Spekingar Spjalla

Spekingar Spjalla

By PodcaststöðinComedy
Download on the App Store

Spekingar Spjalla episodes

  • 206. Slúður, TeyTey hornið, Myndir´ðu Fyrir Smá Aur, Topp 3 og Kvikmyndaskorið

    Lóan mætt á landið og kom með brakandi Spekinga þátt með sér. SlúSlú á sínum stað, Karen las yfir Spekingum í TayTay horninu, ósætti í Myndir´ðu Fyrir Smá Aur, Topp 3 búningar í svefnherberginu (já skrýtið ég veit) og eðal kvikmyndaskor.

    Upptökur fóru fram í ⁠Nóa Síríus⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠Gull Lite⁠.

    1 hr 33 min
  • 205. Stóra Skíðaferðin, Slúður, To Eat Or Not To Eat, Topp 3 og Myndir´ðu fyrir Aur

    Loksins loksins þáttur. Spekingar stórskuldugir þáttalega séð. Stóra skíðaferðin rædd, eða þ.e.a.s. það sem má ræða um, brakandi Slúður beint úr ofninum, Jón með To Eat Or Not To Eat, Topp 3 páskaegg og ljómandi Myndir´ðu fyrir Aur.

    Upptökur fóru fram í ⁠Nóa Síríus⁠ stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði ⁠Gull Lite⁠.

    1 hr 34 min
  • 204. Matti undirbýr maraþon, símtal til Ítalíu og ódauðlegar klippur úr smiðju Spekinga

    Þau eru ekki mörg brúttótonnin á skipi Spekinga þessa vikuna heldur er um að ræða árarbát. Vandræði í einkalífinu leiddu til þess að 3/4 hluti meðlima Spekinga neyddust til að hverfa af landi brott á meðan hlutirnir kólna. Örvæntið ei, skipstjórinn flýr ekki skip sitt og stýrir skútunni einn síns liðs, kaldur og hrakinn en með bros á vör. 

    Í Skipsbók voru skráð eftirfarandi dagsverk:

    1. Rakin var ástæða þess að Matti hleypur heilt maraþon í ár.

    2. Símtólið rifið upp og símasamband á Ítalíu kannað.
    3. Dregnar í land gamlar klippur úr þætti Spekinga með stjörnu Íslands, Sigga Gunnars.
    4. Gert að og flökuð gömul klippa úr þætti Spekinga með Valla Sport.
    5. Kári Stef fer með hinstu orð (þáttarins, Kári er sprell).
    Fleiri voru dagsverkin ekki. Áhafn (áhöfn í eintölu) fór í koju.
    Ritað í Kollafirði hinn 2. mars 2023.

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    51 min
  • 203. Létt Slúður, TayTay hornið, Topp 3, Vel eða Kvel, Myndir þú fyrir Smá Aur, To Eat or Not To Eat

    Í ólgusjó hækkun stýrivaxta, verkföll daglegt brauð og nú verkbann, þá róa Spekingar á miðin. Mikil óvissa framundan en það eina sem er víst, er að Spekingar eru mættir. Slúðrið var allt mjög óljóst hjá Matta, TayTay hornið vafasamt, Topp 3 skyndibitakeðjur, menn óvissir í Myndir Þú Fyrir Smá Aur og To Eat or Not To Eat kom verulega á óvart. Allt fyrir ykkur kæru hlustendur. 

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 33 min
  • 202. Slúðrið, Létt lesendabréf, TayTay hornið, Topp 3, Myndirðu fyrir smá Aur og Fáránlegar staðreyndir.

    Sumir Spekingar eru hressari en aðrir á þessu fimmtudagskvöldi og Sæþórs var sárt saknað. Á borði Spekinga var Slúðrið, Topp 3, mjög létt lesendabréf sem kom á óvart, TayTay hornið, Myndirðu fyrir smá Aur og Fáránlegar staðreyndir voru fáránlegar að þessu sinni.

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 22 min
  • 200. Slúðrið, TayTay Hornið, Topp 3, Myndir´ðu fyrir smá Aur, Vel eða Kvel og Fáránlegar Staðreyndir

    200 þættir í hús. Spekingar eru fullmannaðir þó skipið skríði seint að bryggju þessa vikuna. Slúðrið sjóðandi, TayTay Hornið lét okkur heyra það, Topp 3 uppáhalds Spekinga þættirnir okkar, Myndir´ðu fyrir smá Aur leyndi á sér, Vel eða Kvel verulega óþæginlegt og Fáránlegar Staðreyndir stóður fyrir sínu.

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 21 min
  • 199. Slúðrið, TayTay hornið, Fáránlegar staðreyndir, Topp 3, Myndirðu fyrir smá Aur og Vel eða Kvel.

    Flottur þáttur hjá strákunum þó svo að Sæþór hafi vantað (útaf dálitlu). Slúðrið er að sjálfsaögðu á sínum stað, TayTay hornið fékk bréf, nýr liður Fáránlegar staðreyndir, Topp iðnaðarjobbið, Myndirðu fyrir smá Aur og Vel eða Kvel var með uppákomu. 

    Við minnum á að það er hægt að senda hlustendabréf á [email protected] ef þér liggur eitthvað á hjarta hlustandi góður. 

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 27 min
  • 198. Slúðrið, Hlustendabréf, Hocky Hornið, Vel eða Kvel, Topp 3, Myndir´ðu fyrir smá Aur og Gull Lite Testið

    Ný vika nýjar áskoranir. Full skipuð vakt hjá Spekingum í dag. Ágreiningur í Slúðrinu, Hlustandi sendi Spekingum bréf, Hocky Hornið aftur eftir hvíld, Vel eða Kvel tengt íslenskum landsliðsmönnum, Topp 3 bestu kvenn uppistandararnir, hversu langt erum við til í að ganga í Myndir´ðu fyrir smá Aur og nýtt tvist í Gull Lite Testinu.

    Línan er opin fyrir hlustendur og endilega sendið JútjúpJóni allt sem liggur ykkur á hjarta á netfangið [email protected].

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 43 min
  • 197. Slúðrið, TayTay hornið, Topp 3, Myndirðu fyrir smá Aur, Vel eða kvel.

    Spekingar komu saman í Nóa Síríus stúdíóinu án Sæþórs í þetta skiptið. Brakandi ferkst slúður í bland við klassískt gamalt og gott slúður, Nett bréf frá Karen í  TayTay, Topp 3 frægar línur í kvikmyndum, Myndirðu Fyrir Smá Aur og Vel eða Kvel þar sem Spekingar voru ekki alveg sammála um hvern skal velja og hvern skal kvelja. Góðar stundir.

    Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.

    1 hr 6 min

About Spekingar Spjalla

From the publisher's feed

Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.