Tala saman

Tala saman

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Tala saman episodes

  • Föstudagur 18.10.2019
    1. Skáldkonurnar Brynja Hjálmsdóttir og Fríða Ísberg gáfu báðar út ljóðbækur á dögunum. Leðurjakkaveður og Okfrumuna. Þær ræða hugmyndirnar að baki bókunum og hvað maður gerir eftir að maður gefur út bók.
    2. Sjálfsfróun kvenna - Íris Stefanía Skúladóttir í Flæði á Sequences
    3. Djammplaylistinn - DJ Stef er verkfræðingur á daginn og DJ á biffunni á kvöldin. Hann valdi 3 essential djammlög.
    1 hr 59 min
  • Fimmtudagur 17.10.2019
    1. Nýja Hressó. Nú tekur við nýr kafli í sögu Hressingarskálans en þar taka við nýjir eigendur sem hyggjast gera staðinn að tónleika- og skemmtistað. Óli Dóri og Unnar í viðtali um hvað tekur við í þessum nýja kafla af sögu eins elsta skemmtistaðar í Reykjavík.
    2. Herra Hnetusmjör. Hressasti tónlistamaður á landinu heldur stórtónleika í Gamla Bíó. Herra Árni í skemmtilegu viðtali um nýja skemmtistaðinn, Nickelback-tónleikana sem hann fór á í Búdapest??? og draumalineuppið sitt.
    3. Ingibjörg Iða kafar í Waco umsátrið sem átti sér stað árið 1993 í Texas. Sturluð saga af ofsatrúasöfnuði sem endaði í blóðbaði.
    2 hr 1 min
  • #1: Ingibjörg Iða fjallar um Waco umsátrið árið 1993
    Þann 27. febrúar árið 1993 byrjaði blaðið Waco Tribune-Herald að birta fjölda greina um The sinful Messiah sem fjölluðu um David Koresh og söfnuð hans, The Davidians, en David hélt því fram að hann væri Messías. Í greininni er því haldið fram að David hafði gifts og haf samræði við barnungar stúlkur ásamt því að sanka að sér ólöglegum vopnum í risastórt vopnabúr. Yfirvöld komast á sporið en eftir það hefst röð atburða sem er vægast sagt ótrúleg.
    40 min
  • Miðvikudagur 16.10.2019
    1. Tommi á Búllunni. Tommi, stofnandi Tommaborgara, Hamborgarabúllu Tómasar og fleiri staða sem sett hafa mark sitt á íslenskan veitingaiðnað og skemmtanalíf, var viðmælandi Jóa og Lóu. Þau spyrja hann út í ræktina, dansinn og veitingabransann.
    2. Húsið hans Skúla á Seltjarnarnesi er til sölu en þar leynast alls konar fyndnir hlutir, eins og skrifborðsstóll sem er það óþægilegur að það er með engu móti hægt að bjarga flugfélagi í honum.
    3. Birna María fór á vettvang í Hörpu og sjá hvað var að frétta í vegan heilsumálum á ráðstefnu. Hún komst að því að það er myth að vegan fólki vanti prótein.
    4. Ísak Hinriksson var í Tala saman að leysa vandamál hlustenda þáttarins. Glöggt er gests augað. Vandamálin eru tvö að þessu sinni: Vinkonumál og rifrildi á netinu. Algeng vandamál sem margir glíma við.
    2 hr
  • Þriðjudagur 15.10.2019
    1. Andri Snær Magnason rithöfundur kom í síðdegisþáttinn Tala saman og ræddi nýja bók sína Um tímann og vatnið við Lóu og Jóa, en bókin fjallar um loftslagsmál. Í bókinni fléttar hann saman vísindum, goðsögum og sögum af fjölskyldumeðlimum í frásögn sem er „það áhugaverð að fólk nennir að lesa hana".
    2. Viðtal við Tatjönu Dís um innhverfa íhugun og David Lynch. Tatjana kynntist innhverfri íhugun (e.Transcendtal Meditation) í gegnum listamanninn David Lynch en hann mælir mikið með slíkri iðkun. Lynch er í grunninn myndlistarmaður sem er frægastur fyrir költmyndir á borð við Mulholland Drive, Blue Velvet og Eareserhead og sjónvarpsþáttarseríuna Twin Peaks.
    3. Sequences myndlistahátið í Reykjavík: Þórhildur Tinna Sigurðardóttir og Þorsteinn Eyfjörð. Þau fjalla um alþjóðlega listamenn sem sækja hátíðina og það sem gerist á utandagskránni.
    2 hr 1 min
  • Mánudagur 14.10.2019
    1. Listamaður vikunnar DaBaby
    2. Matthildur og lagið hennar Repeat af EP plötunni My Own EP
    3. Stjörnulífið - Lóa og Jói fara yfir það sem „þekkt“ fólk gerði á Instagram yfir helgina.
    4. Húðrútínan hans Jóa
    5. Börn og áhrifavaldar
    2 hr
  • Fimmtudagur 10.10.2019
    1. Tónlist frá árinu 1992. Hvað gerðist árið 1992? Það er ár apans í Kínverskum stjörnumerkjum. Jói er api og tengir við það.
    2. Hversu mörg ár þyrftiru að vinna til að verða jafn ríkur og Jeff Bezos?
    3. Fortíðar Fimmtudagur: Jón fjallar um barnakrossferðina sem átti sér stað á miðöldum. Hvað er krossferð? Hvað átti að hafa gerst?
    4.Fréttaskýring á innrás Tyrkja í Sýrland frá blaðamanni Vísis, Samúeli Karli Ólasyni.
    5. Ellen Degeneres chillar með George Bush og ver það.
    1 hr 59 min
  • Miðvikudagur 09.10.2019
    1. Viðtal við listamann þjóðarinnar, Bubba Morthens. Við ræðum verkefnin, plötuna Regnbogans Stræti, ljóðabókina Velkominn, sjálfsvinnunna, íslenskt rapp og það allra mikilvægasta í heimi: ást og kærleika.
    2. Kvikmyndaspurningar Bibbu. Hvað er versta íslenska bíómyndin?
    3. VIÐTAL VIÐ STÓRSTJÖRNUNA PIERCE BROSNAN.
    4. Eldfjallafræðingurinn Alma fjallar um hræringarnar í Heklu. Skuldum við Heklugos? Hvað gerist ef Hekla gýs?
    2 hr 1 min
  • Þriðjudagur 08.10.2019
    1. Viðtal við Hjördísi Eyþórsdóttur, ljósmyndara. Hjördís byrjaði 26 ára í ljósmyndanámi eftir að hún hafði ferðast, flutt í sveit og upplifað mikið rótleysi. Hún festi kaup á landskika á snæfellsnesi með kærastanum sínum og nú stefnir hún á að gefa út ljósmyndabók með myndum frá tímabili rótleysis og ferðalaga. Verkið heitir Put All Our Treasures Together.
    2. Viðtal við Björn Leó Brynjarsson og Vandamálið. Tvö vandamál hlustenda leyst. Björn vinnur nú að því að fylgja verkinu Stórskáldið að frumsýningu. Það er í fyrsta skipti sem verk eftir hann er flutt í Borgarleikhúsinu en hann var valinn leikskáld Borgarleikhússins fyrir tveimur árum. Vandamálin að þessu sinni eru nokkuð ólík, eitt mjög flókið og persónulegt sem viðkemur framhjáhaldi, hitt tengist gæludýrum.
    3. Riff spjall.
    4. Umræður um Martin Scorsese og Marvel. Eru Marvel myndir ekki kvikmyndalist eins og Martin Scorsese heldur fram?
    1 hr 59 min

About Tala saman

From the publisher's feed

Tala Saman - Alla virka daga frá fjögur til sex á Útvarp 101.