
Sign up to save your podcasts
Or


Stútfullur þáttur í dag með Steinar Arons loksins mættann.
Tommi henti í MVP ladder bæði í Fyrstu og Úrvalsdeild, Steinar Power Rankaði efstu tværi deildir, nokkur stór mál voru rædd og að sjálfsögðu næsta umferð rædd.
Í upphafi þáttar eru 90 sek hljóðlaus. Við hvetjum alla til að fara í Fitness Sport og kaupa sér Test Surge Testabooster.
Gunnar Bjartur fór með þáttastjórnendum yfir bestu Íslensku Big3 deildarinnar, hnoðað var í You Go Airport lista eftir eina umferð.
Við að sjálfsögðu skoðuðum næstu umferð og fundum lausnir fyrir Tindastól á meiðslum Drungilas og vöntun Kane fyrir Grindavík.
Menn skiluðu inn lokaspám fyrir deildina og rýndu í vonbrigði og allskonar fyrir tímabilið sem hefst á morgun.
Þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur, Jóhann Ólafsson, var á línunni og skoðaði voru að sjálfsögðu allir leikirnir í fyrstu umferð.
Geir Helagson kom til okkar og fór yfir 1. deildina.
Ein umferð er búin og hægt að "overreacta" af alvöru.
Biðjumst afsökunar á hversu seint þátturinn kemur inn en hér er hann.
Landsbyggðin tekin fyrir í þætti kvöldsins. Gestur í Run and Gun studio er Sauðkræklingurinn Halli Karfa.
Rætt er við Arnar Guðjónsson þjálfara Tindastóls og rýnt í liðin fyrir komandi tímabil.
Steinar Arons kíkir í Run and Gun og rýnir í liðin fjögur sem eru á Reykjavíkursvæðinu. Valur, ÍR, bikarmeistara KR og Ármenningar sem kláruðu The Great Escape í fyrra.
Manni Vill mætti og var farið yfir Keflavík, Njarðvík og Íslandsmeistarana í Grindavík. Rætt var við Rúnar Ingar og Daníel Guðna þjálfara Njarðvíkur og Keflvíkinga en spjallið við Jóhann Ólafsson þjálfara Grindavíkur fáum við í næstu viku í þriðja þætti!
Fyrsti þáttur tímabilsins. Hitað verður upp öll miðvikudagskvöld í beinni útsendingu þar til Bónus deildin hefst í október. Í kvöld verður rýnt í tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Álftanes og Stjörnuna.
Við heyrum í þjálfurum beggja liða og ræðum málin með Gunnari Bjarti og Slæma í settinu.
Það er komið að því að taka stöðuna á öllum liðum efstu deildar fyrir komandi tímabil. Margir alvöru bitar eru búnir að skipta um lið, Run and Gun teymið fékk þjálfara Blika Hrafn Krisjánsson til að koma í þáttinn.
Á tveimur klukkutímum var skipt liðum deildarinnar í fjögur þriggja liða level.
1. Álftanes, Tindastóll, Grindavík (menn ósammála hér).
2. Stjarnan, KR, Keflavík.
3. ÍR, Njarðvík, Valur.
4. Ármann, Höttur, Sindri.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days