Sjónvarpslausir fimmtudagar

Sjónvarpslausir fimmtudagar

By MiðflokkurinnNewsPolitics
Download on the App Store

Sjónvarpslausir fimmtudagar episodes

  • #51 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 13.10.2023.

    Sérstök örútgáfa vegna stjórnarmyndunarviðræðna stjórnarflokkanna


    • Hópefli ríkisstjórnarflokkanna á Þingvöllum
    • Viðbrögð við viðbrögðum forystumanna stjórnarflokkanna
    • Mikið ánægja og gleði þegar ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir af sér
    • Greining á stöðunni – hvað gerist á morgun?

    19 min
  • #50 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 12.10.2023.

    • Afsögn fjármálaráðherra – hvað hefur gerst síðan á þriðjudag og eru nýjar fléttur að formast?

    • Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs – hryllileg grimmd.
    • Haustfundur Landsvirkjunar og 10 milljarða árlegu sektargreiðslurnar.
    • Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar – 100 milljarðar af froðu í bókum Félagsbústaða.
    • Hátið í bæ – Gylfi Þór mætir aftur á völlinn í landsliðstreyju.
    Þetta og margt fleira í stórafmælisþætti Sjónvarpslausra fimmtudaga.

    55 min
  • #49 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 10.10.2023.

    SLF sérútgáfa í kjölfar afsagnar fjármálaráðherra. 

    • Hvað er Bjarni að hugsa? 

    • Er stærri ráðherraflétta í uppsiglingu? 
    • Hvernig meta vonarstjörnur Sjálfstæðisflokksins stöðuna? 
    • Hvers vegna var Sigurði Inga haldið utan við málið og hver er líklegastur til að þvælast fyrir plani Bjarna, ef það er til staðar? 
    • Gerir formaður Sjálfstæðisflokksins kröfu um uppstokkun í ráðherraliði VG?  
    • Hvers vegna þessi þröngi tímarammi með tilkynningu um ríkisráðsfund um helgina?

    Sigmundur Davíð og Bergþór greina stöðuna eftir fréttir dagsins.

    1 hr
  • #48 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 5.10.2023.

    • Ráðherrar halda áfram að hnýta hver í annan.

    • Dómsmálaráðherra kynnir hugmyndir að breytingu á útlendingalögum. Eru einhverjar líkur á að samstarfsflokkarnir bakki hann upp?
    • Glæpaalda í Svíþjóð – er ástæða til að reyna að læra af reynslu annarra?
    • Kærunefnd útlendingamála breytir um afstöðu til umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa tengsl við Venesúela.
    • Samkeppniseftirlitið – matvælaráðherra og Brim. Hvað skýrir framgöngu SKE og matvælaráðherra?
    • Matvælaráðherra heldur fund um fiskeldi á sama tíma og sjávarútvegsdagurinn er haldinn. Dónaskapur eða klaufaskapur?
    • Vinstri grænir villikettir – eru villikettirnir hennar Jóhönnu nú orðnir ráðherrar?
    • Enn blæs báknið út – ný mannréttindastofnun er næst á dagskrá.
    • Skólameistarar fyrir norðan furða sig á þögn ráðherra um sameiningu MA og VMA.
    • Óskýr skilaboð stjórnvalda hvað orkuskipti varða.
    • „Hlustendur skamma“ – nýr liður þar sem hlustendur segja okkur þáttarstjórnendur hafa verið rangstæða.

    41 min
  • #47 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 28.9.2023.
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson slekkur á litla útlendingafrumvarpinu með samningi við Rauða krossinn um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, umsækjendur sem hafa áður hafnað að vinna með stjórnvöldum.
    Hefur RUV gefist upp á að fjalla um stjórnmál? Nýja-Silfrið, er það á vetur setjandi?
    Andstaðan við Borgarlínu eykst – framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf. sendir innviðaráðherra pillu.
    Samkeppniseftirlitið og ólöglegi samningurinn við matvælaráðuneytið – Stjórnarformaður hengir forstjóra út til þerris.
    Gjaldþrota Reykjavíkurborg – er verið að undirbúa eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga?
    Báknið þenst út – forsætisráðherra mælir fyrir stofnun Mannréttindastofnunar Íslands.
    Og að sjálfsögðu; nöldurhornið!
    58 min
  • #46 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 20.9.2023.

    Sjónvarpslausir fimmtudagar #46 – 20.9.2023

    Þingstörfin:

    - Bandormurinn rammar inn skatta og gjaldahækkanir.

    Stóru fréttir vikunnar:

    - Dagsektir sem Samkeppniseftirlitið lagði á Brim úrskurðaðar ólöglegar.
    - Hvalur 8 fær leyfi til að halda til veiða – lítill stuðningur landsmanna við uppátæki
    mótmælenda.
    - Auðlindin okkar – erfið vika fyrir matvælaráðherra – Sameiginleg bókun sjö fulltrúa
    sjávarútvegs og stéttarfélaga í sjávarútvegi til matvælaráðherra.
    - Hælisleitendamál – nýjustu tölur og viðbragðaleysi
    - Kynfræðslan – umræðan snýst um allt annað en verið er að gagnrýna

    Útlönd:

    - Rishi Sunak endurstillir miðið í Bretlandi hvað loftslagsaðgerðir varðar – markmið og leiðir að
    þeim færð nær raunheimum.
    - Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna gengur af göflunum. Enn einu sinni.

    Aðrar fréttir vikunnar:

    - Ungmenni höfða mál gegn 32 þjóðum.
    - Áform um hátækni sorpbrennslu í Álfsnesi í uppnámi.
    - Vilyrði um aukið fjármagn til framhaldsskólakerfisins – Stillti Ási Bjarna upp við vegg?
    Þetta og margt fleira í stútfullum þætti af Sjónvarpslausum fimmtudögum.

    1 hr 9 min
  • #45 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 14.9.2023.

    Þingsetning – allt er venjubundið

    Stefnuræða

    • Báknið vex – ný Mannréttindastofnun
    • Þjóðarsjóður þegar rétt væri að greiða niður skuldir
    • Innflytjendamál í ólestri
    • Félagsmálaráðherra dregur framlagningu frumvarps um ríkissáttasemjara
    • Flýtiafgreiðsla heilbrigðisráðherra á nýjum sóttvarnarlögum
    • Innviðaráðherra vill heimila að breyta atvinnuhúsnæði í aðstöðu fyrir hælisleitendur
    • Matvælaráðherra setur þingið á hliðina með heildarendurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins
    • Umhverfisráðherra innleiðir „Fit for 55“ – mikill kostnaður lendir á heimilum landsins
    • Utanríkisráðherra ætlar aftur fram með Bókun 35. Skömmu síðar ætlar ráðherrann að leggja fram „Tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ekki hefur enn verið tekin.“

    Fjárlög

    • Enn vantar aukið aðhald í ríkisfjármálum
    • 1.394 milljarða heildarútgjöld – það eru ekki mörg ár síðan 1.000 milljarða múrinn var rofinn
    • Tal um frumjöfnuð segir ekki alla söguna
    • Bein útgjöld ríkissjóðs til útlendingamála 15,3 milljarðar á næsta ári

    Kynlífsfræðsla barna

    • Eru fulltrúar Reykjavíkurborgar og Menntamálastofnunar gengnir af göflunum?

    Jafnréttishornið – aðgengi að leikskólaplássum

    1 hr 9 min
  • #44 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 6.9.2023.

    Fréttir vikunnar:

    Hvalveiðar og mótmæli vegna þeirra

    • Konurnar í tunnunum og heimsendingaþjónusta lögreglunnar sem var ekki að virka.
    • Sýndi lögreglan álíka hörku og lögreglan í Íran? Er líklegt að lögregluaðgerðin hafi stýrst af kynþáttafordómum?

    Ríkisfjármálin:

    • Aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, eru þær nægjanlegar, eða bara alls ekki.
    • Ólík sýn Bergþórs og Bjarna á tillögur fjármálaráðherra.

    Útlendingamál:

    • Könnun Maskínu - Flestum finnst of margir flóttamenn á Íslandi.
    • Hælisleitandi sem fór huldu höfði var með 2 milljónir í seðlum á sér.

    Lundaveiðar í Drangey

    • Sölubann á lunda – Umhverfisráðherra setur saman hóp sem allir fá að vera í nema lundaveiðimenn.

    Loftslagsmál:

    • Bretar ganga af göflunum í loftslagsmálum, rétt eins og umhverfisráðherra í grein um Miðflokkinn og loftslagsmál í Morgunblaðinu.

    Úrval vikunnar:

    • Sameining framhaldsskóla MA og VMA.
    • Hópeflisferð Reykjavíkurborgar.

    53 min
  • #43 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 31.8.2023.

    Eftir stærstu fréttaviku ársins er nýr SLF megaþáttur sem enginn má missa af. Fréttir vikunnar hefðu í raun kallað á 3ja tíma þátt, en við héldum aftur af okkur.

     

    • Flokksráðsfundir og innri mein stjórnarflokkanna

    o    Sigríður Andersen segir hlutina eins og þeir eru
    • Hvalveiðibannið og Auðlindin okkar
    o    Ný reglugerð og pólitísk áhugamál matvælaráðherra
    • Ríkisfjármálin
    o    Fjármálaráðherra snuprar sjálfan sig
    • Útlendingamálin
    o    VG vill að sveitarfélög borgi fyrir fólk sem ekki vill vinna með stjórnvöldum
    • Borgarlínan og samgöngusáttmálinn
    o    Er Sjálfstæðisflokkurinn að ná áttum?
    • Húsnæðismálin
    o    Staðan versnar og versnar
    • MAST og gjaldskrárhækkanir
    o    Loksins fór matvælaráðherra að ráðum Miðflokksins
    • Endurmenntun atvinnubílstjóra
    o    Tekur ruglið engan enda?
    • Fundafrelsi á Íslandi rætt í London
    o    Þögn á Íslandi, áhugi í Bretlandi
    • Skógareldar í Grikklandi
    o    160 handteknir vegna íkveikja
    • Gylfi Sigurðsson aftur á völlinn og stóra Cocoa Puffs málið
    o    Okkar besti maður á leið á völlinn
    • Þetta og margt fleira í stútfullum mega-þætti

     

    1 hr 51 min
  • #42 - Sjónvarpslausir fimmtudagar - 24.8.2023
    • Útlendingamál í ólestri – heilu hótelin tekin á leigu, lokabúsetuúrræði gagnrýnd af ráðherrum VG.
    • Lofslagsmálin – aflátsbréf frá Slóvakíu – Íslenskt skattfé notað til að einangra hús í Slóvakíu. 
    • Beint frá býli verður að engu vegna gjaldskrárhækkunar MAST.
    • Hvalveiðibannið – vika til stefnu.
    • Samkeppniseftirlitið og samningurinn við Matvælaráðuneytið – forstjórinn á þunnum ís.
    • Skuldabréfaútboð Reykjavíkur – ekki króna í kassann.
    • Borgarstjórinn í London þaggar niður rannsókn sem hentaði honum ekki.
    • Borgarlínan og almenn umferð í ólestri – fyrirhugaðar þrengingar á götum.
    • SDG fór í bíó
    58 min

About Sjónvarpslausir fimmtudagar

From the publisher's feed

Miðflokkurinn heldur úti Miðvarpinu.