SLAYGÐU

SLAYGÐU

By Hugleikur Dagsson og Sandra BarilliTV & FilmTV ReviewsAfter Shows
Download on the App Store

SLAYGÐU episodes

  • 082 Grýlurnar (The Craft)
    Þegar ung og fjölkunnug stúlka byrjar í nýjum skóla, kynnist hún fljótlega þremur vinkonum sem hafa einnig verið að gæla við galdra. Þær ákalla almættið og beita miskunnarlaust álögum á fyrrum kvalara sína.
    1 hr 27 min
  • 081 Látnir skrifa ljóð (Dead Poets Society)
    Robin Williams leikur kennara sem kennir í helst til hefðbundum skóla þar sem reglur um samskipti og kennsluhætti eru af gamla mátanum. Hann lætur það ekki á sig fá og kynnir nemendur sína fyrir nýjum aðferðafræðum og lífsins lists, sem fellur ekki vel í kramið hjá hinum kennurunum.
    1 hr 25 min
  • 080 Öðruvísitölufjölskyldan (The Incredibles)
    Við fylgjumst með úthverfafjölskyldu þar sem allir fjölskyldumeðlimir búa yfir ofurkröftum, en þeim er gert að fela og bæla þá niður samkvæmt lögum. Þeim tekst þó ekki lengi að fara huldu höfði í nútímasamfélagi þar sem þau berjast fyrir réttlætinu og freistast til að nýta krafta sína í baráttunni við illa innrætta hrotta.
    1 hr 10 min
  • 079 Hvolpasveitin (Reservoir Dogs)
    Nokkrir krimmar eru komnir saman til að framkvæma bankarán fyrir sameiginlegan vin, en þar sem þeir þekkjast lítið sem ekkert áður en ránið á sér stað, vita þeir ekki að einn þeirra er leynilögregla sem ætlar að koma þeim öllum fyrir kattarnef.
    1 hr 30 min
  • 078 Lítill í sér (Big)
    Tom Hanks leikur smádreng sem fær óvænt fullorðinslíkama til afnota um óákveðinn tíma. Hann nýtir tækifærið og kynnir sér bæjarlífið í borginni og byrjar í vinnu þar sem hann sér um framleiðslu á leikföngum.
    1 hr 34 min
  • 077 Babb í bátinn (Titanic)
    Stærsta skip sem smíðað hafði verið lagði af stað í sína jómfrúarferð yfir Atlantshafið árið 1912. Á skipinu var fjöldi fólks úr öllum þjóðfélagsstigum og segir sagan frá ungum elskendum sem kynnast um borð í fleyinu og örlögum þeirra og hinna farþeganna þegar það sigldi á ógnarhraða og lenti á ísjaka og sökk stuttu síðar,...
    2 hr 3 min
  • 076 Vopnum búinn og viti rúinn (Lethal Weapon)
    Tvær löggur kynnast náið og vel þegar þær eru látnar vinna saman við rannsókn á dauðsfalli ungar konu. Í fyrstu er ekki talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti en annað kemur í ljós þegar lögreglan hefur rannsókn sína. Hún ku vera dóttir þekkts auðjöfurs sem að er sjálfur viðriðinn vafasöm viðskipti...
    1 hr 26 min
  • 075 Líf, ertu að grínast? (It’s a Wonderful Life)
    Lánadrottinn í litlum bæ dreymir um að komast til útlanda og skoða heiminn en líf hans dregur hann alltaf strax til baka í að byggja upp smábæinn sinn með lánum til samborgara sinna. Hann kaupir hús í niðurníðslu sem konan hans gerir upp, og búa þau saman þar ásamt sínum fjórum börnum.
    1 hr 42 min
  • 074 Rokklingarnir (Gremlins)
    Uppfinningafaðir gefur syni sínum lítið dýr að gjöf sem þarf einungis að passa að þrennu leyti; að það blotni ekki, sé ekki í mikilli birtu eða sólarljósi, og að það borði ekki eftir miðnætti. Sonurinn reynir eftir fremsta megni að hlýða þeim reglum og passa upp á nýja gæludýrið sitt en þegar vinur hans rekst...
    1 hr 22 min
  • 073 Í guðanna bænum (Cidade de Deus)
    Í fátæku hverfi í Rio de Janeiro eru ung börn í glæpagengjum, sem stýrð eru af aðeins eldri börnum. Aðal söguhetjan okkar segir frá lífinu í hverfinu og hvernig hann náði á ótrúlegan hátt að flýja fátæktina með því að taka myndir af glæpamönnum og selja til blaðanna.
    1 hr 15 min

About SLAYGÐU

From the publisher's feed

Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli (Hullow og Xandra) horfa á Buffy the Vampire Slayer og Angel og hljóðrita þátt um hvern einasta þátt.