
Sign up to save your podcasts
Or


Þátturinn er í boði Quest Portal.
Þátturinn er í boði Quest Portal.
Þátturinn er í boði Quest Portal.
Railroad eða Sandbox? Á allt að vera opið í alla enda og allar ákvarðanir í höndum spilarana, eða er betra að stjórnandinn leiði hópinn áfram eftir einstigi?
Hver ert þú í þínu spunaspil? Skaparðu karakter sem er ýkt útgáfa af þér, eða ferðu langt út fyrir formið og býrð til eitthvað allt annað? Ætlaðirðu mögulega að gera það fyrra en lendir alltaf í því seinna?
Hvað á að gera þegar ekki allir spilarar komast? Á að spila eitthvað annað, eða á að halda áfram með framhaldssöguna? Og ef það er gert, hvernig fer þá með persónu spilarans? Hvað með félagslega þáttinn? Er í lagi að láta vita með hálftíma fyrirvara? Hvað með stjórnandann sem eyddi allri vikunni í að skrifa, þýða, teikna, mála, prenta og plasta?
Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum.
Hver er hinn eiginlegi munur því að spila og stjórna? Er annað göfugra en hitt? Er sanngjarnt að mesti undirbúningurinn lendi á einni manneskju eða eru verðlaunin nógu stór? Hvort er skemmtilegra? Hvert er hlutverk stjórnandans? Hversu mikið má spilari skipta sér af stjórnun spilsins? Þurfa öll að prófa bæði?
Hvort ert þú meiri spilari eða stjórnandi? Finndu umræðuhópinn okkar á Facebook og blandaðu þér í umræðuna.
Hvort er töff eða ótöff að spila spunaspil? Og skiptir það máli? Það skiptir í það minnsta nógu miklu máli til þess að hægt sé að gera heilan þátt um það og af nógu er að taka. Menn opinbera sig í þættinum og komast að niðurstöðu. LARP-samfélagið ætti að hlusta á þennan þátt því við erum með skilaboð/beiðni til þeirra.
Þetta málefni var tekið af Umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum.
Ævintýri út úr búð eða innan úr heila stjórnandans og jafnvel spilahópsins? Nú, eða einhver blanda úr hvoru tveggja? Þinn eigin heimur eða eitthvað sem hefur orðið til hjá öðrum? Er meira ekta að spila sitt eigið eða er göfugt að halda sig innan veggja veraldar sem heimsbyggðin spilar?
Hversu verðmætt er lífið í spunaspilum? Hvernig er að missa karakter sem spilari? Hvernig er að valda dauða karakters sem stjórnandi? Hvernig getur þetta skipt svona ógurlega miklu máli og hreyft við alvöru tilfinningum? Eigum við kannski öll að lifa endalaust? Og hvað varð um Arkadiuz Glod?
From the publisher's feed