þáttarins:
    The Beatles / She loves you
    The Beatles / Can´t buy me love
    The Beatles / A hard days night
    The Beatles / I wanna hold your hand
    Iggy & Stooges / No Fun
    Utangarðsmenn / I wanna be your dog
    Aaron Lee Tasjan / Little movies
    Pixies / Classic Masher
    Pixies / All i think about now
    Hope Sandoval & The Warm Inventions feat. Kurt Vile / Let me get there
    Bob Weir / Lay my Lily down
    Pal Simon / The Warewolf
    Van Morrison / Let it rhyme
    Van Morrison / Every time i see a river
    Sophie Hunger / Mad miles
    Sophie Hunger / Superman woman
    Sophie Hunger / Die ganze welt
    Patent Ochsner / Scharlachrot
    Muse / Mercy
    Yello / Limbo
    Yello / 30.000 days
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners