Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson ritstjóri

By Snorri MássonNews
Download on the App Store

Snorri Másson ritstjóri episodes

  • Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills

    Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

    1 hr 30 min
  • Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun

    Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

    1 hr 42 min
  • Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar

    Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fleira.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

    1 hr 35 min
  • Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið

    Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar.

    Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

    1 hr 25 min
  • Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat

    Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.
    Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/mogginn/dagmal/thjodmalin/251780/%3F_t%3D1723759196.5559003
    Hér má nálgast þátt Skoðanabræðra um Nassim Nicholas Taleb: https://www.patreon.com/posts/327-allt-um-einn-110181893?utm_medium=clipboard_copy&utm_source=copyLink&utm_campaign=postshare_creator&utm_content=join_link

    27 min
  • Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði

    Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið.


    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

    28 min
  • Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið

    Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.

    1 hr 39 min
  • Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar

    Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

    1 hr 39 min
  • Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund)

    Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridley, stöðu Íslands og Bretlands í evrópsku samhengi, við ræðum Evrópusambandið, um misfellur í frjálslyndu lýðræði nútímans og margt, margt fleira.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

    1 hr 13 min
  • Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki

    Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni.

    Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup. 

    24 min

About Snorri Másson ritstjóri

From the publisher's feed

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á…

More shows like Snorri Másson ritstjóri

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners