Sviðsljósið

Sviðsljósið

By SviðslistamiðstöðArtsPerforming Arts
Download on the App Store

Sviðsljósið episodes

  • Puffins, Funding, and Shifting Stages

    What does it actually take to make art on moving ground? 🇮🇸🎭

    Recorded live at the SIBMAS 2026 Conference in Reykjavík, this episode takes you inside the June 10th Platform Event at the historic Iðnó theater. Host Salka Guðmundsdóttir sits down with Icelandic theater veterans Snæbjörn Brynjarsson, Aðalbjörg Árnadóttir, and Anna María Tómasdóttir for a hilarious, fierce, and candid look at the realities of the local independent scene.

    From the tragic conversion of downtown performance spaces into tourist puffin shops to a brutal space crisis and intense funding battles, the panel exposes how independent artists survive and thrive against the odds. It’s a raw, funny look at the beautifully unmarketable dreamers keeping the Icelandic stage alive.

    41 min
  • Óperan tekur á sig mynd

    Í þessum þætti af Sviðsljósinu ræðir Salka Guðmundsdóttir við Finn Bjarnason, fyrsta óperustjóra Óperunnar. Rætt er um uppbyggingu nýrrar óperustofnunar frá grunni, ráðningu fyrstu starfsmanna, stofnun söngvarahóps og undirbúning fyrstu stóru uppfærslunnar, Falstaff eftir Verdi.


    Finnur fer yfir hlutverk Óperunnar sem ríkisstofnunar, mikilvægi fræðslustarfs og tengsla við landsbyggðina, samstarf við sjálfstæðu óperusenuna og þau tækifæri sem skapast með bættum starfsskilyrðum fyrir íslenska söngvara. Einnig er rætt um verkefnaval, alþjóðlega reynslu Finns og hvernig Óperan getur þróast á komandi árum.


    Þátturinn veitir innsýn í eitt stærsta uppbyggingarverkefni íslensks sviðslista- og tónlistarlífs um þessar mundir og þá sýn sem liggur að baki framtíð óperulistar á Íslandi.

    33 min
  • Að segja sögur og láta spegilfrumurnar dansa

    Í þessum þætti Sviðsljóssins ræðir Salka Guðmundsdóttir við Berg Þór Ingólfsson, leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar. Bergur Þór er einn af kraftmestum leikhúsmönnum landsins – leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Við förum í gegnum feril hans, frá barnleikjum í Grindavík og námi í Leiklistarskóla Íslands til tuttugu og fjögurra ára í Borgarleikhúsinu og síðan yfir í leikhússtjórahlutverkið í Samkomuhúsinu á Akureyri. Við tölum um trúðaleikhús og frásagnargleði, um nýjustu frumsýningu LA – Birtingur eftir Voltaire – og um það hvers vegna klassískar satírur geta verið algjört pönk. Bergur Þór deilir einnig hugsunum sínum um mikilvægi fastasettra leikhópa, um tengsl leikhússins við samfélagið og um það hlutverk sem grátur og hlátur gegna þegar við opnum hjörtun hvert fyrir öðru.

    52 min
  • Nýtt meistaranám og framtíð sviðslista

    Hvað þarf til að listafólk geti vaxið í starfi og af hverju skiptir máli að kafa dýpra? Í nýjasta þætti Sviðsljóssins mæta þær Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskólans, og Una Þorleifsdóttir, deildarforseti sviðslistadeildar, í einlægt spjall.

    Tilefnið eru spennandi breytingar á meistaranámi sviðslistadeildar. Námið hefur verið til síðan 2016 en nú er lögð ný áhersla á sérhæfingu í leikstjórn, sviðshöfundanámi, kóríógrafíu og leikritun. Markmiðið er að bjóða listafólki upp á rými til að einbeita sér að sínu fagi og þróa eigin aðferðir í nánu samtali við aðra.

    Í þættinum líta þær Kristín og Una yfir þann aldarfjórðung sem liðinn er frá stofnun Listaháskólans og ræða hvernig skólinn hefur mótað íslenska sviðslistasenu. Þær rýna líka í starfsumhverfið og pólitíkina: Fær listafólk raunverulegt svigrúm til að rannsaka og prófa sig áfram, eða er kerfið of upptekið af því að dæla út nýjum sýningum?

    48 min
  • Hvar á að æfa og sýna? „Rými koma með súrefni“

    Húsnæðismál hafa lengi verið ein stærsta hindrunin fyrir sjálfstætt starfandi sviðslistafólk. Í nýrri úttekt sem ber heitið „Rými koma með súrefni“ kemur fram að 94% svarenda telja skort vera á rými til listsköpunar á höfuðborgarsvæðinu.

    Í þessum þætti fær Salka Guðmundsdóttir til sín Vigdísi Jakobsdóttur, menningarráðgjafa og leikstjóra, sem vann úttektina fyrir Menningarráðuneytið og Reykjavíkurborg.

    Vigdís fer yfir stöðuna og kynnir fjórar róttækar tillögur til úrbóta sem gætu blásið nýju lífi í senuna.

    Í þættinum er rætt um:

    • 🎭 Nýjan menningarkjarna: Hugmyndir um að sameina rekstur Tjarnarbíós og Iðnó.

    • ⬛ Svartan kassa: Þörfina á sveigjanlegu 100-200 manna sýningarými.

    • 🚛 Færanlegt leiksvið: Nýstárlega lausn til að ferðast með sýningar um landið og í úthverfi.

    • 💃 Danshús: Aðkallandi þörf fyrir framtíðarsýn í málefnum danslistarinnar.

    • 🏛️ Betri nýtingu: Hvernig nýta má opinbert húsnæði betur.

    Skýrslan Rými koma með súrefni varpar ljósi á hvernig aðstaða hefur bein áhrif á gæði, atvinnumöguleika og aðgengi almennings að listum.

    Umsjón: Salka Guðmundsdóttir Viðmælandi: Vigdís Jakobsdóttir

    43 min
  • Hvað þýðir að vera óperusöngvari í dag?

    Í þessum þætti Sviðsljóssins ræðir Salka Guðmundsdóttir við óperusöngvarana Þóru Einarsdóttur og Áslák Ingvarsson um óperuna sem listform og starfsvettvang á Íslandi. Þau ræða aðgengi, menntun, nýliðun, fjölbreytni og framtíð óperunnar – og hvernig það er í raun að starfa sem óperusöngvari í samtímanum.

    53 min
  • Leikhús fyrir alla – sviðslistir barna í brennidepli

    Hvernig geta sviðslistir fyrir börn blómstrað? Hvaða áhrif hefur list fyrir unga áhorfendur, og hvernig tryggjum við aðgengi barna að leikhúsi? Í þessum þætti Sviðsljóssins ræðir Salka Guðmundsdóttir við sviðslistakonurnar Aude Busson og Þórunni Örnu Kristjánsdóttur um mikilvægi barnamenningar, lýðræðislega þátttöku barna í listsköpun og þær áskoranir sem sviðslistir fyrir börn standa frammi fyrir í dag. Þær velta fyrir sér hvernig fjölbreytni í barnaleikhúsi getur aukist, hvernig stór leikhús og sjálfstæð senan geta stuðlað að betra aðgengi, og af hverju það skiptir máli að hlusta á raddir barna í sviðslistum.

    47 min
  • Gagnrýnendur í sviðsljósinu – Hlutverk og framtíð leikhúsgagnrýni

    Í öðrum þætti Sviðsljóssins fáum við til okkar gagnrýnendurna Sigríði Jónsdóttur og Þorgeir Tryggvason til að ræða um hlutverk og áhrif leikhúsgagnrýni. Hver er tilgangur menningarumfjöllunar? Hvernig hefur fjölmiðlaumhverfið breyst og hverjar eru afleiðingarnar fyrir sviðslistir?


    Við förum í saumana á mikilvægi gagnrýni fyrir listsköpun, áskoranir smæðar íslensks sviðslistageira og áhrif stjörnugjafar á dómgreind áhorfenda. Einnig veltum við upp spurningunni: Hvernig tryggjum við að leikhúsgagnrýni lifi af og þróist í takt við tímann?

    43 min
  • Sjálfstæðar sviðslistir og yfirvofandi kosningar: Hvaða framtíð viljum við?

    Í fyrsta þætti Sviðsljóssins ræðir Salka Guðmundsdóttir við Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóra Tjarnarbíós, og Jónu Hlíf Halldórsdóttur, forseta Bandalags íslenskra listamanna, í aðdraganda kosninga 30. nóvember.

    Samtalið snýst um stöðu sviðslista á Íslandi, styrkjaumhverfið og hvernig hægt er að skapa langtímasýn fyrir sjálfstætt starfandi listafólk. Þau ræða einnig sviðslistastefnu, rýmisþörf og hlutverk listmenntunar í framtíðinni, auk þess sem þau velta fyrir sér áhrifum nýrrar tækni eins og gervigreindar.


    Kosningaloforð og áskoranir sem framundan eru fyrir íslenskt listalíf fá sérstaka umfjöllun.

    44 min

About Sviðsljósið

From the publisher's feed

Sviðsljósið er íslenskt hlaðvarp sem varpar ljósi á sviðslistir og þau málefni sem móta íslenskt menningarlíf. Þáttunum stýrir Salka Guðmundsdóttir, sem leiðir umræðu um áskoranir, tækifæri og mikilvæg málefni sviðslista á Íslandi.