
Sign up to save your podcasts
Or


Viðmælandi okkar að þessu sinni er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður. Hún var kosin inn á þing árið 2016, þá aðeins 26 ára. Áslaug er yngsti núverandi þingmaður og algjör negla. Við förum í gegnum hennar feril, hvernig það er að vera ung kona í pólitík, frumvarpið um þungunarrof og margt fleira!
Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem söngkonan GDRN kom til okkar í spjall. Rætt var hennar feril, tónlistarnám, íslensku tónlistarsenuna og margt fleira. Þátturinn var í beinni útsendingu á Útvarp101 þann 20.mars.
Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands og athafnakona kom í viðtal til okkar og ræddi sinn frábæra feril í viðskiptalífinu og stjórnarsetum, stöðu kvenna í viðskiptum, mikilvægi fjölbreytileika hjá stjórnendum og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 13.mars.
Hin frábæra Edda Hermannsdóttir, markaðs-,samskipta- og greiningastjóri hjá Íslandsbanka kíkti til okkar í spjall. Við ræddum um æskuna á Akureyri, föðurkynnin á unglingsárum, jafnrétti kynja á vinnumarkaði, markaðsmál og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 6.mars
From the publisher's feed