Smá pláss

Smá pláss

Download on the App Store

Smá pláss episodes

  • Femínismi 101
    Sunna og Elín eru ennþá að berjast fyrir réttindum kvenna - en af hverju? Er nokkuð eitthvað misrétti á Íslandi? Er jafnrétti ekki bara náð? Sunna og Elín taka fyrir grundvallaratriði femínisma í eitt skipti fyrir öll. Þær útskýra að launamunur kynjanna sé staðreynd, femínistar hati ekki alla karlmenn og það sé í raun langt í land hvað varðar kynjajafnrétti, á Íslandi sem og annars staðar. Hættið síðan að treysta á tilfinningavinnu kvenna og gúglið þetta bara.
    0 min
  • Túr
    Sunna og Elín fara á túr einu sinni í mánuði og finnst það frekar glatað. Margar konur burðast með skömm hvað varðar blæðingar og hafa notað öll trixin í bókinni til að fela þær fyrir fólkinu í kringum sig. Elín og Sunna skila skömminni og ræða bleikan skatt, pillupásur, súkkulaði, ónýtar nærbuxur, kynlíf á túr og fleira.
    0 min
  • Auglýsingar
    Sunna og Elín eru ekki nógu góðar EN hér er vara sem þær geta keypt til að verða betri, grennri og með lengri augnhár! Þáttur vikunnar er um auglýsingar og hvernig enginn getur staðist skilaboðin sem þær lauma inn i undirmeðvitundina daglega. Það nýjasta er að auglýsa allt sem valdeflandi í tilraun til að fá unga woke femínista til að kaupa dót og líða vel með það. Sunna og Elín ræða laumuhýsla, Fiji-eyjar og túrbumbur og reyna að finnast allar myndir af sér vera góðar myndir.
    0 min
  • Stefnumótamenning
    Sunna og Elín ákveða að taka léttara umræðuefni í kjölfar síðustu þátta sem fjölluðu um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Þær ákveða að ræða um skemmtilega hluti eins og hækkaða standarda, ástríðufullt samþykki og sænskt ljóðskáld, en nauðgunarmenningin er fljót að setja grátt ský yfir umræðuefnið. My Dad Wrote A Porno http://www.mydadwroteaporno.com/ I Am a Tinder Guy Holding a Fish and I Will Provide for You https://www.newyorker.com/humor/daily-shouts/i-am-a-tinder-guy-holding-a-fish-and-i-will-provide-for-you Cat Person https://www.newyorker.com/magazine/2017/12/11/cat-person
    0 min
  • Stafrænt kynferðisofbeldi
    Sunna og Elín fá til sín Huldu Hólmkelsdóttur sem leitaðist við að skilgreina stafrænt kynferðisofbeldi í BA-ritgerðinni sinni “Syndir holdsins“ árið 2016. Sunna, Elín og Hulda ræða um stafrænt kynferðislegt áreiti, nektarmyndir, dick-pics, gauramenningu og hvernig lögin í dag ná ekki utan um stafræna kynferðisofbeldið. Hulda segir þeim frá æskuvinkonu og frænku sinni Tinnu Ingólfsdóttur sem varð fyrir grófu stafrænu kynferðisofbeldi þegar að nektarmyndir sem hún tók 13 ára voru settar í dreifingu á ýmsum netmiðlum. Hulda Hólmkelsdóttir “BA-ritgerðin Syndir holdsins: „Þetta er ekki klám heldur ofbeldi“ http://www.visir.is/g/2016160719530 Tinna Ingólfsdóttir „Ég var ófermd og bara krakki“ - Myndirnar enn í drefingu á netinu“ http://www.visir.is/g/2014140429639/-eg-var-ofermd-og-bara-krakki-myndirnar-enn-i-drefingu-a-netinu- Awards for Good Boys https://www.instagram.com/awardsforgoodboys/?hl=en ALEC WITH PEN https://www.instagram.com/alecwithpen/?hl=en CONVERSATIONS WITH PEOPLE WHO HATE ME http://www.dylanmarron.com/podcast/
    0 min
  • Kynferðisleg áreitni
    Sunna og Elín hafa eins og svo margar aðrar konur verið áreittar kynferðislega ótal sinnum. Þrátt fyrir alla umræðuna sem hefur vaknað upp á síðkastið eru margir sem gera lítið úr slíkri áreitni, normalísera hana eða trúa einfaldlega ekki að hún sé til. Sunna og Elín segja frá ástarbréfum frá viðskiptavinum, „fyndnum“ yfirmönnum, götuáreiti og fleiru - og þetta er ekki nema brotabrot af því sem bara þær tvær hafa lent í.
    0 min
  • Svikaraheilkennið
    Sunna og Elín upplifa sig stundum sem svikara. Loddaralíðanin á það til að laumast upp að þeim eins og gremlins og telja þeim trú um að þær hafi komist áfram í lífinu óvart eða með svikum, en ekki á eigin verðleikum. Þrátt fyrir grillheila Elínar ræða þær um fimm mismunandi tegundir svikaraheilkennis, Arnold Schwarzenegger og að missa kúlið.
    0 min
  • Taka pláss
    Sunna og Elín mega taka smá pláss! Konum er frá unga aldri kennt að vera hljóðlátar, hlýðnar og til friðs og að gera helst aldrei mistök. Á meðan fá strákar að hafa hátt og taka áhættur. Það er ekki auðvelt að aflæra þessa hegðun en Sunna og Elín gera sitt besta, auk þess sem þær ræða launahækkanir, kraftpósur og bikinirassa í SMÁ PLÁSS vikunnar.
    0 min
  • Karlmennskan
    Sunna og Elín spjalla við Þorstein V Einarsson, upphafsmann #karlmennskan-byltingarinnar, um skaðlega karlmennsku, samkennd, naglalakk og meint hlutverk kynjanna. Þorsteinn segir frá hvernig karlmennskan hefur haft áhrif á sig og hvernig hún getur þróast út í að hafa skaðleg áhrif. Hún hefur vald til að móta hegðun karlmanna á einsleitan hátt en á sama tíma virðist þurfa lítið til að ógna henni. Elín, Sunna og Þorsteinn ræða m.a. um stereótýpur, tilfinningar, dyggðir og orðfæri í umræðum um femínisma, og láta sig dreyma um framtíð þar sem karlmennska er frjálslegri og hlýrri.
    0 min
  • Trúverðugleiki kvenna
    Sunnu og Elínu finnst eins og stundum sé ekki tekið mark á því sem þær segja. Hversu oft hafa þær lent í aðstæðum þar sem frásögn þeirra er dregin í efa? Hversu oft hafa þær komið með hugmynd upp á borðið en einhvernvegin virðast hún ekki komast til skila fyrr en karlmaður endurtekur eða tekur undir hana? Hversu algengt er að afskrifa skoðanir, frásagnir og framkomu kvenna sem tilfinningasemi, hysteríu og fáfræði? Elín og Sunna ræða óttann við að segja frá ofbeldi og áreitni í samfélagi sem stimplar konur sem athyglissjúkar. Þær minna sig á að samfélagið hefur forritað þær til þess að draga úr sjálfum sér í ofanálag, og reyna að segja ekki “kannski“, “held ég“ og “bara“ í öðru hverju orði.
    0 min

About Smá pláss

From the publisher's feed

Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll…