
Sign up to save your podcasts
Or


Árið 1991 fór 12 ára skátinn Jared Negrete í sína fyrstu alvöru bakpokaferð á San Gorgonio-fjall í Kaliforníu.
Hann dróst aftur úr hópnum, sást síðast einn á fjallinu og fannst aldrei aftur.
Í þessum þætti segjum við frá hvarfi Jareds, leitinni sem fylgdi og kenningunum um hvað gæti hafa gerst.
Þátturinn er í boði Grænna skáta
Við erum mættar aftur og í þetta skiptið ætlum við að gera upp skátasumarið.
Elín fékk óvenju mikið svigrúm til að tuða í þessum þætti.
Sjöfn fékk óvenju mikið svigrúm til að tala um Strók. Strókur er frábært skátafélag og það er einfaldlega mikilvægt að þjóðin viti það. 💅⚜️
Þess á milli náðum við einhvern veginn að komast að þeirri niðurstöðu að það sé galið að skátastarf fari í frí á sumrin. 😂
Grænir Skátar eru aðal styrktaraðilar þáttarins og við erum ekkert eðlilega þakklátar þeim! TAKK!
Í þessum þætti fáum við Ingibjörgu mótsstjóra í heimsókn í virkilega skemmtilegt spjall um landsmótið 🏕️
Við fáum líka loksins staðfestingu á því að Elín sé búin að samþykkja smá road trip á heimsóknardaginn 🚗
Og eins og það sé ekki nóg, þá heyrum við í lokin landsmótslagið sem Helgi og Högni sömdu, spiluðu og sungu 🎶
Þátturinn er í boði Grænna skáta og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn 💚
Sjáumst á landsmóti!
Drekaskátar eru algjörir naglar og geta margt sem annað fólk getur ekki!
Grænir skátar eru aðal styrktaraðili þáttarins.
Kósý við varðeldinn í Ólafsbúð. Smá snark í eldinum, smá vindur, smá hlátur, smá viska... eða bara mikið af öllu.
Þátturinn er í boði Grænna Skáta.
Dagga kom, sá og spjallaði... um Jamboree, Gilwell, Drekaskátamót og allskonar.
Grænir skátar eru aðal styrktaraðili þáttarins. Takk fyrir það!
Við fórum á skátaþing með það að markmiði að leysa stóra kex málið.
Skátar svöruðu, sum rugluðust... en in the end vann VANILLUkexið ofc.
Sumar eru enn í afneitun en það verður að hafa það...
Við tókum fyrir þriðju grein skátalaganna og veltum fyrir okkur hvað það þýðir að vera traustur, á meðan við keyrðum heim eftir að plönin okkar fóru aðeins út af sporinu.
Við treystum veðurspánni (sem var djörf ákvörðun), eigin skipulagshæfni (enn djarfari) og hvor annarri (dirfska fer eftir koffínmagni).
Kannski er traust stundum þrjóska í sparibúningi?
Mjög kaótískur (semí) óklipptur þáttur. Tvær með athyglisspan á við gullfisk að reyna að halda fókus.
Njótið. Eða bara gangi ykkur vel.
From the publisher's feed