Tala saman

Tala saman

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Tala saman episodes

  • GMT með Birnu, Svönu og Lóu
    Svana, Lóa og Birna gera sig til í GMT, þætti sem var á afmælisdagskrá Útvarps 101. Þær spila gellutónlist og tala um lífið, djammið, sambandslífið og fara í leikinn Hann er fullkominn en...
    1 hr 5 min
  • Fimmtudagur 07.11.2019
    Í þessum fimmtudagsþætti af Tala saman fengu þau Jói og Lóa til sín nokkra gesti. Lárus Jón sjúkraliða sem var að fara af stað með vitundavakningu um neðanbeltisheilsu karlmanna. Því næst komu þeir Fannar og Steini úr metal hljómsveitinni Une Misere, því á dögunum kom út þeirra önnur plata, Sermon. Þeir höfðu giggað í listasafninu kvöldið áður á Airwaves og fagnar hljómsveitin góðu gengi.
    Ingibjörg Iða: Gellur elska glæpi. Ingibjörg fjallar um sértrúarsöfnuðinn Heavens Gate í sinni vikulegu innkomu í Tala saman.
    1 hr 58 min
  • Miðvikudagur 06.11.2019
    2. Aðeins meira en bara Gym. Birna María tekur viðtal við Katrínu Steinunni: Í þættinum ræða þær hugarfar og ástríðu fyrir hlutunum og hvenær maður veit að maður brenni fyrir einhverju. Katrín talar um hvað hafi breyst eftir að hún fann sig í spretthlaupunum.
    2 hr
  • Þriðjudagur 05.11.2019
    Brynjólfur Þorsteinsson gefur út sína fyrstu ljóðabók, Þetta er ekki bílastæði, hjá Unu útgáfuhúsi.
    Ungleikur: Helgi Grímur og Inga Steinunn.
    Jakob Birgisson í Vandamálinu.
    2 hr
  • UPPGJÖR
    Svanhildur og Birna gera upp þetta fyrsta ár stöðvarinnar. Hvað hefði mátt betur fara, hvað gekk vel og hver skeit. Þær spila brot úr sögu stöðvarinnar og segja frá hvernig það var þegar stöðin fór í loftið, fyrir akkúrat ári síðan.
    59 min
  • Mánudagur 04.11.2019
    Jói og Lóa fara yfir Nýja Wave-ið, sólarhringsútsendinguna og fara í mikið grín. Hvernig kemst Gréta Thunberg til Evrópu? Hvernig eru Boðorðin 10? Hvað er kristni?
    2 hr 1 min
  • Fortíðar föstudagur: Kópavogsfundurinn
    Jón Kristinn Einarsson fer yfir aðdraganda, atburði og mýtuna um hinn alræmda Kópavogsfund. Þátturinn var hluti af eins árs afmælisdagskrá Útvarps 101, sem var þann 1. nóvember. Kópvogsfundurinn stóð yfir 26. til 28. júlí 1662, þar gengust Íslendingar undir einveldi Danakonungs og í kjölfarið áttu sér stað viðtækar breytingar á stjórnskipan Íslands. Síðar meir, á 19. og 20. öld, varð fundurinn að vopni í sjálfstæðisbaráttunni gegn Dönum. Við sögu koma grátandi embættismenn, dularfullir seðlar, Jón Sigurðsson forseti og danskir flotaforingjar.
    41 min
  • Afmælis Tala saman 01.11.2019
    Jóhann og Lóa eru on their bullshit, svo að segja, í afmælisþætti Tala saman. Þau fengu til sín tvo meðlimi hljómsveitarinnar Grísalappalísu í viðtal, þá Tuma Árnason og Gunnar Ragnarsson en þeir gáfu út plötuna sína Týndu rásina fyrr um daginn. Aðallega var mikið grínast að hætti Lóu og Jóa. Til hamingju með afmælið Útvarp 101.
    1 hr 53 min

About Tala saman

From the publisher's feed

Tala Saman - Alla virka daga frá fjögur til sex á Útvarp 101.