Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Ólafur Arnalds
    Gestur Rokklands í dag er Ólafur Arnalds sem er orðinn stórt nafn í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann hefur unnið til fjölda veðlauna víða um heim og núna í ár var hann tilnefndur til Grammy verðlauna fyrir tvö lög af nýjustu plötunni seinni, Some kind of peace, og hann er að fara núna loksins að fylgja henni eftir með tónleikaferðalagi um allan heiminn. Ólafur hefur tónleikaferðalag sitt um heiminn með tónleikum í Háskólabíói, 23. maí næstkomandi. Það eru þrjú ár síðan Ólafur kom síðast fram á tónleikum á Íslandi en tónleikarnir í Háskólabíó marka upphafið af langri tónleikaröð og eru þeir fyrstu af um 50 í mörgum af helstu tónleikahöllum heims, í Norður Ameríku og Evrópu, s.s. Walt Disney Concert Hall í Los Angeles, Hammersmith Apollo í London og Tempodrom í Berlín.
    1 hr 55 min
  • Valur Gunnarsson og Úkraína
    Úkraína og tónlist frá Úkraínu er í brennidepli í Rokklandi dagsins. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, varð á föstudaginn fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn til að ávarpa Alþingi Íslendinga. Hann sagði baráttu Úkraínu gegn innrás Rússa snúast um frelsið: ?Þetta land sem við eigum með réttu, og um menningu okkar.? Íslendingar og Úkraínumenn byggju við endimörk Evrópu og við ólík skilyrði ?en hjörtum okkar svipar saman, bæði í Kænugarði og í Reykjavík. Það er hægt að sjá og heyra ávarp Zelenskys á ruv.is Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur er gestur Rokklands í dag. Hann hefur dvalið talsvert í bæði Rússlandi og Úkraínu og ein mest lesna bókin á Íslandi í dag er bókin hans Bjarmalönd sem er í senn upplýsandi, stórfróðleg og bráðskemmtileg svipmynd af þessum heimshluta sem fjallað er um í næstum hverjum fréttatíma um þessar mundir. EBU sendi á dögunum lista með 60 lögum sem Úkraínska Þjóðin valdi að tilstuðlan forsetafrúar Úkraínu, Olenu Zelensku, og sendi til útvarpsstöðva um allan heim í þeirri voru að þær myndu spila eitthvað af þeim ? og það er það sem við ætlum að gera í dag, ég og Valur Gunnarsson og ræða í leiðinni um þetta hræðilega stríð í Úkraínu.
    1 hr 55 min
  • Meira Gus Gus og Andrea Bocelli
    Magnús R. Einarsson fyrrum tónlistarstjóri Rásar 2 er gestaumsjónarmaður í Rokklandi í dag. Hann er með umfjöllun um ítalska stórsöngvarann Andrea Bocelli sem heldur tónleika í Kórnum í Kópavogi laugardaginn 21. maí nk. Bocelli þykir vera með eina fallegustu rödd heims og hefur selt yfir 90 milljónir platna á heimsvísu. Celine Dion hefur sagt að ef guð hefði söngrödd, þá myndi hún hljóma eins og röddin hans Bocelli. Magnús náði í Bocelli í síma á dögunum og við heyrum Magnús tala um og við söngvarann. Lykke Li, Florence + The Machine, Sting, Ry Cooder, Elvis og fleiri koma líka við sögu. Og Gus Gus. Biggi Veira ? Birgir Þórarinsson sem er sá eini sem hefur verið í Gus Gus allan tímann, allt frá byrjun árið 1995 til dagins í dag var gestur þáttarins síðasta þáttar. Við ræddum um allt og ekkert og allt mögulegt, en við vorum ekki alveg búnir þegar tími var úti og þess vegna er smá framhald í dag.
    1 hr 55 min
  • Gus Gus í 27 ár
    Hljómsveitin - fyrirbærið - fjöllista-hópurinn - Gus Gus fagnaði 25 ára afmæli með fernum tónleikum í Hörpu um daginn og það var algjör snilld sögðu þeir sem upplifðu það.
    Reyndar er Gus Gus 27 ára en það dróst á langinn að halda upp á afmælið sem var 2020 - Gus Gus varð til 1995 og er jafngömul Rokklandi.
    Gus Gus hlaut á dögunum Íslensku tónlistarverðlaunin í fyrsta skipti - fyrir Popp plötu ársins. Það var kominn tími til, platan er frábær ? kannski besta plata Gus Gus.
    Gestur Rokklands í dag er Biggi Veira ? Birgir Þórarinsson sem er sá eini sem hefur verið í Gus Gus frá byrjun. Margir hafa komið og farið og svo komið aftur, og það voru margir sem komu aftur á afmælistónleikunum enda allt í mesta bróðerni - svona yfirleitt. Ég ætla að spyrja um allskonar í dag og Biggi ætlar að segja frá. Stay the ride -
    1 hr 50 min
  • Vintage Caravan, Trúbrot og Lifun + Úkraína
    Í Rokklandi í dag ætla ég t.d. að skjótast áleiðis til Úkraínu með Julian Lennon, U2 og Pink Floyd, en Pink Floyd sendi frá sér fyrsta nýja lagið í 28 ár í vikunni, lag til styrktar baráttunni gegn Rússnesku innrásinni í Úkraínu. Og Bono og Edge úr U2 tóku líka upp lag í vikunni fyrir Úkraínu, og Julian Lennon. Við skoðum það og heyrum í dag. Við heyrum í Adda í Sólstöfum, en hann og Ragnar Sólberg voru að senda frá sér lag saman undir nafninu Isafjord og það er plata á leiðinni. Við heyrum lagið sem heitir Njálssaga sem er undir áhrifum frá Neil Young. En við byrjum á gærkvöldinu sem ég og mamma mín og c.a. 1400 aðrir vörðum í Eldborg í Hörpu á 50 ára afmælishátíð Lifunar með Trúbroti. Á sviðinu voru Gunnar Thordarson og Magnús Jón Kjartansson úr Trúbroti, og Shady Owens. Með þeim voru svo Jón Ólafsson á Hammond, Pétur Grétarsson á slagverk, Matthías Stefánsson á gítar, fiðlu, mandolín ofl og Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari sem var frábær viðbót, og svo strákarnir, ungu mennirnir, kjarninn í bandinu. Rokksveitin The Vintage Caravan. Stefanía Svavarsdóttir og Stefán Jakobsson sungu megnið af prógramminu, sem var Lifun í heild sinni eftir hlé, og hin og þessi Trúbrotslög í fyrri hlutanum. Shady söng líka helling, flaug sérstaklega frá Englandi þar sem hún býr til að taka þátt í þessu. Og hún var alveg æðisleg, algjör stjarna! Hún var reyndar búin að vera lasin í vikunni, fékk flensu eftir fyrstu æfingu og það leit út fyrir að hún yrði lítð sem ekkert með, en sem betur fer var hún með, hún var æðisleg. Það geislaði af henni og hún söng af miklu öryggi og það var hrikalega gaman að sjá hana og heyra og þær saman, hana og Stefaníu Svavarsdóttur sem var líka frábær og glæsileg eins og Stebbi Jak sem bar hitann og þungann af söngnum ásamt Stefaníu. Og þetta var í einu orði sagt algjörlega frábært, það var svo gaman að sjá og heyra Vintage Caravan keyra þetta áfram með öllu sínu stuði, einlægri spilagleði og fagmennsku. Ég hef nokkrum sinnum heyrt Lifun og auðvitað aðra Trúbrotsmúsík flutta á sviði, en aldrei svona. Þessir strákar eru með þessa músík í blóðinu, kunna þetta út og inn, afturábak og áfram og ég var eiginlega hlæjandi allan tímann, þetta var algjörlega æðislegt. Allt um þetta og fleira - t.d. smá Rokk í Reykjavík í Rokklandi í dag.
    1 hr 55 min
  • Músíktilraunir í 40 ár
    Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram í gær í Norðurljósum í Hörpu og það var ung kona sem notar listamannsnafnið KUSK (Kolbrún Óskarsdóttir) sem kom, sá og sigraði ? og það er í fyrsta sinn sem einstaklingur sigrar í þesari gömlu og rótgrónu ?hljómsveita?keppni sem fagnar 40 ára afmæli í ár. Við heyrum í seinni hluta Rokklands í dag í KUSK, og líka hljómsveitunum sem lentu í 2. og 3. sæti ? rapparanum Gunna Karls og hljómsveitinni Sameheads, og líka hljómsveit fólksins ? Bí Bí og Joð sem var valin í símakosningu í gær. En í fyrri hlutanum ætlum við að skauta yfir sögu Músíktilrauna, ég og Arnar Eggert Thoroddsen og Árni Matthíasson sem hafa verið í dómnefnd Músíktilrauna lengur en allir aðrir ? og Árni hefur t.d. verið formaður dómnefndar svo lengi að það man enginn lifandi maður hversu lengi. Dúkkulísurnar koma við sögu, og Vök, Of Monsters And Men, Botnleðja, Kolrassa Krókríðandi, XXX Rottweilerhundar og fleiri Músíktilraunabönd. Lengi lifi Músíktilraunir!
    1 hr 55 min
  • Með Hljómum og fleirum á Bítlaslóðum í Liverpool 2008
    Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 8. Júní 2008. Þetta er einn skemmtilegasti þáttur sem ég hef gert (finnst mér) og það var allt skemmtilegt við það. Þátturinn segir frá pílagrímsferð íslenskra tónlistarmanna til Bítla-borgarinnar Liverpool í lok maí 2008. Fararstjóri var Jakob Frímann Magnússon sem þá var formaður FTT (Félag tónskálda og textahöfunda) sem stóð fyrir ferðinni í tilefni af 25 ára afmæli félagsins. Hópurinn (ég var með) fór í Magical mystery tour- Bítla-skoðunarferð um Liverpool. Á Sgt. Peppers sjó í Cavern klúbbnum. Það var hátíðar-kvöldverður á Hard Days Night ? Bítla-hótelinu í Liverpool þar sem Alan Williams, fyrsti umboðsmaður Bítlanna var heiðursgestur. Svo voru tónleikar með Paul McCartney á Anfield Road, og síðast en ekki síst - tónleikar með sjálfum Hljómum í Cavern klúbbnum, 44 árum eftir að þeir spiluðu þar fyrst - árið 1964. Meðal þeirra sem koma við sögu í þættinum eru auk Jakobs, Bjartmar Guðlaugsson, Þorsteinn Eggertsson, Rúnar Júlíusson, Júlíus Guðmundsson, Jakob Bjarnar Gretarsson, Gunnar Thordarson, Óttar Felix Hauksson, Tryggvi Jónsson, Þorgeir Ástvaldsson, Sverrir Stormsker, Tryggvi Hübner, Edwyna skólasystir Lennons, Grímur Atlason, Gísli Helgason og ýmsir fleiri. Þetta er þáttur fyrir alla Bítla-aðdáendur og marga fleiri.
    1 hr 55 min
  • Lay Low, Sinéad O?Connor
    Gestur Rokklands í dag er tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir - Lay Low. Hún sló hálfpartinn óvænt í gegn árið 2006 Þegar fyrsta platan hennar kom út, platan Please don?t hate me. Síðan hafa árin liðið, plöturnar hennar eru orðnar sjö talsins, með tveimur tónleikaplötum og einni leikhúsplötu, en í dag eru liðin 9 ár frá því Lay Low sendi síðast frá sér plötu. Hún vinnur ekki mjög hratt en alltaf þegar hún sendir eitthvað frá sér þá vitum við af því ? það vekur athygli, og oftar en ekki slær það í gegn. Hún gerði í fyrra lag mjög vinsælt með Eyþóri Inga, hún er stanslaust að syngja Þannig týnist tíminn sem var valið lag aldarinnar í samnefndum sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum, en hún söng þetta litla fallega lag eftir Bjartmar Guðlaugsson inn á plötu með Ragga Bjarna fyrir áratug. Það er eins og það sé einhver stemning í kringum Lay Low. Hún er einhvernveginn á réttum stað á réttum tíma og nú er nýjasta ævintýrið ? Júróvision lagið sem hún samdi. Lagið Með Hækkandi sól sem Systur - Sigga, Beta og Elin ætla að syngja í Torino í vor. Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival 2022 sem verður sett í Reykjavík eftir helgi og Sineád O?Connor koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • Damon Albarn, Trúbrot ofl.
    Í Rokklandi í dag er aðallega komið við á tveimur stöðum. Í Keflavík hjá Rúnari Júl, Trúbroti og Júlíusi Frey syni Rúnars. Hann var að senda frá sér lag og segir okkur frá því. Óskar Logi Ágústsson úr Vintage Caravan segir okkur frá Lifunar-tónleikunum sem fara fram í Eldborg 8. Apríl nk. En þar spilar Vintage Caravan Lifun og aðra Trúbrots-músík með Gunna, Magga og Shady úr Trúbroti. Pétur Grétarsson, Stefanía Svavars, Jón Ólafsson og Stebbi Jak eru líka með. Svo er það söngvarinn, lagahöfundurinn, íslendingurinn og tónskáldið Damon Albarn sem flutti nýja verkið sitt The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows í heild sinni í Eldborg núna á föstudaginn - og það voru fyrstu tónleikarnir hans á íslandi í 25 ár, eða síðan Blur spilaði í Laugardalshöll á hátindi ferilsins. Damon Albarn er auðvitað söngvarinn í hljómsveitinni Blur, hann er líka Gorillaz og svo margt margt annað. Ég geng svo langt að segja að að Damon sé áhrifamesti tónlistarmaður sinnar kynslóðar í Bretlandi. Hann er búinn að eiga hús í Grafarvogi í 20 ár eða þar um bil ? og búinn að vera hérna mikið ? og sífellt meira á undanförnum árum og nýja platan hans The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows - er innblásinn af náttúru Íslands og landslagi. Platan ? eða þetta verk var skrifað og samið að fullu á Íslandi. Damon sótti svo óvænt um íslenskan ríkisborgararétt og fékk hann í fyrra. Damon Albarn er ss. íslendingur. Rokkland ræddi við hann í síma í vikunni og við heyrum það í Rokklandi í dag og lög af nýju plötunni.
    1 hr 55 min
  • Mark Lanegan RIP, Erpur og Jethro Tull
    Tónlistarmaðurinn Mark Lanegan, fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Screaming Trees lést heima hjá sér í Killarney á Írlandi 22. febrúar sl. hann var 57 ára gamall. Dánarorsök liggur ekki fyrir en hann fór ekki alltaf vel með sig. Hann drakk mikið þegar hann var yngri og var um tíma heimilislaus heróínsjúklingur. En hann er líka einn af forvígismönnum grugg-rokksins sem varð til á Seattle svæðinu í Bandaríkjunum fyrir rúmum 30 árum. Hann var ein af fyrirmyndum Kurts Cobain og það var Courtney Love ekkja Kurts sem kom Mark í meðferð á sínum tíma. Hún borgaði fyrir hann og leigði í framhaldinu fyrir hann íbúð ? hann var allslaus. Hann náði sér á strik og lifði nokkuð góðu lífi síðustu árin. Hann var aktífur, gaf út plötur og úraði. Gaf út tvær ævisögur 2020 og 2021. Hann var líka eftirsóttur gestasöngvari og söng og vann með fólki eins og Nick Cave, Moby, Unkle, Pj. Harvey, Soulsavers, Tinariwen, Neko Case, Manic Street Preachers, Marianne Faithful ofl. Lanegan kom til Íslands í nóvember 2013 og hélt tónleika í Fríkirkjunni. Rás 2 hljóðritaði tónleikana. Í þættinum í dag heyrum við brot frá tónleikunum, heyrum brot af viðtali sem Matthías Már Magnússon tók við hann á KEX-hostel daginn eftir tónleikana. Daníel Hjálmtýsson sem stóð að tónleikunum minnist vinar síns Marks, Magni Ásgeirsson og Hannes Friðbjarnarson gera það líka, sem og Kevin Cole útvarpsmaður hjá KEXP í Seattle. Lanegan dansaði oft við dauðann, var í dauðadái á sjúkrahúsi á sínum tíma í 10 daga eftir eiturlyfjatripp. Hann fékk Covid 2020 og það gekk næstum af honum dauðum ? hann fór alla leið í öndunarvél. Og núna í fenbrúar hafði dauðinn svo betur. Við heyrum í Erpi Eyvindarsyni ? Blaz Roca í þættinum í dag og heyurm nýja lagið hans; Slaki babarinn, þar sem Egill Ólafsson er gestur - og Kristján Sigurjónsson rifjar upp plötu Jethro Tull; Thick as a brick, sem átti 50 ára afmæli í vikunni.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners