Þegar ég verð stór

Þegar ég verð stór

By Útvarp 101Society & Culture
Download on the App Store

Þegar ég verð stór episodes

  • Sigurlína Ingvarsdóttir - Framleiðandi
    Við snúum aftur með sérstakan þátt fyrir UAK, Ungar Athafnakonur. Sigurlína mun flytja lokaerindi á UAK ráðstefnunni Frá aðgerðum til áhrifa – Vertu breytingin þann 27.febrúar nk.
    Viðmælandinn að þessu sinni er Sigurlína Ingvarsdóttir, oftast kölluð Lína, en hún starfaði í þróun tölvuleikja hjá EA DICE, og vann að Star Wars Battlefront og varð síðar yfirframleiðandi FIFA, sem allir ættu að þekkja. Hún er verkfræðingur og lauk prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en í þessum þætti fáum við að skyggnast inn í hennar vegferð og hvernig það kom til að hún fór að vinna fyrir stærstu tölvuleikjarisa heims án þess að hafa nokkra þekkingu hvernig tölvuleikir yrðu að veruleika. Í þættinum fer hún yfir hin ýmsu ævintýri sem hafa orðið á hennar vegferð, æskuárin og árin í MR, hvernig það var að losna úr þægindarammanum og flytja alla fjölskylduna til Svíþjóðar og vinna hjá tölvuleikjarisa og allt sem hún hefur fyrir stafni í dag.
    1 hr 46 min
  • Bára Hólmgeirsdóttir - Eigandi og stofnandi Aftur
    Við fengum Báru Hólmgeirsdóttur, eiganda og stofnanda Aftur. Við spjölluðum um umhverfismál, mikilvægi endurnýtingar á efnum, hugmyndina á bakvið Aftur, hvernig það var að stofna sjálfbæran rekstur þegar fólk vissi varla hvað sjálfbærni var og mikilvægi þess að taka umhverfismál alvarleg.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 20.nóvember
    45 min
  • Gréta María Grétarsdóttir - Framkvæmdastjóri Krónunnar
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Hún kíkti til okkar og spjallaði við okkur um hennar feril sem körfuboltakona, hennar fyrstu skref í ferlinum, umhverfismál, ábyrgð fyrirtækja og margt fleira skemmtilegt.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 6.nóvember.
    1 hr 1 min
  • Ragna Árnadóttir - Skrifstofustjóri Alþingis
    Ragna Árnadóttir er fyrsta konan til þess að gegna embtætti skrifstofustjóra Alþingis. Áður var hún forstjóri Landsvirkjunar, og þar áður dómsmálaráðherra. Við spjölluðum um hennar æsku, hvernig það er að vinna í stjórnsýslu, hversu karllægur orkugeirinn er, um ofurkonuna sem er ekki til og fæðingarþunglyndi.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 30.október.
    1 hr 11 min
  • Ásta S. Fjeldsted - Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
    Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Ásta S. Fjeldsted, kom til okkar í yndislegt spjall. Ásta hefur farið víða, hún ólst upp hér heima, fór í verkfræði í DTU í Kaupmannahöfn, vann fyrir Össur í Frakklandi, McKinsey í Danmörku og Japan og er tiltölulega ný flutt heim. Hún ræddi hennar frábæra árangur sem hún hefur náð í atvinnulífinu, hvernig best er að tækla erfið verkefni, að búa erlendis og margt fleira.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 23. október.
    1 hr 12 min
  • Salóme Guðmundsdóttir - Framkvæmdastjóri Icelandic Startups
    Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups, kíkti til okkar í frábært spjall. Hún ólst upp í Hlíðunum, eins og fáránlega margir viðmælenda okkar, fór í Versló og síðar í viðskiptafræði í HR. Þegar hún var einungis 27 ára var hún orðin stjórnandi í HR. Við töluðum um ábyrgð ungra stjórnenda, konur í nýsköpun, nýsköpunarumhverfið á Íslandi, hvernig maður undirbýr sig fyrir atvinnuviðtal og hvernig hugmynd verður að veruleika.
    1 hr 2 min
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir - Framkvæmdastjóri Lyfju
    Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, kíkti til okkar í frábært spjall. Hún ólst mest megnis upp út á landi, fór í Verzló og ákvað síðan að fara í Háskólann á Akureyri. Við spurðum hana útí fyrstu skrefin eftir nám, hvernig hún vann sig upp sem forstjóri Já.is eftir að hafa umbreytt rekstri fyrirtækisins, afhverju hún fór yfir til Lyfju og hver framtíð lyfja og apóteka verður.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 9.október.
    1 hr 11 min
  • Unnur Arna Jónsdóttir - Stofnandi og eigandi Hugarfrelsis
    Við fengum til okkar Unni Örnu Jónsdóttur, stofnanda og eiganda Hugarfrelsis. Unnur sagði okkur frá hennar æskuárum í Garðarbænum, áfalli sem hún lenti í snemma í lífinu, afhverju hún ákvað að hætta í viðskiptafræði og fara yfir í hugleiðslu, starfsemi Hugarfrelsis og endar þáttinn með því að leiða okkur í gegnum stutta hugleiðslu.
    59 min
  • Hafdís Jónsdóttir - Eigandi World Class og Laugar Spa
    Hafdís Jónsdóttir, eigandi World Class og Laugar Spa, eða betur þekkt sem Dísa í World Class kíkti til okkar í spjall. Hún sagði okkur frá dansævintýrum sínum í Bandaríkjunum, þegar hún stofnaði sitt eigið dansstúdíó hér heima, frá sögu WorldClass og stofnun LaugarSpa og snyrtivörulínunnar.
    Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 25.september
    1 hr 9 min
  • Hildur Yeoman - Fatahönnuður
    Hildur Yeoman, fatahönnuður og verslunareigandi, kíkti til okkar í spjall. Hún sagði okkur frá æskunni sinni, menntaskólaárunum í MR og síðar FB, afhverju hún fór í LHÍ, hvernig ein flík verður til, kosti og galla við að reka verslun á Íslandi og hvernig hún hefur byggt upp sitt eigið brand.
    Þátturinn var fluttur 18.september á Útvarp101
    1 hr 16 min

About Þegar ég verð stór

From the publisher's feed

Viðtalsþáttur í umsjón Völu Rúnar Magnúsdóttur og Vöku Njálsdóttur þar sem lögð er áhersla á reynsluheim kvenna sem skarað hafa fram úr á sínu sviði.