Smá pláss

Smá pláss

Download on the App Store

Smá pláss episodes

  • Líkamsvirðing
    Sunna og Elín eru með líkama og hafa frá byrjun fengið mjög skýr skilaboð frá samfélaginu um hvernig þeir eigi að líta út. Líkamar sem uppfylla ekki þessi skilyrði verða enn fyrir aðkasti og lýsingarorðið „feitur“ er hlaðið öðrum og verri merkingum. Gestur Sunnu og Elínar er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um Líkamsvirðingu. Þær ræða saman um réttlætingu á fitufordómum, líkamsvirðingu á instagram, sjúkdómsvæðingu holdafars og útvötnun hugtaksins „body positivity“. Tara Margrét á Instagram https://www.instagram.com/taramvil/?hl=en Skömm á Rúv Núll http://www.ruv.is/utvarp/spila/skomm/27831?ep=89db3h
    0 min
  • Nauðgunarmenning
    Sunna og Elín verða varar við nauðgunarmenningu daglega. Hún er stórt vandamál á Íslandi sem og annarsstaðar. Nauðgunarmenning kristallast í því þegar konum er ekki trúað þegar þær segja frá, þegar þolendum er kennt um ofbeldið sem þau verða fyrir og þegar gert er lítið úr alvarleika kynferðisofbeldis. Þær ræða um Dr Christine Blasey Ford og Brett Kavanaugh, birtingarmyndir nauðgunarmenningar í poppkúltúr, ósnertanleika forréttindafólks og leiðirnar sem við getum farið til þess að sporna við ástandinu. “RAPE CULTURE, VICTIM BLAMING, AND THE FACTS“ http://www.southernct.edu/sexual-misconduct/facts.html “Alicia Carroll | Calling out rape culture on TV | TEDxBeaconStreet“ https://www.youtube.com/watch?v=WPMiLVZK6Z8&t=899s “Skýr áhrif kláms í nauðgun ar mál um“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/04/19/skyr_ahrif_klams_a_naudganir/
    0 min
  • Fötlun og femínismi
    Sunna og Elín njóta ýmissa forréttinda. Þeirra femínismi á ekki við alla, t.d. eru fatlaðar konur með önnur forgangsatriði og sjónarhorn í sinni baráttu. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er gestur þáttarins að þessu sinni en hún hefur lagt ómælda vinnu í að fræða almenning um fötlunarfordóma og ableisma. Hún ræðir við Sunnu og Elínu um lífið í hjólastól, birtingarmyndir fatlaðra sem vinalaus grey í bíómyndum, aðstoð án samþykkis, áætlaðan hetjuskap fatlaðra og óaðgengilegan femínisma. Inga Björk á Twitter: @ingabbjarna
    0 min
  • Tvískinnungar
    Sunna og Elín fá allt önnur viðbrögð frá samfélaginu en karlar fyrir sömu hegðun. Tvískinnungar (e. double standards) leynast víða. Karlar mega eldast, konur eiga að halda sér í formi tvítugrar konu út ævina og lita á sér hárið þegar það gránar. Lauslátir karlmenn eru folar, konur sem haga sér eins eru druslur. Konur sem skipta um bleyjur á börnunum sínum eru að gera það sem er búist við af þeim, karlar sem gera það sama eru ótrúlega góðir pabbar. Þessi tvískipting samfélagsins og afleiðingar hennar eru skaðlegar fyrir bæði kyn. Sunna og Elín ræða það að borga fyrir sinn eigin mat á deiti, raunfrelsi geirvartna og hræsnina sem fylgir tvískinnungum. Cars Against Harrassment á Twitter - sjá #ShirtlessShamers https://twitter.com/CardsAgstHrsmt Philip Wollen : Animals Should Be Off The Menu debate https://www.youtube.com/watch?v=uQCe4qEexjc
    0 min
  • Femínismi í framhaldsskólum
    Sunna og Elín byrjuðu í menntaskóla fyrir 10 árum. Á þeim tíma var drusluskömmun daglegt brauð og að skilgreina sig sem femínista var félagslegt sjálfsmorð. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og kvenréttindabarátta fengið meira pláss í meginstreyminu. Beyoncé skilgreinir sig opinberlega sem femínista og fólk í framhaldsskólum í dag er mun opnara fyrir málstaðnum. En er feminísmi orðinn jafn vinsæll og raun ber vitni eða er mögulegt að fólk sé að skilgreina sig sem femínista en haga sér á andféminískan hátt? Gestur Sunnu og Elínar er Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður Emblu, femínistafélagsins í MH. Þær ræða um fréttapésa, sleikmyndbönd, útbreiðslu femínisma um framhaldsskóla landsins og milvægi þess að hafa val til að skilgreina sig sjálfur.
    0 min
  • Kynlíf
    Sunna og Elín hafa virkilega gaman af kynlífi eins og svo margir aðrir. Þær hafa lært margt á upp á eigin spýtur enda var kynfræðslan sem þær fengu á uppvaxtarárunum ekki upp á marga fiska. Aukin fræðsla um samþykki og líkamsstarfssemi kvenna hefði t.d. komið sér sérstaklega vel! Indíana Rós Ægisdóttir, mastersnemi í kynfræði, spjallar við þær um mýtuna um meyjarhaftið, typpamiðaðar kynlífsstellingar, réttu sleipiefnin, G-blettinn og vanrækslu snípsins.
    0 min
  • Gerendur
    Sunna og Elín eru hluti hins fjölmenna hóps kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi af hálfu karla. Gerendur kynbundins ofbeldis eru ýmist fordæmdir eða fyrirgefið gjörsamlega af samfélaginu og eru jafnvel andlit fyrirtækja, tónlistarhátíða, kvikmynda og leikhúsa. Skuggalegir nauðgarar í húsasundum eru taldir hin verstu skrímsli en hvað með góðlega menn sem leyna á sér og axla aldrei ábyrgð á gjörðum sínum? Gestur þáttarins er Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Sunna, Elín og Sigþrúður ræða Twitter-umræðuna, sakleysislega ofbeldismenn, gerendameðvirkni og möguleg úrræði. “Nauðgunarmenningin“ eftir Bjarna Karlsson http://www.visir.is/g/2018180839998 “Opið bréf til Sr. Bjarna Karlssonar“ eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur forynju Kvennahreyfingarinnar: http://www.visir.is/g/2018180909782/opid-bref-til-sr.-bjarna-karlssonar “Hverjir eru allir þessir gerendur?“ eftir Ólöfu Skaftadóttur: http://www.visir.is/g/2015706069995 Viðtal við skáldið Virginie Despentes sem skrifaði “Baise Moi“ eða “Rape Me“ https://www.youtube.com/watch?annotation_id=annotation_3801020315&feature=iv&index=2&list=PLaXYmy6yM19PqgP7dqE-bXPrK1ppRZV-T&src_vid=7ZYDGN4TPZU&v=FlVTXZ5Tzl4 https://www.kvennaathvarf.is/ https://www.stigamot.is/ http://heimilisfridur.is/
    0 min
  • Átröskun og samfélagið
    Sunna og Elín búa í samfélagi sem verðlaunar átraskanir. Í þætti vikunnar ræða þær við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, sviðshöfund og listakonu, sem opnaði sig nýlega um baráttu sína við átröskun. Þær spjalla um útlit sem mælikvarða á virði kvenna, innri Gollum-röddina sem segir okkur að grennast, hollustu sem vopn og það hvernig samfélagið upphefur skaðleg skilaboð um kvenlíkamann. Grein Ölmu Mjallar, Átröskun í sjúku samfélagi https://stundin.is/grein/7279/atroskun-i-sjuku-samfelagi/ Tónlistarmyndband eftir Ölmu Mjöll fyrir Hórmóna https://www.youtube.com/watch?v=6k_AAiQ-Otc The Male Glance https://www.theguardian.com/news/2018/mar/06/the-male-glance-how-we-fail-to-take-womens-stories-seriously
    0 min
  • Konur á skjánum
    Sunna og Elín horfa stundum á bíómyndir og þætti. Þeim finnst samt alltaf eins og söguþræðirnir séu einsleitir og kvenpersónurnar ófrumlegar og einfaldaðar. Hvað ef fleiri konur gerðu bíómyndir? Elín og Sunna ræða Bechdel-prófið, nauðgunarmenningu sem rómantík, Reese Witherspoon og það hvernig James Bond er sama um samþykki. Movies by Her http://moviesbyher.com/ What it's Like to be a Woman in Hollywood - Naomi McDougall Jones https://www.ted.com/talks/naomi_mcdougall_jones_what_it_s_like_to_be_a_woman_in_hollywood 7 Reasons So Many Guys Don't Understand Sexual Consent http://www.cracked.com/blog/how-men-are-trained-to-think-sexual-assault-no-big-deal/ Tea consent https://www.youtube.com/watch?v=oQbei5JGiT8 Kvikmyndafyrirtæki Reese Witherspoon https://hello-sunshine.com/ "
    0 min
  • Skaði
    Sunna og Elín eru gagnkynhneigðar sískonur og njóta forréttinda sem slíkar. Þær hefur lengi langað að stækka sjónarhorn þáttarins og gestur þeirra að þessu sinni er Skaði Þórðardóttir. Þær ræða saman um lífið á hormónum, viðhorfsbreytingar gagnvart hinsegin fólki á síðustu 25 árunum eða svo, kynhegðun höfrunga og múrverk.
    0 min

About Smá pláss

From the publisher's feed

Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll…