SLAYGÐU

SLAYGÐU

By Hugleikur Dagsson og Sandra BarilliTV & FilmTV ReviewsAfter Shows
Download on the App Store

SLAYGÐU episodes

  • 100 Klappstyrjöldin (Bring It On)
    Nú eru góð ráð dýr, þegar söguhetjan okkar sem er nýkjörin fyrirliði klappstýruliðsins, kemst að því að öll þeirra fyrri atriði eru stolin frá öðru liði sem hefur ekki haft fjármagn til að mæta á klappstýrukeppnir. Til að bjarga mannorði liðsins, bregður hún á það ráð að fá nýjan danshöfund, en sá hefur óhreint mjöl...
    1 hr 28 min
  • 099 Bjartur (Akira)
    Ungir drengir í mótorhjólagengi lenda í hættu þegar að einn þeirra smitast af telekínetískum ofurkröftum. Smitið nær heljartökum á honum, og reynist honum lífshættulegt.
    1 hr 10 min
  • Brot af því besta – Þættir 006-010
    Smakkseðill úr þáttum 6 til 10, þessi brot er að finna í umfjöllun um myndirnar Meðal dóna og þrjóta í Minnesóta (Fargo), KJAMS (Jaws), Hugguleg án heimanmunds (Pretty Woman), Reimholt (Ghost World) og loks Bíbí fríkar út (Birds).
    1 hr 26 min
  • 098 Kung fú sjúbbídú (Kung Fu Hustle)
    Í einum fátækasta hluta Shanghai borgar er blokk með samliggjandi svalir og mikinn samgang íbúa sem eiga það sameiginlegt að vera með sama leigusalann. Leigusalinn býr líka í blokkinni en hún býr einnig yfir ofurkröftum.
    1 hr 11 min
  • 097 Strákarnir okkar (Team America: World Police)
    Alheimslögregla Bandaríkjanna er orðin ráðþrota í baráttunni við hryðjuverkamenn og ræður því til sín Gary, stærsta leikarann á Broadway til að svindla sér inn í herbúðir óvinanna. Hann beitir öllum sínum leikhæfileikum til að bjarga heiminum og finnur ástina.
    1 hr 32 min
  • 096 Vonlaust viðhald (Fatal Attraction)
    Þegar heimilisfaðir, sem þykir hjónaband sitt farið að súrna, ákveður að halda framhjá eiginkonu sinni með tælandi samstarfskonu, kemst hann fljótt að því að hann hefði betur haldið upp um sig brókinni.
    1 hr 10 min
  • 095 Bella Dýramær (Beauty and the Beast)
    Fríða er ungur bókaormur sem þyrstir í ævintýri og þegar föður hennar er rænt af dýrslegri skepnu í álögum, ákveður hún að hún skuli bjóða sjálfa sig fram sem fanga í stað föður síns. Hún dvelur í kastala þar sem allt heimilisfólk er einnig undir álögum og reynir að gera gott úr dvölinni þar.
    1 hr 28 min
  • 093 Bleikir mávar (Pink Flamingos)
    Dragdrottningin og glæpakvendið Divine býr í hjólhýsi ásamt fjölskyldu og vinum og stærir sig af því að vera sú óhugnalegasta í bransanum. Þegar hjónakorn nokkur í bænum fá veður af því langar þau að storka þeim titli hjá Divine með því að gera þeim ógeðis-grikki.
    1 hr 30 min
  • 092 Flóttamannabúðir (The Great Escape)
    Stríðsföngum sem hafa verið iðnir við að reyna að strjúka úr fangabúðum nasista er safnað saman í einar fangabúðir sem er mjög erfitt að strjúka úr. Þeir eru hins vegar mjög skipulagðir og búa yfir ýmsum og fjölbreyttum hæfileikum sem verður til þess að þeir leggja saman á ráðin að reyna enn og aftur á...
    1 hr 15 min

About SLAYGÐU

From the publisher's feed

Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli (Hullow og Xandra) horfa á Buffy the Vampire Slayer og Angel og hljóðrita þátt um hvern einasta þátt.