Spekingar eru ekki fullmannaðir þessa vikuna í Nóa Síríus stúdíóinu, en Sæþór var vant við látinn. Farið var yfir vikuna, kíkt á það helsta í slúðrinu, en slúðurpakkinn var stútfullur þessa vikuna. Spekingar fóru yfir Topp 3 áhrifavaldana og Frægar línur komu aftur eftir stutt hlé og úrslitin voru heldur betur spennandi. Kaupa eða selja kom einnig eftir smá hlé og að sjálfsögðu fóru Spekingar yfir helgina.