
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Dó Paul McCartney árið 1966 og var honum skipt út fyrir tvífara? Samkvæmt einni frægustu samsæriskenningu poppsögunnar lést hann í bílslysi en dauða hans var haldið leyndum. Svo var að sagt að hinir Bítlarnir hafi skilið eftir dularfullar vísbendingar í lögum sínum og á plötuumslögum.
Eiríkur og Hulda rekja söguna af meintum dauða McCartneys, leyniskilaboðunum og fjölmiðlaæðinu sem fylgdi. Um leið fjalla þau um Bítlana sem tákn menningarbyltingar sjöunda áratugarins. Hvernig varð orðrómur að einni lífseigustu samsæriskenningu tónlistarsögunnar – og hvers vegna trúði fólk honum? Eða trúði það því kannski bara alls ekki neitt?
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Hylmdi breska leyniþjónustan yfir sovéskum njósnara í London? Í áratugi var Melita Norwood, elskuleg langamma sem sauð sultu og ræktaði epli í úthverfi borgarinnar, einn mikilvægasti útsendari KGB í Bretlandi. Hún afhenti Sovétmönnum leyniskjöl úr kjarnorkuvopnaáætlun Breta, en þrátt fyrir að MI5 kæmist ítrekað á sporið var hún látin óáreitt. Í þessum þætti af Skuggavaldinu rekja Hulda og Eiríkur ótrúlega sögu Melitu og velta því fyrir sér hvernig staðalmyndin af hinni skaðlausu eldri konu reyndist hennar besti skjöldur.
Vasilí Mitrokhin var skjalavörður hjá sovésku leyniþjónustunni KGB. Í tólf ár afritaði hann þúsundir skjala á laun og kom safninu að lokum með ævintýralegum hætti til Vesturlanda eftir hrun Sovétríkjanna. Skjölin ollu jarðskjálfta í leyniþjónustuheiminum og komu upp um njósnara víða um heim. Við rekjum sögu hans og spyrjum hvað rak hann áfram: hugsjónir, hefnd eða fjölskyldan?
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Voru leiðtogar Rauðu herdeildanna myrtir af vestur-þýska ríkinu inni í Stammheim-fangelsinu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar rekja Eiríkur og Hulda hina blóðugu lokakafla sögunnar um Baader-Meinhof gengið og ræða fangavistina í Stammheim, dauða Meinhof, Þýska haustið 1977, flugránið í Mogadishu og hina dularfullu nótt þegar Baader, Ensslin og Raspe fundust látin í klefum sínum. Var um samhæfð sjálfsvíg að ræða – eða ríkismorð?
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar sem menn leita að týndum jarðhæðum stórborga.
Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.
Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].