Spegillinn

Spegillinn

By RÚV
Download on the App Store

Spegillinn episodes

  • Áhrif gervigreindar á störf og atvinnuhorfur tölvunarfræðinga, líffræðileg fjölbreytni
    Viðmælendur Spegilsins segja að gervigreindin, sem hefur margfaldað afköst við hugbúnaðargerð, sé ein af skýringunum á auknu atvinnuleysi tölvunarfræðinga en margt spili inn í. Bæði eru þau bjartsýn á atvinnumöguleika tölvunarfræðinga til framtíðar.
    Sáttmálinn um verndun líffræðilegs fjölbreytileika er einn þriggja meginsáttmála sem þjóðir heims komu sér saman um á Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro sumarið 1992. Hinir snúa annars vegar að aðgerðum til að hamla gegn loftslagsbreytingum og hlýnun Jarðar, og hins vegar að vörnum gegn eyðimerkurmyndun. Óhætt er að segja að illa hafi gengið að ná þeim árangri sem að var stefnt.
    20 min
  • Atvinnuleysi tölvunarfræðinga, Alberta og Kanada og norðurslóðastefna ESB
    Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum. Í október 2024 voru 128 með slíka menntun atvinnulausir en í september á þessu ári voru þeir orðnir 215. Rúnar Pálmason kannaði hverju sætir og ræddi við Ástu Ásgeirsdóttur hjá Vinnumálastofnun.
    Lengi hefur gætt nokkurrar tortryggni í Alberta-fylki í Kanada í garð stjórnarinnar í höfuðborginni Ottowa. Og sú tortryggni er ekki horfin þrátt fyrir að niðurstöður atkvæðagreiðslu í fylkinu sýndu afgerandi vilja íbúa í Alberta til að vilja vera áfram innanbúðar í Kanada. Hallgrímur Benediktsson, prófessor í Calgary í Albertafylki rýnir í úrslitin og þýðingu þeirra í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur.
    Evrópusambandið ætlar að auka samstarf við ríki á Norðurslóðum, sérstaklega hvað varðar öryggis- og varnarmál, samkvæmt uppfærðri stefnu sambandsins sem kynnt var í dag. Samstarf við Grænlendinga er hornsteinninn í þessari áætlun og andstaðan við orkuvinnslu á norðurslóðum er ekki eins afgerandi og í fyrri áætlun. Björn Malmquist fer yfir málið.
    Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
    Tæknimaður: Kári Guðmundsson
    20 min
  • Dómur Danmörku fyrir að búa til barnaníð með gervigreind og sumarvinna ungs fólks á undanhaldi
    Nýlega féll dómur í Hæstarétti Danmerkur þar sem tekist var meðal annars á um hvort barnaníðsefni sem væri búið til með gervigreind skaðaði börn. Niðurstaða dómsins var að svo væri. Íslensk lög hníga í sömu átt segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við HR:
    Rannveig Rist fyrrverandi forstjóri álversins í Straumsvík ræddi nýlega um sjálfsmynd Íslendinga - þeir héldu að þeir væru svo kvikir og fljótir að bregðast við en væru í raun oft frekar staðnaðir og hlypu hver á eftir öðrum. Í ræðu sinni á ársþingi Samtaka atvinnulífsins vék hún líka að mikilvægi sumarvinnu ungs fólks, sem væri á undanhaldi.
    20 min
  • Nýr forseti ASÍ, smábátasjómenn í ólgusjó
    Georg Páll Skúlason var í dag kjörinn forseti Alþýðusambandsins. Við ræðum við hann um deilurnar innan ASÍ, helstu verkefni, stefnu, gagnrýni á framgöngu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra og fleira.
    Fertugasti og annar aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst í gær og lauk síðdegis í dag. Þar var Kjartan Páll Sveinsson endurkjörinn formaður og hann ræðir um það helsta sem brennur á smábátasjómönnum í upphafi þessa fiskveiðiárs
    21 min
  • Að vera eða vera ekki þingmaður Viðreisnar & átök í verkalýðshreyfingunni
    Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í dag og bar við ólíkum áherslum og ágreiningi um forgangsmál. Hann segist þó ætla að vera áfram í Viðreisn og styðja hvorutveggja flokkinn og ríkisstjórnina áfram, og hefur gert um það skriflegan samning við flokk sinn. Samkvæmt honum heldur Jón nánast óbreyttri nefndarsetu, auk þess sem hann hefur sama aðgang að stoð- og sérþjónustu þingflokksins og áður. Ævar Örn fer yfir þessa óvenjulegu stöðu með Evu Heiðu Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands.
    Átök og núningur milli formanna tveggja stærstu verkalýðsfélaga í Alþýðusambandi Íslands, Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar og Höllu Gunnarsdóttur formanns VR hefur verið áberandi í aðdraganda þings sambandsins sem lýkur á morgun. Þar verður kosin ný forysta og nýr forseti sambandsins. Ágreiningur í verkalýðshreyfingunni er ekki nýr af nálinni. Sigurður Pétursson sagnfræðingur telur að segja megi að tvær blokkir hafi myndast í síðustu kjarasamningum. Öðrum megin sé VR og hins vegar Efling og SGS, iðnaðarmannafélögin skiptist á milli en ekki gott að greina ástæðurnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð.
    Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
    Tæknimaður: Mark Eldred
    21 min
  • Vondar fréttir frá Úkraínu, haustráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar vegna loðnuveiða, sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir vondar fréttir berast frá Úkraínu og um margt sé ástandið þar eins og á fyrstu dögum stríðsins fyrir fjórum árum.
    Haustráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir komandi loðnuvertíð olli vonbrigðum.
    Fólk með þroskahömlun er fullfært um að taka eigin ákvarðanir með réttum stuðningi segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun á Íslandi.
    .
    20 min
  • Landspítalann skortir milljarða í reksturinn og björgunarskip Landsbjargar
    Fjármálaráðherra lagði fram hallalaus fjárlög þegar þing kom saman, tekjurnar sem þar var gengið út frá hafa þegar skerst um einn og hálfan milljarð vegna aðgerða stjórnarinnar til að stuðla að kjarasamningum og rekstrargatið sem blasir við Landspítalanum á næsta ári er upp á um tvo milljarða.
    Og það vantar víðar fé; til að ljúka fjármögnun á nýjum björgunarskipum Landsbjargar vantar um einn og hálfan milljarð.
    20 min
  • Ólga í verkalýðshreyfingunni ekkert ný og fjölgar hægt í STEM- greinum
    Finnbjörn Hermannsson kveður ASÍ í vikunni, en hann hefur verið forseti ASÍ síðan vorið 2023. Hann segir að óstyrk hagstjórn og sveiflur á vinnumarkaði séu erfiðasta verkefnið en styrkur Alþýðusambandsins felist í samtakamættinum.
    Forsetar Tæknisviðs HR og Verkfræði og náttúruvísindasviðs HÍ segja báðir að gjá hafi myndast á milli framhaldsskóla og háskóla. Nemendur komi nú verr undirbúnir en áður sem geti haft áhrif á aðsókn í svokallaðar STEM-greinar í háskólunum.
    20 min
  • Samskipti á vinnumarkaði, einmanaleiki og fæðingarþunglyndi
    Ólga og spenna eru ábyggilega þau orð sem hvað oftast koma upp þegar fjallað er um íslenskan vinnumarkað og kjarasamninga. Mikilli spennu var aflétt þegar loks varð ljóst í gær að samningum á almennum markaði yrði ekki sagt, upp þrátt fyrir að forsendur um verðbólguviðmið hefðu brostið. Niðurstaðan er sú að samningar halda næsta árið og svo kemur í ljós hvað tekur við.
    Einmanaleiki er vaxandi meinsemd víða og Ísland ekki undanskilið. Mæður í fæðingarorlofi segjast oftar einmana en áður og hlutfall þeirra sem sýna einkenni fæðingarþunglyndis hefur tvöfaldast á rúmlega áratug.
    21 min
  • Sameining og sundrung í Suðurnesjabæ, mótmæli gegn nátturugjaldi og stækkunarstefna Evrópusambandsins
    VIðræður um nýjan meirihluta. í Suðurnesjabæ eru farnar af stað og sagðar ganga vel. Fyrri meirihluti sprakk eftir fjögurra mánaða samstarf og á miðju síðasta kjörtímabili þurfti líka að mynda nýjan meirihluta. Má kannski segja að það hafi verið frekar róstusamt í sveitarstjórninni í þessu tiltölulega nýja sveitarfélagi sem varð til fyrir um átta árum þegar Garður og Sandgerði gengu í eina sæng. Í bæði skiptin hefur verið vísað til ágreinings um hvort nýr gerfigrasvöllur eigi að vera í Sandgerði eða Garði. Róbert Ragnarsson sem hefur verið ráðgjafi við sameiningu margra sveitarfélaga neitar því að þetta sýni að sameiningin hafi ekki tekist.
    Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt náttúru- og innviðagjald rann út í gær. Alls bárust 35 umsagnir, langflestar neikvæðar. Sveitarfélög á Suðurlandi benda meðal annars á að ósanngjarnt sé að gjald sem þetta sé eingöngu lagt á þá ferðamenn sem fara Gullna hringinn. Umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar er ítarlegust, alls 39 blaðsíður. Rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra þeirra.
    Stækkunarmál Evrópusambandsins verða ofarlega á dagskrá leiðtogafundar sambandsins í Brussel í næstu viku. Framkvæmdastjórn ESB leggur til varnagla fyrir verðandi aðildarríki, og Úkraínumenn eru ekki sáttir við hugmyndir um að takmarka aðgang þeirra að innri markaðnum.
    20 min

About Spegillinn

From the publisher's feed

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

More shows like Spegillinn

Vikulokin by RÚV

Vikulokin

7 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners