Rokkland

Rokkland

By RÚVMusic
Download on the App Store

Rokkland episodes

  • Emiliana Torrini, Bubbi og 2 af 9 lífum, U2
    Emiliana Torrini er gestur Rokklands í dag en hún var að senda frá sér plötu sem heitir Racing the storm með belgísku hljómsveitinni The Colorist Orchestra sem hún hefur unnið talsvert með undanfarin ár og spilað með á Íslandi t.d. Við spjöllum saman og kynnumst nýju plötunni auk þess sem við rifjum upp gamla viðtal sem Lísa Pálsdóttir tók við Emiliönu 1999. Bubbi kemur aðeins við sögu og Rúni Júl, en nú er búið að sýna söngleikinn um Bubba - 9 líf í 3 ár. Við rifjum við uppviðtal við Bubba frá því fyrir daga Rásar 2 ? frá 1982 og líka heimsókn GCD í Std. 12 árið 1993 þegar Eva Ásrún Albertsdóttir tók á móti Bubba og Rúnari, Begga og Gulla Briem. Og nýja U2 platan sem kom út á föstudaginn kemur aðeins við sögu, platan Songs of surrender sem hefur að geyma 40 áður útgefin U2 lög í nöktum kammerútsetningum c.a.
    1 hr 55 min
  • Jack Magnet, Langi Seli og Skuggarnir og Oscars-lögin
    Í Rokklandi í dag skoðum við lögin sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár, besta lag frumsamið fyrir kvikmynd en Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt í Los Angeles. Jakob Frímann Magnússon kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og segir okkur frá plötunni Jack Magnet sem kom út árið 1981 og hann ætlar að flytja í heild sinni ásamt frábærri hljómsveit í Bæjarbíói 25. mars nk. Og svo er það hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir sem fór næstum alla leið í Eurovison núna um síðustu helgi, lentu í öðru sæti á eftir söngkonunni Dilja sem fer til Liverpool fyrir okkar hönd. Við rifjum upp þegar hljómsveitin heimsótti std 12 árið 2019.
    1 hr 55 min
  • Kentár, Heidrik, Cat Stevens, Blood Harmony ofl.
    Í Rokklandi dagsins verður boðið upp á músík með ýmsum, fólki eins og The National, Nönnu, Cat Stevens, George Harrison, U2, HEIDRIK sem syngur Björk, Blood Harmony úr Svarfaðardal, Gryff Rhys frá Wales, Herbert Guðmundsson úr Reykjavík ? og svo koma þeir í heimsókn þeir Sigurdur Sigurdsson og Pálmi Sigurhjartarson úr blús-rokk-sveitinni Kentár sem ætlar að spila í vikunni vegna þess að plöturnar tvær; Blúsdjamm (1992) og Blús á Grandrokk (2003) eru komnar út á streymiveitum í fyrsta sinn.
    1 hr 55 min
  • Saga Jeff Buckley og plötunar Grace
    Farið yfir sögu Jeff Buckley og fjallað um Grace, einu breiðskífu hans. Einnig eru leiknar upptökur sem gerðar voru á heiðurstónleikum sem fóru fram á Gauki á Stöng í lok árs 2014. Meðal þeirra sem fluttu þar lög eftir Jeff Buckley voru Valdimar Guðmundsson, Eyþór Ingi og fleiri. Umsjón: Matthías Már Magnússon
    1 hr 55 min
  • Michael Head, Björk 2003, Árný Margrét og Rihanna
    Plata ársins 2022 hjá Breska tónlistartímaritinu Mojo heitir Dear Scott og tónlistarmaður heitir Michael head ? Michael Head & The Red Elastic Band. Hann er 61 árs fyrrum heróínfíkill. Við kynnumst honum og plötunni í þættinum. Við heyrum líka í Árný Margréti á Eurosonic Festival sem fór fram í janúar. Rifjum upp viðtal við Björk frá 2003 heyrum í Rihönnu á Superbowl.
    54 min
  • Spænska bylgjan, Ólöf Arnalds, Burt Bacharach og Ívar Bjarklind
    Í Rokklandi dagins verðum við að mestu á Spáni með Cesar Andion frá Live Nation og Spanish Wave á Spáni (útflutningsskrifstofu spánskrar tónlistar) og heyrum fullt af tónlist frá Spáni. Við ræddum saman á Eurosonic Festival í Hollandi í janúar. Ólöf Arnalds er með söfnun í gangi á Karolifa Fund fyrir nýrri plötu, Tár í morgunsárið. Við heyrum 2 lög sem verða að finna á plötunni. Ég minnist Burt Bacharach sem lést í vikunni sem leið og heyrum brot af viðtali við hann frá 2016 Þegar hann kom til Íslands og spilaði í Eldborg í Hörpu. Í þáttarlok skoðum við svo aðeins Grammy verðlaunin og bestu kántríplötuna.
    1 hr 55 min
  • Jeff Beck og Finnur Jóhannsson
    Í Rokklandi dagsins rifjum við upp viðtal við Jeff Beck úr Rokklandi frá því fyrir áratug þegar þessi mikli meistari rafgítarsins kom til Íslands í fyrsta og eina skiptið. Við spjölluðum um Yardbirds, Rod Stewart, Rolling Stones, Led Zeppelin, um gildi þess að æfa sig og hvers vegna hann notaði ekki gítarneglur. Úför hans fór fram á föstudaginn í Wallington í Surrey á Englandi ? sama dag og Magnús Finnur Jóhannsson, Finni söngvari úr hljómsveitinni Eik var jarðsunginn í Reykjavík. Ég ætla að minnast Finna aðeins í þætti dagsins en Coldplay í Saturday Night Live í gær, írska söngvakeppnin á föstudaginn ofl. koma líka við sögu.
    1 hr 55 min
  • 1300 sinnum Rokkland
    Rokkland dagsins er númer 1300 í röðinni. Fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 1995 og þættirnir eru flestir til.
    Í dag heyrum við brot úr nokkrum gömlum þáttum. Við byrjum á upphafi fyrsta þáttarins og förum svo hingað og þangað. Til Liverpool, Memphis, Á Glastonbury og Roskilde, á Stokkseyri, í símann, í Hörpu, í Laugardalshöll og þangað sem villiblómin vaxa svo eitthvað sé nefnt.
    1 hr 50 min
  • Jeff Beck, Isafjørd, P.I.L. og Eurovison og U2
    Í Rokklandi í dag er tveggja manna hljómsveitin Isafjørd atkvæðamest en Isafjørd samanstendur af tónlistarmönuunum Aðalbirni Tryggvasyni og Ragnari Sólberg, Adda úr Sólstöfum og Ragnari úr Sign. Þeir eru búnir að taka upp og gefa út plötu sem heitir Hjartastjaki undir nafninu Isafjørd en þeir eru báðir ættaðir frá Ísafirði. Tónlistin minnir á Sólstafi á Köflum, stundum á Sign, en líka á Sigur Rós t.d. stundum. Addi segir frá í Rokklandi í dag og við heyrum nokkur lög af plötunni. En það er líka ýmislegt annað á dagskrá, t.d. U2 sem sendi í vikunni frá sér fyrsta lagið af 40 af plötunni Songs of Surrender sem kemur út í mars og hefur að geyma 40 gömul U2 lög í nýjum búningi. Fyrsta lagið er komið, Pride in the name of love, og sitt sýnist hverjum. Snilld segja sumir og aðrir glatað og allt Þar á milli. Sumum er svo auðvitað alveg sama. Svo er það Johnny Rotten úr Sex Pistols. Hann ætlar að reyna fyrir sér í Eurovision í ár fyrir Íra. Hann er Íri eins og þeir Bono og félagar. Og svo minnist ég líka Jeff beck lítillega en hann lést í vikunni, einn mesti gítarleikari sögunnar. Við heyrum meðal annars brot úr viðtali við hann úr Rokklandi frá 2013 þegar hann kom hingað til Íslands í eina skiptið og spilaði.
    1 hr 55 min
  • Árið 2022 - brot úr ýmsum þáttum
    Árið 2022 er liðið og aldrei það kemur til baka. Í fyrsta Rokklandsþætti nýs árs rifja ég upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum ársins 2022. Þeir sem koma við sögu eru: ABBA U2 Eivor Una Torfa Stína Ágúst Egill Ólafsson Herbert Guðmundsson Árni Matthíasson Arnar Eggert Thoroddsen Prins Póló ofl.
    1 hr 55 min

About Rokkland

From the publisher's feed

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

More shows like Rokkland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners