
Sign up to save your podcasts
Or


LOKSINS LOKSINS
Við fengum loksins til okkar í þátt enga aðra en Margréti S. Höskuldsdóttur sem við getum með sanni sagt að sé búin að festa sig í sessi sem ein af bestu krimmahöfundum á landinu!
Við spjöllum við hana um nýju bókina sem hún var að gefa út, eldur í öskunni leynist, en auðvitað mælum við heilshugar með að allir lesi hana og læði henni í jólapakkann hjá sem flestum!
Það var alveg einstaklega skemmtilegt að ræða bókina hennar, bókmenntir og ást okkar á Skotlandi!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Þið finnið Margréti á þessum samfélagsmiðlum:
Tiktok: margret_hoskulds
Insta: margret_h
Þegar hugsað er um hrylling koma oft upp í hugann dimmar, stormasamar nætur og kaldar hallir fullar af skuggum. En hvað ef það allra óhugnanlegasta sem hægt er að ímynda sér væri blindandi hvítt sólarljós, brennandi heit strönd og fjall úr fíngerðum, hreyfanlegum sandi?
Þetta er í raun persónulega helvítið hennar Ölmu, en við köfum hér ofan í költ klassíkina The Elementals eftir Micheal McDowell og hvernig hann fer mjög óhefðbundar leiðir til að skrifa hryllingssögur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Loksins er kominn út nýr þáttur!
Vegna afmælisdjamm á stelpunum, og svo ACOSH útgáfu tafðist þáttur vikunnar. En engar áhyggjur! Hér eru þær með skoðanir á allskonar hlutum, líka á bókinni sem þær eru ekki byrjaðar á og eiga ekki að vera að fjalla um í þessum þætti.
Aðal umræðuefnið í þessum þætti er þó bókin House of Monstrous Women eftir Daphne Fama. Þær ræða hvernig bókin var í heild, hvernig var að lesa um svona miklu öðruvísi menningarheim en þær eru vanar, sem á rætur að rekja í raunveruleikanum og hvernig lesturinn var.
Auðvitað koma svo smá rökræður um A Court of Splintered Harmony, því þær eru ekki sammála, en báðar jafn spenntar!
Hrekkjavökumánuður er heldur betur genginn í garð og verður því restin af október og byrjun nóvember tileinkað hryllingssögum! Í þessum þætti tökum við fyrir bókina Hard Luck Jenny eftir okkar ástkæra David Södergren, en við höfum áður talað um bækurnar The Haar og Maggies Grave eftir sama höfund. David er virkilega fær um að skapa hryllings heima sem erfitt er að slíta sig frá þó svo þeir séu óhugnalegir og stundum ógeðslegir. Ef þú ert hryllingssögu aðdáandi mælum við eindregið með að lesa David!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Jæja, stelpurnar skelltu sér í bíó þar sem enginn annar en Alexander Skarsgård var líka í salnum. Að sjálfsögðu fóru þær á Wicker en það var algjörlega henni Þorbjörgu að þakka að þær náðu miða á þennan viðburð, þar sem Þorbjörg var töluvert meira með puttann á púlsinum þann daginn!
Við ræðum bókina og myndina, förum yfir hvað okkur fannst eins, hvað okkur fannst gott og hversu mikið við hlógum allann tímann.
Við getum allar þrjár mælt heilshugar með myndinni, og svo er mjög gaman að lesa þessa stuttu bók líka.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Þið finnið Þorbjörgu á:
https://www.instagram.com/thorbjorgmatt/
Nýliðin vika er tileinkuð bókum sem eru bannaðar og í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest til að ræða við um ritskoðun bóka og að banna bækur. Guðrún Steinþórsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, spjallar við okkur um þann sið að banna bækur eða ritskoða þær á þeim skala að þær verða óaðgengilegar, þá sérstaklega barna- og ungmennabækur. Þetta er vandmeðfarið málefni sem er marglaga og flókið og tökum við dæmi bókina Villi Vampíra sem er nánast ekki hægt að nálgast í dag. Við förum yfir hvað okkur finnst persónulega um bókina en einnig ræðum við viðbrögð við bókmenntum sem fjalla um jaðarsetta hópa og erfið málefni eins og ofbeldi. Guðrún segir okkur frá ýmsum rannsóknum sem snúa að þessu viðfangsefni og tekur fram dæmi um mikil og ýkt viðbrögð við íslenskum verkum.
Við förum um víðan völl og var þetta virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall. Við þökkum Guðrúnu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að deila með ykkur bókalistanum hennar.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Alma og Fjóla fara yfir þær 120 bækur sem þær segjast ætla að lesa þetta haust.
Listinn er alls ekki tæmandi og rosalega skemmtilegur og ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi þarna inn á milli allra bókanna. Einnig segja þær frá þeim bókum sem verða teknar fyrir í næstu þáttum þannig ef þið viljið taka slaginn með þeim getið þið nálgast bækurnar og lesið áður en þættirnir koma út!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
!!!ATH!!! Alls ekki fyrir lítil eyru.
Sko...þessi þáttur er í raun bara nebba kynlíf og hláturskast. Góða skemmtun!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
-HÖSKULDARVIÐVÖRUN-
Það má með sanni segja að The Knight And The Moth eftir Rachel Gillig hafi farið sem stormsveipur um bókatok á síðasta ári og því mikil spenna fyrir seinni hluta tvíleiksins. Við spjöllum hér um The Knave And The Moon og ræðum ritstílinn hennar Rachel að auki. Ef þið hafið ekki lesið bókina og viljið ekki að við eyðileggjum fyrir ykkur mælum við með að geyma þennan þátt þar til þið hafið lesið!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
Jæja þá er komið að því aftur...
Alma segir okkur frá stuttsögunni Banging My Birthday Bear. Hún veit ekki alveg hvað hún er að segja og er pínu plotlaus, svona eins og "bókin" sem hún segir frá var.
Hlustið á okkur hlæja og fíflast um þessa dásamlega fyndnu bók, þó hún eigi ekki beint að vera fyndin.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:
Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp
Insta: tbrlistinn
From the publisher's feed