
Sign up to save your podcasts
Or


Slúður um handtöku Pírata, afnám styrkja til stjórnmálaflokka sem Sjálfstæðisflokkurinn hagnast mest á, fullveldisdagurinn og í því samhengi: Víkingar vakna, og loks kynjamál Ríkisútvarpsins.
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.
Fyrirhuguð hert löggjöf um hatursorðræðu á Írlandi tekur ekki aðeins til efnis sem þú deilir, heldur líka efnis sem þú hefur í vörslu þinni. Þróunin er víti til varnaðar.
24 milljónir í „skaðabætur“ til skrifstofustjóra. Ef við megum ekki reka neinn, verðum við eiginlega að reka alla.
Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.
Illa heppnaður áætlunarbúskapur Seðlabankans og nýr forseti Argentínu sem vill leggja niður seðlabanka. Einnig: Dagur erlendrar tungu og brellan sem er „samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja.“
Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.
Eiríkur Atli Hlynsson er 27 ára verkfræðingur og iðnaðarmaður með eigið fjölskyldufyrirtæki, sem fór fyrr í þessum mánuði til Tyrklands í hárígræðslu. Hann segir enga skömm að því að bregðast strax við hármissinum – og mælir heils hugar með því að leggja land undir fót.
Grein af ritstjori.is: Valdarán eru ekki lengur bara í sögubókunum. Hvað eiga Spánverjar, Argentínumenn og OpenAI sameiginlegt þessa dagana?
Fréttir vikunnar eru lentar. Í dag beinum við sjónum okkar að nýjum „tímabundnum“ skatti stjórnvalda, stríðsátökum í Palestínu, ritskoðun á samfélagsmiðlum og íslenskri tungu.
Samstarfsaðilar í fréttum vikunnar eru Þ. Þorgrímsson, Domino's og Hringdu.
Helsta ógnin sem steðjar að íslenskri tungu er viðhorf sjálfra Íslendinga, að sögn prófessors í málvísindum. Þeir eru haldnir minnimáttarkennd.
Elín Þöll Þórðardóttir er prófessor við McGill háskóla í Montréal í Kanada. Hún hefur starfað við rannsóknir á sviði málvísinda og talmeinafræði við erlenda og íslenska háskóla og hefur verið búsett utan landsteinanna í meira en 25 ár. Á undanförnum árum hefur hún meðal annars fengist við rannsóknir á tvítyngi íslenskra barna og í því samhengi, stöðu íslenskrar tungu. Við förum yfir flókna stöðu íslenskunnar á degi íslenskrar tungu með Elínu.
Hluti greinar af www.ritstjori.is: Hugsað til Gísla Pálma í viku íslenskrar tungu. Hvað finnst okkur um átak stjórnvalda af þessu tilefni? Og voru Ástríkur og Steinríkur „woke“?
Í fréttum vikunnar að þessu sinni förum við yfir augljós kosningasvik Framsóknar, alveg ótrúleg ummæli oddvita Pírata um Morgunblaðið, ritskoðunartilburði á sviði gervigreindar og þörfina á því að íslenskir auðmenn gefi til baka til samfélagsins. Einnig: Hugmyndafræði í listrýni á RÚV.
Ritstjórinn minnir á samstarfsaðila frétta vikunnar, Þ. Þorgrímsson, Domino’s Pizza og Hringdu.
From the publisher's feed

91 Listeners