
Sign up to save your podcasts
Or


Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, sambandið við Conor McGregor, stressið áður en farið er inn í búrið og margt margt fleira.
Vinirnir Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson hafa í áraraðir verið að gera grínefni saman, en á löngum köflum gekk það brösulega. Hjálmar fór að vinna á leikskóla og Helgi fór í jakkaföt og vildi verða bissnessmaður. En dropinn holar steininn og í dag eru þeir í fullri vinnu við að gera grínefni, bæði í Hlaðvarpinu Hæhæ og Hjálmar fer í gervi Hvítvínskonunnar nær daglega. Hér ræða þeir Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, gefast ekki upp, hætta að láta álit annarra stýra sér og margt margt fleira.
Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.
Guðlaugur Victor Pálsson fékk samning hjá Liverpool aðeins 17 ára gamall og var einn efnilegasti leikmaður sem sést hafði lengi á Íslandi. En æska hans var erfiðari en hjá flestum. Í dag er hann orðinn fastamaður í landsliðinu og hefur verið fyrirliði síðustu tveggja liða sem hann hefur spilað með. Hér ræða hann og Sölvi um hæðirnar, lægðirnar, rasisma, drauminn um að fara á stórmót með Íslandi og margt margt fleira.
Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn".
Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona er magnaður einstaklingur. Sem ung kona vann hún á Falklandseyjum, þar sem hún ferðaðist med herflugvélum. Eftir að hafa misst manninn sinn á hræðilegan hátt hefur hún komist á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og verið valinn iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík. Hér fara hún og Sölvi yfir allt þetta og margt margt fleira.
Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins.
Rúrik Gíslason hefur í gegnum árin verið lykilmaður gullkynslóðarinnar í fótbolta. Á HM 2018 varð hann heimsfrægur á einni nóttu. Hér ræða hann og Sölvi um HM, Instagram ævintýrið, móðurmissi Rúriks, álit annarra og margt fleira.
Guðmundur Benediktsson er almennt talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, en lenti ungur margoft í slæmum meiðslum. Hann er nú orðinn heimsþekktur fyrir lýsingar sínar á knattspyrnuleikjum. Hér ræða hann og Sölvi um fjölmiðla, feril Gumma Ben og einstaklingana sem gera íþróttir að hreinni listgrein.
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar ótrúlegu konu.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days