Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Lennon og Yoko, Biggi Hilmars; U2 og Grasasnar!
    Í Rokklandi sem byrjar kl. 16.05 í dag (sunnudag) er boðið upp á bæði jólamúsík ? og heils-árs músík. Biggi Hilmars ? Biggi úr Ampop var að senda frá sér lagið Hurt eftir Trent Reznor sem Johnny Cash gerði að sínu fyrir nokkuð löngu. Hann segir okkur hvers vegna og við heyrum lagið. Steinar Berg sem er einn MESTI tónlistarútgefandi Íslands áratugum saman, en ferðaþjónustubóndi í Borgarfirði í dag í Fossatúni þar sem hann er með heilmikla útgerð kemur við sögu. Hann er nefnilega líka í hljómsveit sem heitir Grasasnar, og Grasasnarnir voru að senda frá sér plötu sem heitir Prine og inniheldur lög eftir bandaríska söngvaskáldið John Prine sem lést af völdum Covid í fyrra. Steinar heimsótti mig á Akranes í vikunni og við spjölluðum aðeins saman um lífið og tilveruna og plötuna og John Prine. Og svo er það Lennon ? það voru 41 ár á miðvikudaginn síðasta frá því hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York. Við setjum fókusinn á John Lennon í dag og förum hingað og þangað með Yoko Ono og fleirum. Og svo er líka smá U2 horn, en U2 var að senda frá sér 5 ?jóla?-laga EP núna í gær.
    1 hr 50 min
  • Rokkland er Rokland
    Það er vont veður í Rokklandi í dag - en góð stemning og jólalög og heilsárs í bland. Við minnumst aðeins Rúna Júl, en hann lést þennan dag árið 2008. Beirut kemur við sögu, Ragga Gröndal, KK og Ellen og Maggi Eiríks, Bubbi, Eddie Vedder, Sigga og Siggi, Guðrún Árný, Árný Margrét. Taylor Swift, Spoon, Low, Moscow Apartments, Norah Jones, Kristjana Stefáns, HIldur Vala ofl.
    1 hr 55 min
  • Nýmeti frá ungum og eldri á jólaföstu
    Í Rokklandi dagsins verður boðið mestmegnis upp á nýja tónlist héðan og þaðan. Bruce Springsteen á tónleikum, lög af nýrri kóverlagaplötu frá Deep Purple. Við heyrum í hinum 17 ára Tom A. Smith, í Elbow, Adele, Taylor Swift, Chris Stapleton, MØ frá Danmörku, Ane Brun frá Noregi, Waterboys, Damon Albarn, Courtney Barnett, Eliza and the Delusionals frá Ástralíu og Nick Cave, Bears Den, og Gumma Jóns og Jóa Sig, Niall Horan og Anne-Marie t.d.
    1 hr 55 min
  • Abba og War on Drugs
    Í Rokkland dagsins skoðum við tvær nýjar plötur. Í seinni hlutanum er það nýja platan frá Bandarísku hljómsveitinni The War on Drugs. Platan sem er fimmta plata sveitarinnar heitir I don?t live here anymore og er alveg stórfín eins og megnið af því sem þessi skemmtilega hljómsveit hefur gert. En í fyrri hlutanum skautum við svo hratt yfir feril ABBA og heyrum svo nokkur lög af nýju plötunni þeirra, Voyage, sem er fyrsta platan þeirra í 40 ár. Hún kom út 5. Nóvember og fór beinustu leið í toppsæti vinsældalista um allan heim. Í Bretlandi, Írlandi, Austurríki, Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Tékklandi og svo framvegis. Hún náði hæst í annað sætið í Bandaríkjunum en engin af gömlu plötunum náði svo hátt á vinsældalistanum þar. Óttarr Proppé flytur okkur stuttan ABBA pistil í tilefni dagsins.
    1 hr 55 min
  • Stutt og stöngin inn
    Rokkland er stutt í dag vegna landsleiks í fótbolta. Ísland sækir Norður-Makedóníu heim í lokaleik undankeppni HM 2022. Leikurin verður sýndur á RÚV og lýst á Rás 2. Upphitun í HM stofunni hefst klukkan 16:30 á RÚV fyrir þá sem ekki vilja missa af því, en ég ætla ég að spila nýja músík úr ýmsum áttum fram að leik. Áfram Ísland!
    45 min
  • My Head Is An Animal 10 ára
    Um þessar mundir eru tíu ár frá því að fyrsta plata Of Monsters and Men kom út. Af því tilefni er komin út afmælisútgáfa af plötunni með tveimur áður óútgefnum lögum ? og ekki bara einhverjum lögum heldur eru þetta 2 af þeim þremur lögum sem hljómsveitin flutti í M?usíktilraunum árið 2010 þegar þau sigruðu einmitt í þeirri merkilegu og lífseigu keppni. Hljómsveitin fagnar líka afmælinu með fernum tónleikum á Gamla Bíó núna á næstu dögum, en þar hélt sveitin einmitt sína fyrstu alvöru tónleika fyrir áratug. Og í tilefni af afmælinu ætlum við að hlusta á alla plötuna með þeim Ragga og Nönnu liðsmönnum OMAM. OMAM er ein allra vinsælasta og þekktasat hlómsveit íslenskrar tónlistarsögu og OMAM er eina íslenska hljómsveitin/listamaðurinn sem hefur komið þremur plötum á topp 10 á vinsældalistanum í Bandaríkjunum. Allar þrjár plötur sveitarinnar hana náð inn á topp 10 þar. Þetta er hæfilikaríkt, duglegt og gott fólk sem við getum verið stolt af.
    1 hr 55 min
  • Coldplay og Nick Cave & Bad Seeds
    Fyrir viku kom út safn laga með Nick Cave & The Bad Seeds ? safnplata ? tvöfaldur diskur, 27 lög sem heitir B- sides and rarities part II. Þetta eru upptökur með Cave og Bad Seeds frá árabilinu frá 2005 og 2020 sem hafa ekki komið út fyrr en núna ? hvalreki fyrir aðdáendur Nick Cave og framhald af B-Sides and Rarities sem kom út 2005. Við heyrum nokkur lög af þessu nýja Cave safni í þættinum auk þess sem Cave og Warren Ellis, hans hægri hönd í Bad Seeds og öðru undanfarin ár, segja okkur frá þessu safni. Við heyrum líka aðeins í Brandi Carlile, David Gahan úr Depeche Mode, War on Drugs, OMAM, og endum svo á splunkunýju en eldgömlu lagi með Abba. En svo var líka að koma út plata með Coldplay sem við skoðum aðeins í þættinum. Platan sem kom út 15. október sl. fór beinustu leið á toppinn á Breska vinsældalistanum. en allar 9 plötur Coldplay hafa náð alla leið á toppinn heima í Bretlandi og selst líka vel um allan heim. Platan heitir Music of the Spheres og hún er sú plata sem hefur selst mest og best á árinu í Bretlandi. 85% af sölunni enn sem komið er er alvöru sala ? niðurhal eða geisladiskar og vinyll. Við skoðum plötuna og Arnar Eggert Thoroddsen sendir okkur pistil og segir okkur hvað honum finnst.
    1 hr 55 min
  • Mono Town og fleira
    Í Rokklandi vikunnar heyrum við allskonar músík. Í seinni hlutanum koma þeir í heimsókn þeir Börkur og Daðir úr hljómsveitinni Mono Town, en það var að koma út plata með Mono Town sem heitir Time vol. 1 og hún er fyrsta platan þeirra í 7 ár. Þeir laumuðu henni bara út í rólegheitum án allra láta en góð músík felur sig aldrei lengi ? þetta er stórskemmtileg plata hjá þeim. Við heyrum nokkur lög af henni á eftir og í þeim bræðrum. Þeir segja okkur auðvitað frá plötunni, listinni og lífinu. Við heyrum svo nýtt og gamalt í bland hérna í fyrri hlutanum; Elvis Costello, Elvis Presley, The Pogues, The Weather Station, Wallflowers, Nick Cave og Bad Seeds, Elbow og Cat Power.
    1 hr 55 min
  • Einar Þór og Brandi Carlile
    Í Rokklandi í dag kemur í heimsókn hann Einar Þór Jóhannsson gítarleikari úr Dúndurfréttum, en hann var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu. Hún heitir Tracks og er dálítið sérstök, hljómar eins og árið sé 1985, eða 1987 jafnvel. Við heyrum líka nýja músík með Neil Young og Crazy Horse af væntanelgri plötu. Líka nýtt frá Tori Amos, Robert Plant og Alison Krauss, og Nick Cave og Bad Seeds og svo verður Bandaríska tónlistarkonan Brandi Carlisle í brennidepli. Hún var að senda frá sér plötu sem mér þykir áhugaverð. Hún heitir In these silent days og er sjöunda stóra platan hennar. Hún fór hæst í 11. sæti bandaríska vinsældalistans, en hún fór á toppinn bæði á folk-lista Billboard og á rokklistanum. Brandi Carlile er hvít ? fertug. Hún er kraftmikil kona og frábær tónlistarkona. Hún er lesbía og hún er ein af konunum í ofur-kántrí-sveitinni The Highwomen. Hún hefur þrettán sinnum verið tilnefnd til Grammy verlauna.
    1 hr 55 min
  • Háskólabíó 60 ára og Cinnamon Fields Bony Man
    Háskólabíó fagnaði 60 ára vígsluafmæli núna í vikunni sem leið ? þetta frábæra tónleika og Bíóhús sem ábyggilega flestir Íslendingar hafa notið þess að sitja í í gegnum tíðina, á tónleikum, ráðstefnum eða á bíósýningum. Ég á ótrúlega margar góða minningar úr þessu góða húsi og þið öll örugglega líka. Og ég ætla að rifja upp og spila nokkrar vel valdar upptökur úr safni Rásar 2 úr þessu frábæra tónleikahúsi sem lengi var stærsti samkomusalur okkar Íslendinga. Við heyrum aðeins í Rolling Stones og Sting og tónlistarmaðurinn Bony Man kemur í heimsókn. Rás 2 hefur verið að spila undanfarið lag með honum sem heitir Better off. Maðurinn á bakvið Bony Man er 42 ára gamall íslenskukennari sem heitir Guðlaugur og hann syngur á ensku, og gerir það vel. Fyrsta og eina platan hans kom út núna í september, heitir Cinnamon Fields. Við kynnumst Bony Man í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners