Skuggavaldið

Skuggavaldið

By skuggavaldidSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    21

    Followers

  • Latest release

    5 days ago

  • Typical duration

    55 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Skuggavaldið episodes

  • #26 - Er jörðin flöt? — upptaka á Vísindavōku

    Hvernig fékk hugmyndin um að jörðn væri flöt nýtt líf á netinu? Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja söguna frá sönnunum forn-Grikkja um hnattlögun jarðar til sprellifandi samsærissamfélags síðasta áratugar. Við kynnumst Rowbotham og viktoríönsku Zetetic-samfélagi, förum yfir tilraunir Mad Mike til þess að skjóta sér á loft, hlutverk YouTube algrímsins, ráðstefnur og kannanir sem sýna lítinn merkilega stóran hóp efasemdafólks. Skemmti- og fræðsluferð inn í furðulegan afkima samtímans þar sem traust, vísindi og samsæriskenningar togast á.

     

    Kostendur Skuggavaldsins eru Vesturröst veiðiverslun  og Plantan kaffihús og bistro. 

    Sendið ábendingar á [email protected]

    53 min
  • #25 - Dramatísk lausn Julian Assange, seinni hluti viðtals við Kristinn Hrafnsson – WikiLeaks, fjórði þáttur

    Var dramatísk lausn Julian Assange sigur réttlætisins – eða kaldur hráskinnaleikur stórveldanna?

    Í fjórða og síðasta þætti syrpunnar um WikiLeaks segir Kristinn Hrafnsson frá leynilegum samningaviðræðum sem leiddu til þess að Assange var loksins leystur úr haldi eftir fimmtán ár. Eiríkur og Hulda ræða við hann um æsilegan lokasprettinn, alþjóðlega diplómatíu og hvernig baráttan fyrir frelsi uppljóstrara hélt áfram til síðasta dags – og leggja að lokum mat á þetta heimssögulega mál.

    1 hr 27 min
  • #24 - Viðtal við Kristinn Hrafnsson fyrri hluti – WikiLeaks, þriðji þáttur

    Hvernig endaði íslenskur fréttamaður í miðju stærsta tjáningarfrelsismáls samtímans? Í þessum þætti segir Kristinn Hrafnsson frá fyrstu kynnum sínum af Julian Assange, dramatískum uppljóstrunum Wikileaks og því þegar stórveldin fóru að sýna klærnar.

    Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna Bístro og kaffihús. 

    Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 27. september 2025 kl 15:40. 

    Sendið okkur línu á [email protected]

    1 hr 22 min
  • #23 - Julian Assange og andsvar stórveldanna – WikiLeaks, annar þáttur

    Var Julian Assange á mála hjá Rússum eða jafnvel CIA? Sameinuðust leyniþjónustur heims kannski öllu heldur í því að þagga niður í honum? Hulda og Eiríkur rekja hvernig hetjan sem afhjúpaði stríðsglæpi í Írak breyttist í lýjandi gest sem enginn vildi. Þau fara yfir hið meinta kynferðisbrotamál í Svíþjóð, árin í sendiráði Ekvador og allt til reyfarakenndrar atburðarrásar þegar Assange fékk loks frelsi í júní 2024. Í þættinum er fjallað um það hvernig stórveldi beita sér frá ófrægingu til fangelsunar til að ná böndum á þeim sem ógna þeim.

    Skuggvaldið er í samstarfi við Plöntuna Bístro og kaffihús, Atlantsolíu og Vesturröst. 

    Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 26. september 2025. 

    Sendið okkur línu á [email protected]

    56 min
  • #22 - Reykjavík miðstöð uppljóstrunar aldarinnar – WikiLeaks, fyrsti þáttur

    Hristi hópur hakkara við Grettisgötu stoðir mesta stórveldis heims svo mjög að það óttaðist um eigið vald? Í fyrsta þætti af fjögurra hluta syrpu Skuggavaldsins um WikiLeaks og Julian Assange kafa Eiríkur og Hulda ofan í söguna af því þegar Reykjavík, í miðri efnahagskreppu, varð óvænt miðstöð stærstu uppljóstrunar 21. aldar. Frá Kaupþingslekannum til Collateral Murder – þetta er sagan af því þegar litla Ísland breyttist í aðgerðamiðstöð sem skók alþjóðleg valdakerfi í grunninn.

     

    Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu

    Skuggvaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll 27. septmeber

    Sendið okkur ábendingar og tillögur í [email protected]

    45 min
  • #21 - Verstu fyrirtæki í heimi

    Eru kenningar um samsæri tóbaksframleiðenda tóm tjara? Eða eru þetta kannski verstu fyrirtæki í heimi? Eiríkur og Hulda fjalla nú í fyrsta sinn um raunverulegt samsæri sem hefur verið afhjúpað og staðfest fyrir dómi. Í áratugi beittu stærstu tóbaksfyrirtæki heims kerfisbundnum blekkingum; þau markaðssettu tóbak til barna, hönnuðu ávanabindandi sígarettur og keyptu sér vísindamenn. Þetta er sagan af því hvernig reykurinn huldi sannleikann og hvernig sömu aðferðum er áfram beitt í nútímanum til að villa um fyrir fólki.

    Skuggvaldið er í samstarfi við Atlantsolíu og Vesturröst.

    Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 26. september 2025.

    Sendið okkur línu á [email protected]

    55 min
  • #20 - Wind of change - seinni þáttur

    Voru listamenn gerðir að leynivopni í kalda stríðinu? Eiríkur og Hulda kryfja sögulegar staðreyndir um það hvernig vestrænar leyniþjónustur beittu bæði bókmenntum og tónlist sem vopni í kalda stríðinu. Þau rekja hvernig vestrænar leyniþjónustur stóðu að útgáfu bannaðra skáldsagna, fjármögunuði tímarit í leyni og sendu djassgoðsagnir austur fyrir járntjaldið - og spyrja svo: Gæti Wind of Change með vesturþýsku hljómsveitinni Scorpions hafa verið hluti af slíkri herferð? Hvenær verður lag meira en lag – og hvenær fer það að hreyfa við heilu heimsveldi?

    42 min
  • #19 - Wind of change - fyrri Þáttur

    Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin?

    Hulda og Eiríkur rekja ótrúlega sögu samsæriskenningarinnar um að vestrænar leyniþjónustur hafi samið lagið Wind of Change með þýsku stálsveitinni Scorpions sem vopn í hugmyndabaráttu kalda stríðsins. Þau leiða hlustendur frá risatónleikum í Moskvu 1989 og töfrastund við Moskvuána, inn í heim njósna, rokkstjarna og hvísls manna á milli í leyniþjónustunni.

    Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Sendu okkur línu á [email protected].

    Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu.

    55 min
  • #18 - Efnaslóðar; að flugvélar drefi eiturefnum – seinni þáttur

    Í nýlegum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið köfuðu prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann ofan í samsæriskenninguna um að stjórnvöld séu í leyni að úða eitruðum efnum yfir almenning úr flugvélum. Þó að þessi tiltekna kenning eigi sér enga vísindalega stoð, þá sprettur hún ekki alveg upp úr engu. Grunsemdirnar eiga sér nefnilega raunverulega og ansi uggvekjandi forsögu

    Ábendingar og athugasemdir sendist í [email protected]

    40 min
  • #17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur

    Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir vantraust og tortryggni sem halda kenningunni á lífi.

    Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er kominn í loftið — bókstaflega — og aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Áttu dularfullan leyndardóm sem þú vilt að við kryfjum? Sendu okkur línu á [email protected].

    Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu.

    39 min