Tala saman

Tala saman

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Tala saman episodes

  • Mánudagur 25.11.2019
    Birna María og Ingibjörg Iða leiða síðdegisþáttinn á þessum ljúfa mánudegi og fá til sín góða gest. Snædís og Arndís frá ungliðahreyfingu Amnesty sögðu frá Ljóðakvöldi sem þau standa fyrir og Kjartan og Magnús kynna nýja hlaðvarpsþátt sinn, Leikhúsið, sem hóf nýlega göngu sína hjá 101.
    1 hr 55 min
  • Fimmtudagur 21.11.2019
    Birna, Ingibjörg og Ísak leiða hlustendur í gegnum þennan PAKKAÐA þátt. Nýtt mál í Gellur elska glæpi með Ingibjörgu Iðu, Fortíðar fimmtudagur með Jóni Kristni og svo kíktu Agnes og Stefán úr hljómsveitinni Sykur í hljóðverið til að fjalla um nýjustu plötu sína, JÁTAKK.
    2 hr 1 min
  • Miðvikudagur 20.11.2019
    Birna og Ísak leiða miðvikudagsþátt vikunnar. Nýjasti þátturinn af aðeins meira en bara GYM var frumfluttur og að þessu sinni var Unnar Helgi gestur Birnu. Einnig komu sprelligosarnir Vilhelm Netó og Stefán Ingvar í þáttinn að ræða nýjasta uppistand sitt, Endurmenntun.
    2 hr 1 min
  • Þriðjudagur 19.11.2019
    Ísak Hinriksson og Birna María Másdóttir stýra þessum þætti af Tala saman. Þau rifja upp gamalt lag sem Birna hafði verið með á heilanum í nokkra daga og gat ómögulega munað hvað héti. Ísak veltir samfélagsmiðlastjörnum fyrir sér og spyr spurningar um bossamyndir á Instagram. Bergur Ebbi segir frá sýningu sinni Skjáskot sem hann frumsýndi sama dag. Bergur Ebbi aðstoðaði svo hlustendur við að leysa vandamál sem tengist hinu daglega heimilislífi.
    2 hr 1 min
  • Reykjavík Dance Festival 2019
    Lóa Björk talaði við Ásrúnu Magnúsdóttur, Gígju Jónsdóttur og Alexander Roberts. Þær eru listamenn á hátíðinni og Alexander er einn listrænna stjórnenda. Hátíðin er sett miðvikudaginn 20. nóvember og stendur til 23. nóvember en dagskráin samanstendur af fjölbreyttum atriðum. Nánari upplýsingar á http://www.reykjavikdancefestival.com/.
    35 min
  • Föstudagur 15.11.2019
    Jóhann og Birna færa hlustendum Tala saman pakkaðan föstudags þátt þar sem þau fá Þuru Stínu úr Reykjavíkurdætrum til að fjalla um nýtt lag af væntanlegri plötu ásamt því að fá hana í DJammplaylistann.
    1 hr 58 min
  • Fimmtudagur 14.11.2019
    Jóhann og Birna eru með þennan pakkaða fimmtudagsþátt. Ingibjörg Iða sagði frá Christu Pike í þætti sínum Gellur elska glæpi og Jón Kristinn snéri aftur í Fortíðar fimmtudag og fjallaði um Jean Meslier.
    1 hr 58 min
  • Miðvikudagur 13.11.2019
    Jóhann og Birna leiða þennan miðvikudagsþátt af mikilli kostgæfni. Steindi Jr. og Gaukur Ólafsson kíktu í heimsókn og nýjasti þáttur af aðeins meira en bara GYM var frumfluttur, en þar segir Vala Rún frá skautaheiminum.
    1 hr 54 min
  • Þriðjudagur 12.11.2019
    Jóhann og Birna fara um víðan völl í þættinum en fyrsti gestur er enginn önnur en forsetaframbjóðandinn og listakonan Elísabet Jökulsdóttir. Hún kemur að ástarráðstefnu í Tjarnarbíó 17. nóvember og því var ástin rædd fram og til baka. Vandamálið var á sínum stað en í þetta skiptið var Kristófer Acox, MVP.
    1 hr 57 min
  • Mánudagur 11.11.2019
    Ingibjörg Iða og Jóhann setja tóninn fyrir vikuna. Þau ræða Post Malone, Skrekk, Garðabæ og rúlla yfir það helsta í fréttum.
    1 hr 58 min

About Tala saman

From the publisher's feed

Tala Saman - Alla virka daga frá fjögur til sex á Útvarp 101.