Í þessum þætti af Sögu hlutanna ætlum við að fara yfir sögu flugvélarinnar. Hvaða ofurhugar flugu fyrstir og hvenær var það? Hefur eitthvað breyst síðan þá? Hvernig var fyrsta vélin sem kom til Íslands? Hvernig lærir maður að fljúga og hver er munurinn á flugstjóra og flugmanni?
Sérfræðingar þáttarins eru: Sigrún Björg Ingvadóttir flugstjóri og Kristján Guðmundsson flugmaður.
Það eru til gríðarlega margar tegundir af flugvélum; listflugvélar sem geta farið í hringi og gert alls konar kúnstir, stórar þotur sem eru notaðar til að fljúga á milli landa, flugvélar með skrúfuþotuhreyfla sem fljúga t.d. innanlands á Íslandi, svifflugur, sem eru stundum ekki einu sinni með neina vél, sjóflugvélar og svo flugvélar með tvöfalda vængi og þannig mætti lengi telja.
Hvernig ætli heimurinn væri án flugvéla?
Kristján er líka að smíða flugvél og við kíkjum til hans í flugskýlið og fáum að vita ýmislegt um flugvélasmíði - hvað má ekki klikka? Getur hver sem er smíðað flugvél?
Myndir þú þora að fljúga fyrst/ur allra í flugvél?