Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Taktíkinni fjöllum við um íþróttir á landsbyggðunum. Við fáum ýmsa góða gesti úr íþróttalífinu í settið, ýmist íþróttafólkið sjálft, þjálfarana eða spekinga með mismunandi bakgrunn. Knattspyrna, han... more
FAQs about Taktíkin:How many episodes does Taktíkin have?The podcast currently has 107 episodes available.
August 27, 2019#47 Ingi Þór Ágústsson - Yfirþjálfari Sundfélagsins ÓðinsIngi Þór Ágústsson nýr yfirþjálfari Sundfélagsins Óðins er gestur þáttarinns að þessu sinni.Ingi, sem er hjúkrunarfræðimenntaður, hefur komið víða við á ferlinum og m.a. setið í framkvæmdastjórn ÍSÍ, verið viðriðinn körfuboltann hjá Þór og lýst sundi með tilþrifum í sjónvarpi. Í þættinum fáum við að kynnast Inga í nærmynd og heyra hvaða sýn hann hefur á þjálfun og íþróttaiðkun barna og unglinga....more29minPlay
August 27, 2019#46 Jón Ingi Baldvinsson - Yfirþjálfari yngriflokka í körfubolta hjá ÞórJón Ingi Baldvinsson yfirþjálfari yngriflokka í körfubolta hjá Þór verður gestur þáttarinns að þessu sinni. Körfuknattleiksdeild Þórs verður í sumar í fyrsta skipti með körfuboltabúðir fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-15 ára. Markmið með þjálfun í yngriflokkum, starf yngriflokka, þjálfun í körfubolta, baráttan um iðkendur og margt fleira....more24minPlay
August 27, 2019#45 Ómar Bragi Stefánsson - UMFÍÓmar Bragi Stefánsson veit sannarlega hvað hann syngur þegar að kemur að því að setja upp Landsmót enda starfað hjá UMFÍ í 15 ár. Hann er gestur Skúla Braga að þessu sinni. Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ, Landsmót, Unglingalandsmót, Landsmót 50+, Hreyfivika og margt fleira....more29minPlay
August 27, 2019#44 Arnar Bill - Fræðslustjóri KSÍArnar Bill Gunnarsson tók við starfi fræðslustjóra Knattspyrnusambands Íslands 1. febrúar 2013 en hann starfaði áður hjá Breiðabliki, fyrst sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og síðan sem yfirþjálfari yngri flokka. Arnar mætir í settið til Skúla Braga til þess að ræða þjálfaramenntun KSÍ ásamt öðrum námskeiðum eins Námskeið fyrir fólk sem situr í stjórnum knattspyrnudeilda....more26minPlay
August 27, 2019#43 U16 landslið kvenna í körfubolta - KKÍLokahópur U16 ára landsliðs kvenna í körfubolta ferðaðist til Akureyrar til þess að æfa þar saman yfir eina helgi til þess að undirbúa sig undir komandi átök á Norðurlandamótinu í Finnlandi og Evrópu-mótinu í Búlgaríu í sumar. Við hittum leikmenn og þjálfara liðsins í Höllinni á Akureyri.Ingar Þór Guðjónsson - Aðalþjálfari U16Karen Lind Helgadóttir - Leikmaður ÞórsHelena Harldsdóttir - Leikmaður VestraVilborg Jónsdóttir - Leikmaður Njarðvíkur...more27minPlay
August 27, 2019#42 Klara Bjartmarz - Framkvæmdastjóri KSÍKlara Bjartmarz er fyrsta konan sem gegnir stöðu framkvæmdastjóra KSÍ frá því að fyrsti launaði framkvæmdastjórinn var ráðinn árið 1967.Hún hefur starfað fyrir KSÍ síðan í janúar 1994, lengst af við mótamál og landslið kvenna. Þá gegndi hún jafnframt starfi skrifstofustjóra KSÍ um árabil. Að auki hefur Klara starfað fyrir UEFA sem eftirlitsmaður á alþjóðlegum leikjum.Klara er einnig mikil kajakkona og varð Íslandsmeistari kvenna í róðri á sjókajak 2014 og í kjölfarið valin kajakkona ársins af Siglingasambandinu....more26minPlay
August 27, 2019#41 Viðar Sigurjónsson - ÍSÍViðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ mætti í settið til Skúla Braga til þess að ræða um íþróttir á landsbyggðunum. Stefna ÍSÍ í barna- og unglingaíþróttum, þjálfaramenntun, verðlaunaafhendingar í yngriflokkastarfi og fyrirmyndarfélög og fyrirmyndarhéruð ÍSÍ....more29minPlay
August 27, 2019#40 Íþróttakjörsvið Háskólans á AkureyriTaktíkin heldur uppá fertugasta þáttinn með því að fjalla um íþróttakjörsvið í Háskólanum á Akureyri. 🎈Hingað til höfum við rætt við íþróttafólk og þjálfarna sem þjálfa þau, en hver þjálfar þjálfarana? Í þættinum kynnum við okkur kennaranám á íþróttakjörsviði í Háskólanum á Akureyri, sem veitir sérhæfingu til kennslu í íþróttum auk undirstöðu til að sinna almennri kennslu.Nanna Ýr Arnardóttir og Kristín M. Jóhannsdóttir mæta í settið til Skúla Braga til þess að ræða málin.Þá mættir Kristinn Þráinn Kristjánsson nemandi einnig í settið til þess að segja frá upplifun nemandans af náminu....more25minPlay
August 27, 2019#39 Eva Reyjkalín - DansEva Reykjalín Elvarsdóttir danskennari og einn af eigendum Dansskólans Steps á Akureyri mætir í settið til Skúla Braga. Listdans sem íþróttagrein - möguleikar í dansi - þjálfun og æfingar - uppgangur - iðkendafjöldi og margt fleira....more27minPlay
August 27, 2019#38 Sigþór Gunnar, markmiðasetning og Katrín Mist, Dansstúdíó AliceSigþór Gunnar Jónsson, handboltamaður og Katrín Mist Haraldsdóttir danshöfundur og eigandi Dansstúdíó Alice eru gestir Skúla Braga að þessu sinni.Sigþór Gunnar Jónsson er ungur og efnilegur handboltamaður frá Akureyri. Hann byrjaði ungur að setja sér markmið til þess að vinna markvisst að því að koma sér áfram í sportinu. Hér fáum við að heyra hans sögu og ráðleggingar varðandi markmiðasetningu.Katrin Mist Haraldsdóttir danshöfundur og eigandi Dansstúdíó Alice mætti í settið til Skúla Braga til að ræða um dans sem íþróttagrein. En Ísland eignaðist í fyrsta skipti landslið í danslist á þessu ári. Dansstúdíó Alice frá Akureyri sendi 9 atriði í úrtöku fyrir landsliðsvalið og náðu 8 af þeim að tryggja sér pláss í landsliðinu sem tekur þátt á Dance World Cup í sumar....more26minPlay
FAQs about Taktíkin:How many episodes does Taktíkin have?The podcast currently has 107 episodes available.