Stílbrot kynnir nýjan lið og fær fyrsta gestinn sinn í settið til sín en við munum af og til fá gesti til okkar til að ræða hinar ýmsu hliðar tískubransans.
Fyrsti gesturinn okkar er hún Signý Björg en hún er ljósmyndari og stafrænn hönnuður sem hefur búið erlendis síðustu 20 ár og unnið fyrir stór stúdíó í gegnum tíðina. Hún hefur farið fjórum sinnum á Óskarinn og gefur okkur innsýn í þennan heim frá öðru sjónarhorni en við sjáum.
Við fjöllum einnig um stílistann Rachel Zoe sem er þessa dagana að slá í gegn í RHOBH og förum yfir ferilinn hennar.
Maya fer yfir útilegusögu sem endaði illa og þrá hennar að vera hlaupagella.
Tölum meira um Kennedy og förum yfir þráhyggjur og slúður eins og venjulega.
Þátturinn er unninn í samstarfi við:
Blue Lagoon Skincare
Vitamin Well
Nói Síríus
Þátturinn er tekinn upp í Klakinn Studio og sér Bryndís Arna Sigurðardóttir um upptöku og framleiðslu.
Sérstakar þakkir fær Þórhallur Gunnarsson.