Tala saman

Tala saman

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Tala saman episodes

  • Mánudagur 07.10.2019
    1. Viðtal við listakonuna Korkimon. Melkorka Katrín er myndlistakona, menntuð í Bandaríkjunum. Hún fluttist til NYC með foreldrum sínum þegar hún var 11 ára en var alltaf með heimþrá og langaði í MH. Nú býr hún á Íslandi og vinnur sjálfstætt. Sýningin hennar Korkimonsters verður sýnd í Flæði á Grettisgötu á miðvikudaginn 9.október
    2. Viðtal við Láru Jóhönnu, leikkonu um sýninguna Shakespeare verður ástfanginn.
    3. Viðtal við Bergþór Másson sem lauk á dögunum 11 daga vipassana hugleiðslubúðum. Hann segist vera breyttur maður og hvetur alla sem hafa tök á að prófa þetta.
    2 hr 1 min
  • Föstudagur 04.10.2019
    1. Sylvía Hall fréttaskýrir málefni líðandi stundar
    2. Lóa endurvekur Sexy-fössara með psycho twisti
    3. Djammplaylisti DJ Snorra Ástráðs
    2 hr
  • Fimmtudagur 03.10.2019
    Fortíðar fimmtudagur: Tónlist frá árinu 1991, viðtöl og freestyle.
    1. Viðtal við Kristínu Eysteinsdóttur, Borgarleikhússtjóra. Hún sagði frá þeim nýjungum sem munu eiga sér stað í Borgarleikhúsinu á leikárinu 19-20. Hún ræddi um mikilvægi þess að skoða hverjir væru ekki að koma í leikhús og hvernig væri hægt að koma til móts við þá hópa. Einstaklingar undir 25 ára fá leikhúskort á 50% afslætti og sýningar verða textaðar með pólskum og enskum texta. Sviðið Umbúðalaust var opnað og er það hugsað sem svið fyrir unga listamenn til að gera tilraunir.
    2. Ari Ma. Freestyle og spjall um innblástur, tungumálin og viðfangsefnin í rappinu. Ari Ma freestyleaði fyrst árið 2011 og hefur æft sig í því síðan þá. Í fyrst skipi í sögu 101 freestyle-ar einhver í beinni útsendingu, ekki nóg með það heldur gerði Ari það á 6 tungumálum; ensku, þýsku, frönsku, taílensku, spænsku og ensku.
    3. Tryggvi Rúnar Brynjarsson er dóttursonur Tryggva Rúnars, eins dómþolanna í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hann fjallaði um hvað væri búið að gerast í málinu núna nýlega og stiklaði á stóru á sögunni. Dómþolar, þeir 6 sem voru ranglega sakaðir fyrir hvarf Guðmundar og Geirfinns, hafa verið beitir miklu ranglæti af hálfu kerfisins og leita þeir og aðstandendur þeirra nú réttar sins, mörg hver ekki í fyrsta skipti.
    1 hr 59 min
  • Miðvikudagur 02.10.2019
    1. Jóhann og Lóa ræða Hrekkjavökuna, húðrútínur og þá staðreynd að Pósturinn sökkar. Hvað gerist þegar maður pantar sér snyrtivörur fullur á netinu?
    2. Myndir þú lifa af apocolypse aðstæður? Samkvæmt nýrri nýsjálenskri rannsókn þykir Ísland henti einna best til að bjarga mannkyninu komi til alvarlegs heimsfaraldurs.
    3. List án landamæra. Bára Halldórsdóttir listakona og Ragnheiður Maísól tala um listahátíðina List án landamæra.
    2 hr 1 min
  • Þriðjudagur 01.10.2019
    1. Viðtal við Halldór Loga og Kristján Helga sem bæði æfa og þjálfa brasilískt jiu-jitsu í Mjölni. Þeir félagar eru á leið út til Bretlands að keppa á þriðja stærsta glímumóti Evrópu. Við ræddum við þá um mótið, andstæðingana og spjölluðum almennt um hvað það er sem gerir glímu að svona skemmtilegri íþrótt.
    -
    2. Vandamálið: Sandra Barilli. Tala saman berst oft vandamál inn um pósthólfið ([email protected] ef þú vilt senda) og höfum við fengið fólk úr samfélaginu til að aðstoða okkur við að leysa þessi vandamál af bestu getu. Í þættinum voru vandamálin tvenn, annað snerist að manneksju sem er mjög hógvær og skortir sjálfstraust og hitt að aðlia sem er skotinn í eldri systur kærustu sinnar. Sandra kom með skrautlegar lausnir á þessum vandamálum.
    -
    3. Viðtal og spjall við Pétur Martein. Pétur Marteinn er virkur á twitter og kemur oft með sínar pælingar og skoðanir á borðið á þeim miðli. Í dag velti hann því fyrir sér hvort það mætti hjóla fullur og hvort það mætti þá rafhjóla fullur líka. Niðurstöðurnar voru óvæntar en Pétur kom með lögin útprentuð til okkar í stúdíóið enda lögfræðingur að mennt.
    2 hr
  • Mánudagur 30.09.2019
    Ljóðadagar Óperudaga: Ljóð fyrir umhverfið. Katrín Andrea og Guja Sandholt ræða um rödd ungs fólks og mátt ljóðsins.
    Hvað ætlar Kanye sér?
    Jon Ola Sand hættir í Eurovision: Símaviðtal við Kristínu Ólafsdóttur um afsögn framkvæmdarstjóra Eurovision.
    Nýja Wave-ið
    2 hr 1 min
  • Föstudagur 27.09.2019
    Egill Ástráðs með Lóu Björk í Tala saman.
    Villi Neto og Djammlögin hans, uppistandarar og cancelaðir grínistar.
    Brynja Hjálms fjallar um Riff, stemminguna, töfrana og leiðinlegar myndir.
    Það er föstudagur en það þarf ekki alltaf að vera gaman.
    2 hr 1 min
  • Miðvikudagur 25.09.2019
    Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs
    Silja Bára útskýrir hvað „Impeachment“ gæti þýtt fyrir Trump og Bandaríkin
    Barbie-dúkkur fyrir alla
    Alma Mjöll Ólafsdóttir fjallar um tenglsin milli stéttabaráttu og loftslagshamfara
    2 hr
  • Þriðjudagur 24.09.2019
    Lóa snýr aftur frá Sviss. Pálmi Freyr segir frá vetrarstarfsemi Improv Ísland. Hekla Elísabet fer yfir best- og verst klæddu stjörnurnar á Emmy verðlaununum.
    1 hr 54 min

About Tala saman

From the publisher's feed

Tala Saman - Alla virka daga frá fjögur til sex á Útvarp 101.