Smá pláss

Smá pláss

Download on the App Store

Smá pláss episodes

  • Svikaraheilkennið
    Sunna og Elín upplifa sig stundum sem svikara. Loddaralíðanin á það til að laumast upp að þeim eins og gremlins og telja þeim trú um að þær hafi komist áfram í lífinu óvart eða með svikum, en ekki á eigin verðleikum. Þrátt fyrir grillheila Elínar ræða þær um fimm mismunandi tegundir svikaraheilkennis, Arnold Schwarzenegger og að missa kúlið.
    0 min

  • Taka pláss
    Sunna og Elín mega taka smá pláss! Konum er frá unga aldri kennt að vera hljóðlátar, hlýðnar og til friðs og að gera helst aldrei mistök. Á meðan fá strákar að hafa hátt og taka áhættur. Það er ekki auðvelt að aflæra þessa hegðun en Sunna og Elín gera sitt besta, auk þess sem þær ræða launahækkanir, kraftpósur og bikinirassa í SMÁ PLÁSS vikunnar.

  • Karlmennskan
    Sunna og Elín spjalla við Þorstein V Einarsson, upphafsmann #karlmennskan-byltingarinnar, um skaðlega karlmennsku, samkennd, naglalakk og meint hlutverk kynjanna. Þorsteinn segir frá hvernig karlmennskan hefur haft áhrif á sig og hvernig hún getur þróast út í að hafa skaðleg áhrif. Hún hefur vald til að móta hegðun karlmanna á einsleitan hátt en á sama tíma virðist þurfa lítið til að ógna henni. Elín, Sunna og Þorsteinn ræða m.a. um stereótýpur, tilfinningar, dyggðir og orðfæri í umræðum um femínisma, og láta sig dreyma um framtíð þar sem karlmennska er frjálslegri og hlýrri.

  • Trúverðugleiki kvenna
    Sunnu og Elínu finnst eins og stundum sé ekki tekið mark á því sem þær segja. Hversu oft hafa þær lent í aðstæðum þar sem frásögn þeirra er dregin í efa? Hversu oft hafa þær komið með hugmynd upp á borðið en einhvernvegin virðast hún ekki komast til skila fyrr en karlmaður endurtekur eða tekur undir hana? Hversu algengt er að afskrifa skoðanir, frásagnir og framkomu kvenna sem tilfinningasemi, hysteríu og fáfræði? Elín og Sunna ræða óttann við að segja frá ofbeldi og áreitni í samfélagi sem stimplar konur sem athyglissjúkar. Þær minna sig á að samfélagið hefur forritað þær til þess að draga úr sjálfum sér í ofanálag, og reyna að segja ekki “kannski“, “held ég“ og “bara“ í öðru hverju orði.

  • Samviskubit
    Sunna Axels og Elín Elísabet eru með samviskubit. Samviskubitið er daglegt brauð, sama hvort það er yfir því að fara of seint að sofa, hafa of litla kynhvöt eða of mikla, vera með vesen, hafna fólki, gera of miklar kröfur, vera ekki nógu kvenleg, vera of kvenleg, segja eitthvað asnalegt, vera ekki nógu dugleg og auðvitað yfir því að tala út frá sjálfri sér í útvarpi allra landsmanna. Sunna og Elín fara um víðan völl í umræðunni um samviskubit. Þær ræða um systurnar fjórar: meðvirkni, sektarkennd, skömm og fullkomnunaráráttu. Þær komast að því að þær hafa báðar endurskilgreint nauðgun í kjölfar #metoo-byltingarinnar og sammælast um það að það sé óþarfi að gefa gaurum medalíu fyrir það eitt að vera ekki fávitar.

About Smá pláss

From the publisher's feed

Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll…