Skúffuskáld

Skúffuskáld

By Lubbi PeaceArtsBooksFiction
Download on the App Store

Skúffuskáld episodes

  • Yrsa Þöll Gylfadóttir

    Yrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur hefur skrifað tvær bækur - Tregðulögmálið og Móðurlífið blönduð tækni. Hún er að skrifa skáldsögu sem kemur út á þessu ári, auk tveggja léttlestra bóka sem koma út hjá Bókabeitunni. 

    Við spjölluðum um skrifin, að lesa, að samtvinna fjölskyldulíf og rithöfundastörf og margt fleira skemmtilegt. 


    57 min
  • Guðrún Eva Mínervudóttir

    Guðrún Eva og Anna Margrét fara ofan í kjölinn á því að skrifa bók og skálda sögur.  Með ilmandi kakói frá Guatemala og í kósý herbergi Guðrúnar gerast litlir töfrar og samtalið verður innilegt og gott. Meðal þess sem ber á góma er innsæi, berskjöldun, hröð orka og hæg orka, ferli þess að skrifa bók og margt fleira. 

    1 hr 12 min
  • Sigga Dögg

    Sigga Dögg talar um bækurnar sínar fjórar, Kjaftað um kynlíf, Á rúmstokknum, KynVera og nýjustu bókina Daði. Hún les stutt brot úr bókunum og fjallar svo um skrifin, framtíðina, notaða smokka í krukku og margt fleira. Hún segir einnig frá því hvernig hún nær alveg að sökkva sér ofan í það að skrifa og lopafötin sem hún klæðist á meðan! 

    57 min
  • Dagný Maggýjar

    Dagný Maggýjar ræddi við Önnu Margréti í þessum þætti.
    Hún hefur gefið út tvær bækur upp á sitt einsdæmi og í þættinum ræðir hún um ferlið við að gefa út sjálf. Einnig ræða þær um bækurnar tvær; Brunann í Skildi og Á heimsenda, en báðar bækurnar fjalla um raunverulega atburði. Þá les Dagný upp valin textabrot úr bókunum tveim. 

    48 min
  • Vigdís Gríms og skapandi skrif

    Í fyrsta þætti verður rætt við Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og nemendur sem sátu námskeið hjá henni í Skapandi skrifum. Einnig má heyra nemendur lesa upp valið efni af námskeiðinu. 

    Vigdís Grímsdóttir er einn af ástsælustu rithöfundum Íslands og hana þarf vart að kynna. Hún hefur m.a. skrifað skáldsögur, ljóð og barnabók. Hún hefur fengið margar viðurkenningar fyrir verk sín og skáldsagan Grandavegur 7 tryggði henni íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1994. 


    50 min

About Skúffuskáld

From the publisher's feed

Í þáttunum ræðir Anna Margrét Ólafsdóttir við rithöfunda um allt mögulegt sem tengist því að skrifa og skálda. Sjónum verður aðallega beint að því hvernig það er að stíga fyrstu skrefin sem…