Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

By RÚVArts
Download on the App Store

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur episodes

  • Ívar Örn Hansen - helvítis kokkurinn
    Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef hann tæki sig ekki á og það reyndist rétt. Fyrir nokkrum árum tók hann ákvörðun um að láta á það reyna að vinna fyrir sjálfan sig og er í dag einkakokkur fyrir ríka ferðamenn meðal annars. Hann framleiðir líka sultur undir nafninu Helvítis. Við kynnumst Ívari betur í þætti dagsins.
    45 min
  • Berglind Viggósdóttir
    Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra.
    42 min
  • Silja Sóley Birgisdóttir
    Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Við heyrum sögu Silju Sóleyjar í þætti dagsins.
    43 min
  • Snorri Helgason
    Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Péturssonar.
    44 min
  • Þórir Kjartansson
    Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treyst fyrir mikilli ábyrgð í störfum sínum. Við kynnumst Þóri í þætti dagsins.
    41 min
  • Sigríður Birna Sigvaldadóttir
    Sigríður Birna Sigvaldadóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún var á dögunum valinn sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum fyrir starf sitt með föngum. Hún stendur fyrir konukvöldum einu sinni í viku í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem reynt er að gleyma lífinu í fangelsinu um stund.
    Hún hefur mikla trú á að betrun skili fólki betra út í lífið að afplánun lokinni. Sigríður segir okkur frá lífi sínu og veitir innsýn inn í líf í fangelsum á Íslandi.
    44 min
  • María Einarsdóttir, Maya
    María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC  er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall.
    42 min
  • Monika Hjálmtýsdóttir
    Monika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum þegar bróðir hennar, tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson, lést langt fyrir aldur fram. Hún segist í dag skilgreina lífið fyrir og eftir þann missi. Við kynnumst Moniku betur í þætti dagsins.
    42 min
  • Ragnar Jónasson
    Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum.
    42 min
  • Guðni Már Harðarson
    Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta til og stefnir nú til Danmerkur þar sem hann verður prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn.
    44 min

About Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

From the publisher's feed

Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir

More shows like Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

2 Listeners