
Sign up to save your podcasts
Or


Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaðarekstri á Mallorca, leiksýningin þar sem kveikt var í honum fyrir framan Ólaf Darra og margt margt fleira.
Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira.
Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ástríðuna fyrir leiklistinni og margt margt fleira.
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var Jónas orðinn efins um það hvaða stefnu fyrirtækið væri að taka og kom aftur heim til Íslands. Hér ræða Sölvi og Jónas um stöðu upplýsingaflæðis í nútímanum, hvert gervigreind er komin, hversu öflugir algóritmarnir eru orðnir og svo auðvitað um tónlistina og ástríðurnar í lífinu.
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, tengslin við glæpastarfsemi, endurkomu Skítamórals og þakklæti Einars fyrir að vera enn á lífi.
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn verður allt annar en sá sem við höfum vanist.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira.
Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira.
Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á tíðum verið verulega skrautlegt.
Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi Jr. er orðinn eins konar nýrrar kynslóðar Laddi eða Hemmi Gunn. Hann hefur lengi verið einn af þekktari grínistum Íslands, en á einnig mjög vinsæl lög, leikstjórnarverkefni, handritaskrif og leiklistarframmistöðu á ferilskránni. Steindi hefur allt frá fyrsta degi sýnt mikinn metnað í öllum sínum verkefnum, eins og augljóslega má sjá. Hér ræða Steindi og Sölvi um upphafið að þessu öllu, metnaðinn, hugrekkið til að prófa nýja hluti og margt margt fleira
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days