Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Taktíkinni fjöllum við um íþróttir á landsbyggðunum. Við fáum ýmsa góða gesti úr íþróttalífinu í settið, ýmist íþróttafólkið sjálft, þjálfarana eða spekinga með mismunandi bakgrunn. Knattspyrna, han... more
FAQs about Taktíkin:How many episodes does Taktíkin have?The podcast currently has 107 episodes available.
December 03, 2020#96 Hólmfríður Jóhannsdóttir - Íþróttakennari„Að þú kveikir þennan vilja í einstaklingnum að vilja að hlúa að sjálfum sér.“Hólmfríður Jóhannsdóttir íþróttakennari er gestur Skúla B. Geirdal í kvöld, en „Hóffa“ eins og hún er gjarnan kölluð byggir á margra ára reynslu af fimleikum, líkamsrækt, dansi, íþróttakennslu og þjálfun....more28minPlay
November 17, 2020#95 Anna Soffía Víkingdsdóttir - Júdókona og félagsfræðingurAnna Soffía Víkingsdóttir, sigursælasta júdókona íslands er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. Hér ræða þau upplifun kvenna af afreksíþróttaumhverfi og mikilvægi íþrótta bæði andlega og líkamlega fyrir lífið sjálft.„Ég man alltaf eftir þessu mómenti þegar að ég ákvað að taka náminu alvarlega. Þá var ég ný búin að slíta öxlina á mér og læknirinn sagði að ég þyrfti að hætta að æfa júdó. Ég var þarna 25 ára og upplifði að ég ætti fullt eftir. Mitt einkenni var íþróttin mín sem var búin að gleypa mig það mikið að mér fannst eins og ég gæti ekki gert neitt annað. Þrátt fyrir að ég hafi ekki hætt þá kom þarna þetta móment þar sem ég fór að hugsa um hvað myndi gerast ef ég þyrfti að hætta. Ferillinn endar á einhverjum tímapunkti og þá verður maður að finna sér eitthvað annað.“...more29minPlay
November 10, 2020#94 Elín Rós Jónasdóttir - Sjúkraþjálfari sem greindist með sjálfsofnæmi„Ég myndi ekki æfa ef ég myndi sleppa því að æfa þegar að ég væri verkjuð“Elín Rós Jónsdóttir sjúkraþjálfari greindist með sjálfsofnæmissjúkdóminn rauða úlfa aðeins 13 ára gömul. Hér segir hún okkur sína sögu og hvernig hreyfing og heilbrigður lífsstíll hefur hjálpað henni í baráttunni við sjúkdóminn. Íþróttir eru meira en kappleikir og úrslit. Hreyfing, þjálfun og heilbrigður lífsstíll skipta miklu máli fyrir lífsgæði okkar allra.„Ég vil frekar vera í heilbrigðu sambandi við mat heldur en að taka út allar matvörur sem hafa bólgumyndandi áhrif á mig, það finnst mér vera hluti af lífsstílnum.“...more28minPlay
November 10, 2020#93 Gunnar Örn Arnórsson - Andlega hliðin í bardagaíþróttum„Fyrsta sem við lærum í júdó er að detta, sem er bara eins og í lífinu.“Gunnar Örn Arnórsson yfirþjálfari júdódeildar KA er gestur Skúla Geirdal að þessu sinni. Íþróttir eru meira en kappleikir og úrslit. Hreyfing, þjálfun og heilbrigður lífsstíll skipta miklu máli fyrir lífsgæði okkar allra. Áherslan í þessum þætti verður því ekki á tæknileg atriði í júdó heldur þá þætti í þjálfun sem geta gagnast okkur þvert á þær íþróttir sem við stundum. Við getum nefnilega öll lært eitthvað með því að hlusta á hvort annað.„Agi er ekki tilfinningaleysi. Aginn er til staðar til þess að hjálpa okkur að takast á við tilfinningar.“Í júdó er mikil áhersla lögð á þjálfun andlegra þátta. Glíman við andstæðingin byrjar með því að líta innávið. Til þess að sigra þarf líka að kunna að tapa og það á ekki bara við inná leikvangi íþrótta. Á hverjum degi dynja á okkur áreiti úr öllum áttum sem við þurfum að takast á við og þá getur verið gott að leita í þau tæki og tól sem kennd eru í íþróttum....more28minPlay
October 29, 2020#92 Unnar Viljálmsson - Íþróttakennari og frjálsíþróttaþjálfariHinn margreyndi íþróttakennari og frjálsíþróttaþjálfari Unnar Vilhjálmsson sest hér niður með Skúla Geirdal til þess að ræða málin-> Staðan á frjálsíþróttaþjálfun á Íslandi nú og breytingar síðustu ár.-> Ávinningur af samvinnu milli mismunandi íþróttagreina-> Breyttir tímar í þjálfun barna og unglinga í íþróttum-> Mikilvægi þess að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl fyrir lífið sjálft-> Félagslegi þátturinn í þjálfun -> að ná til fjöldans hvort sem markmiðin eru afreks miðuð eða ekki. Það eigi allir skilið athygli þjálfarans....more27minPlay
October 26, 2020#91 Soffía Einarsdóttir - SjúkraþjálfariSoffía Einarsdóttir er sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig í meðhöndlun á mjaðmagrind og grindarbotnsvandamálum. Hún notar sónar í sínu starfi og horfir heildrænt á líkamann sem bæði hreyfi og lífkeðju. Öndun, líkamsstaða og þarmaflóra eru allt mikilvægir þættir þegar kemur að heilsu.Hún sest hér niður með Skúla Geirdal til þess að ræða grindarbotnsheilsu og þjálfun karla og kvenna. Ásamt því verður umræðunni beint að heilsu kvenna og þjálfun sem tekur tillit til þarfa kvenlíkama....more29minPlay
October 26, 2020#90 Bryndís Rut Haraldsdóttir - Fyrirliði meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá TindastóliKnattspyrnulið Tindastóls í fyrsta skipti í úrvalsdeild 2021Kvennalið Tindastóls í knattspyrnu hefur tryggt sér efsta sæti Lengjudeildarinnar í ár, og þar með langþráð sæti meðal þeirra bestu í úrvalsdeild á næsta tímabili. Það verður í fyrsta skipti í sögu félagsins sem meistaraflokkur Tindastóls spilar í efstu deild, bæði karla og kvenna.Innilega til hamingju með árangurinn!Bryndís Rur Haraldsdóttir fyrirliði meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Tindastóli var gestur Skúla B. Geirdal í gærkvöldi. Þar fóru þau yfir tímabilið, markmiðin, liðsheildina og samfélagið á Króknum. Ásamt því ræddu þau ferilinn hennar Bryndísar, áhugann á íþróttinni og andlegu hliðina. Íþróttir eru nefnilega meira en bara úrslit og mörk!...more28minPlay
October 26, 2020#89 Sonja Sif Jóhannsdóttir - Íþróttafræðingur, kennari og hlaupariSonja Sif íþróttafræðingur, kennari og hlaupari er gestur Skúla B. Geirdal.Íþróttir eru meira en kappleikir og úrslit. Íþróttir og hreyfing skipta okkur öll máli frá fæðingu og í gegnum allt lífið.Íþróttir fyrir ungabörn - Lýðheilsa unglinga - Næringarfræði - Heilsa sjómanna og margt fleira verður á boðstólnum að þessu sinni...more27minPlay
October 05, 2020#88 Helgi Rúnar Bragason - Framkvæmdastjóri ÍBAÁ Akureyri eru 21 íþróttafélag og í kringum 40 íþróttagreinar!Helgi Rúnar Bragason framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni.Hlutverk Íþróttabandalags Akureyrar - Uppbygging íþróttasamfélags til framtíðar - Samvinna og sameiningar íþróttafélaga - Íþróttapólitík og margt fleira....more26minPlay
October 05, 2020#87 Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór - Boltinn á NorðurlandiAksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson halda úti hlaðvarpsþættinum ,,Boltinn á Norðurlandi” sem fjallar um knattspyrnulið á Norðurlandi. Hér setjast þeir niður með Skúla Geirdal til þess að fara yfir málin.Umfjöllun um íþróttir á landsbyggðunum - staða og hlutverk fjölmiðla - hlutleysi - nálægð við umfjöllunarefnið - kostir og gallar við hlaðvarp til þess að fjalla um íþróttir og margt fleira...more27minPlay
FAQs about Taktíkin:How many episodes does Taktíkin have?The podcast currently has 107 episodes available.