
Sign up to save your podcasts
Or


Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira.
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira.
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt margt fleira.
Arnór Guðjohnsen er nafn sem allir íslenskir knattspyrnuáhugamenn geyma, enda er hann einn albesti fótboltamaður Íslandssögunnar. Hér ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þáttarins í knattspyrnu og íþróttum, en Arnór vinnur nú hörðum höndum að verkefni sem því tengist.
Róbert Marshall hefur víða komið við á löngum og mögnuðum ferli. Hann vann um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi, stofnaði svo Fréttastöðina NFS ásamt fleirum, áður en hann fór síðar í stjórnmál, þar sem hann sat á þingi. Á síðustu árum hefur hann unnið við ástríðuna, sem er útivist og fjallaferðir, en er nú í starfi sem ráðgjafi forsætisráðherra. Í viðtalinu fara Róbert og Sölvi yfir alla þessa hluti og margt margt fleira.
Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst best á komandi árum til að bæta vellíðan og geðheilsu fólks.
Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fordóma á tímum sem voru allt aðrir en í dag. Þau fara jafnframt yfir mikilvægi þess að hrista upp í menntakerfinu, hlusta á börn og þora að fara gegn straumnum.
Ágústa Johnson er einn stærsti frumkvöðull í heilsurækt á Íslandi. Á unga aldri var hún á leið í nám í arkítektúr þegar hún ákvað að skipta um takt og elta ástríðuna. Eftir að hafa menntað sig í íþróttafræði og viðskiptum stofnaði hún sína fyrstu líkamsræktarstöð, Stúdíó Jónínu og Ágústu og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hefur nú um árabil rekið Hreyfingu með góðum árangri. Hér ræða hún og Sölvi um feril Ágústu, lyklana í að vera frumkvöðull, mikilvægi heilsu og margt margt fleira.
Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fleira og fleira.
Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days