Tala saman

Tala saman

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Tala saman episodes

  • Föstudagur 20.12
    Jói og Lóa fara með hlustendum Tala saman inn í Jólahátíðina með rólegheitin að leiðarljósi. Þau fá til sín góða gesti, rapparann Daniil, 24/7 og Yung Nigo.
    2 hr
  • Fimmtudagur 19.12
    Gellur elska glæpi með Ingibjörgu Iðu. Í nýjasta þættinum af Gellur elska glæpi tekur Ingibjörg Iða fyrir dularfulla hvarfið á Jerry Michael Williams. Hann hvarf sporlaust þegar hann var á andaveiðum við Seminole stöðuvatn. En atburðarásin sem fór síðan af stað er lygi líkust.
    Jói og Lóa fara yfir það sem kjarnar jólastemminguna þeirra, LOTR-maraþon, mandarínur og memes. Að loknu fara þau í skemmtilegan gátuleik. Gátur eru gamaldags troll.
    1 hr 58 min
  • Miðvikudagur 18.12.2019
    Birna María og Ingibjörg Iða leiða þennan miðvikudagsþátt og stytta hlustendum stundir með sprelli og slúðri. Af hverju éta hundar kynlífstæki eiganda sinna? Hvað stóð upp úr á árinu? Jólatalatalið er síðan að sjálfssögðu á sínum stað.
    1 hr 59 min
  • Þriðjudagur 17.12.2019
    Jóhann og Lóa leiða þáttinn og fá til sín fullt af skemmtilegum gestum. Meðlimir improvhópsins Svanurinn komu og kynntu jólasýningu sína og Tristan Karlsson, nýji yfirhönnuður fatamerkisins Child, kom í viðtal.
    1 hr 58 min
  • Mánudagur 16.12
    Í þessum mánudagsþætti af Tala saman spjalla Jói og Lóa við Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur um jólagjöfina í ár. Þau ræða um nýja wave-ið sem í þessari viku, rétt eins og seinustu snýr að samfélagsmiðlum. Jólahefðir, Instagram, auglýsingar og ljóðin sem ungir sjálfstæðismenn birta á Twitter eru einnig til umræðu. Oddur Þórða, góðvinur þáttarins, ræðir síðan við Lóu og Jóa um úrslit Bresku þingkosninganna. Afhverju gekk Corbyn svona illa? Afhverju vilja bretar Brexit? Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa dvalist í Bretlandi og fengið smá innsýn inn í lífið þar.
    1 hr 57 min
  • Föstudagur 13.12.2019
    Jóhann og Ingibjörg Iða leiða hlustendur í gegnum föstudaginn 13. desember. Þau spjalla um fréttir, Flóni kemur í Djammplaylistann og Jólatalatal er að sjálfssögðu á sínum stað.
    1 hr 56 min
  • Fimmtudagur 12.12
    Gestir þáttarins eru Rebekka Sif Stefánsdóttir og Gunnhildur Jónatansdóttir frá Blekfélaginu, félagi ritlistarnema við Háskólann, segja frá bókinni hefðir þar sem 32 höfundar birta sögur sem allar eru 93 orð á lengd. Næstur er myndlistarmaðurinn Arnar Ásgeirsson sem er að gefa út listabókina Transmutants & Emotional Curves. Jóhann og Lóa fara yfir málefni líðandi stundar og Jólatalatalið er á sínum stað.
    1 hr 59 min
  • Mánudagur 9.12
    Mögulega stærsti mánudagur ársins. Lóa og Jói fara yfir atburði helgarinnar, Eggjakastið, Facebook status Elliða Vignissonar og yfirvofandi storm sem varð jú til þess að þriðjudagsþættinum af Tala saman var aflýst.
    1 hr 58 min

About Tala saman

From the publisher's feed

Tala Saman - Alla virka daga frá fjögur til sex á Útvarp 101.