Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið

Download on the App Store

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið episodes

  • #11 - Þetta fullorðna fólk spilar leiki um leiki
    Í þessum þætti fáum við til okkar Guðmund Felixson, spunaleikara og sviðshöfund, og við spjöllum við hann um FÓTBOLTA og FANTASY (Fantasy Premier League). Við tölum um það að verða góður í einhverju nýju, að tilheyra nýjum hópi og að tengjast öðrum í gegnum íþróttir og áhugamál.


    
Af hverju spila fleiri karlmenn en konur Fantasy? Af hverju horfa fleiri karlmenn en konur á fótbolta? Er þetta leið til þess að tengjast öðrum karlmönnum? Er góður fótboltaleikur eins og háklassa leikhúsupplifun?
    Af hverju spilar fólk leiki? Af hverju spilar fólk leik um leiki sem annað fólk spilar? Af hverju horfir fólk á annað fólk spila leik um annað fólk að spila leik? Af hverju talar fólk um annað fólk sem horfir á annað fólk að spila leik um annað fólk að spila leik? Úff, spila leik, lila speik? Bíddu nú við. Við erum alveg jafn ruglaðar og þú. Þú þarft örugglega bara að hlusta á þennan þátt.
    56 min
  • #10 - Þetta fullorðna fólk aðlagast öllu
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur AÐLÖGUNARHÆFNI mannkyns og framtíð okkar á Móður Jörð. Gestur þáttarins er Vala Kristín Eiríksdóttir, leikkona og handritshöfundur. Við veltum upp spurningum um framtíð mannkyns og yfirvofandi sjálfstortímingu Homo sapiens, loftslagsmál og þægindi, æðruleysi og ímyndunarafl.
    Af hverju höldum við bara áfram að borða kjöt og fljúga til Tene þó við vitum að það sé að rústa jörðinni okkar? Hvernig björgum við okkur frá þeirri sjálfstortímingu sem við vinnum að hvern einasta dag? Trúum við því að þetta muni allt reddast einhvern veginn á endanum? Munum við bara aðlagast breyttu loftslagi? Er erfiðara að hætta einhverju heldur en að byrja á einhverju nýju? Hvernig var samtakamátturinn í fyrstu bylgjum Covid-19 öðruvísi en í loftslagsaðgerðum? Er sú hætta of fjarri okkur? Nennum við þessu hreinlega ekki? Er Homo sapiens, hin hugsandi skepna, dæmd til þess að lenda alltaf einhversstaðar á milli, í gjánni milli hugsjóna og skepnuháttar?
    Lykillinn að hamingjunni, hin mannlega mótsögn, sýndarveruleiki og Tenerife-glerbúr á Eiðistorgi.
    1 hr 5 min
  • #9 - Þetta fullorðna fólk hoppar fram af klettum
    Gestur þáttarins er Alex Michael Green Svansson, betur þekktur sem Alex from Iceland, ævintýramaður og efnishöfundur (e. content creator). Við spjöllum við hann um viðfangsefni þáttarins: ADRENALÍN og JAÐARÍÞRÓTTIR, klettastökk og samfélagsmiðla, áhættu og verðlaun (e. risk and reward) og nýja þáttinn hans á Stöð 2.
    Hvað er svona skemmtilegt við jaðaríþróttir? Eru þær allar hættulegar? Af hverju setjum við okkur sjálfviljug í hættulegar aðstæður? Er þetta bara spurning um að duga eða drepast, eða tengist þetta núvitund? Er þetta leið til þess að komast nær kjarnanum í okkur? Stunda fleiri karlar heldur en konur jaðaríþróttir? Af hverju? Hvort myndirðu frekar vera með uppistand fyrir framan fullan sal af fólki eða hoppa fram af átta metra háum kletti?
    ,,Ef ég væri ekki hræddur, þá væri þetta ekki eins gaman"
    Sjálfstrú, ofhugsanir, base-jumping og tiktok algoritmi.
    55 min
  • #8 - Þetta fullorðna fólk trúir á gott og illt
    Í þessum þætti tölum við um TRÚ og STRÍÐ, valdafíkn og trú mannsins á æðri mátt. Gestur þáttarins er Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur, djákni og leikhúsfræðingur með meiru. Við spjöllum við hann um starf djáknans, kirkjuna, leikhúsið, Biblíuna, stríð og frið, hið góða og hið illa.
    
Er hægt að vera bæði menntaður og trúaður? Eiga trúarbrögð og vísindi ekki saman? Er hægt að lesa Biblíuna eins og vísindarit? Hvernig er hægt að ata fólki í að drepa annað fólk? Eru flest stríð í heiminum háð vegna trúarbragða eða eru trúarbrögð bara notuð til þess að kynda undir við/þau hugsun? Af hverju? Er trú lærð hegðun?


    Trúarlegar upplifanir, illir andar og innrás Rússlands í Úkraínu. Ingólfur Arnarson og súlurnar, réttrúnaðarkratamauslið, hlutabréf í vopnaframleiðslu og mannlegur hroki.
    ,,Af hverju í ósköpunum ættum við, þessir apakettir sem hér erum, að vera með svörin við öllu, geta rannsakað allt, að vita allt og skilja allt? Það er árþúsunda gömul reynsla sem sýnir okkur að það er ekki þannig.”
    1 hr 2 min
  • #7 - Þetta forn-egypska fólk var snjallara en við
    Í þessum þætti spjöllum við um FORN EGYPTA og þær dularfullu ráðgátur sem fylgja þeirra sögu. Gestur þáttarins er Kara Rós Valþórsdóttir, ferðamálafræðinemi og sérstök áhugakona um Egyptaland hið forna. 
Hvernig geta þau mannvirki sem Forn-Egyptar skildu eftir sig verið svona fullkomin? Voru Forn-Egyptar gæddir ómannlegum ofurkröftum? Voru Forn-Egyptar og geimverur kannski með einhvers konar bandalag? Hvernig virkaði samfélag Egyptanna og hvers vegna gekk það upp svona lengi? Hvernig hrundi það? Ættum við að taka þetta samfélag okkur til fyrirmyndar?
    Fiðringur í heilanum, píramídinn í Giza, Kleópatra í gólfmottu og egypskir zombie-ar.
    1 hr 4 min
  • #6 - Þetta fullorðna fólk lifir í skáldskapnum
    Í þessum þætti skoðum við SÖGUR og SKÁLDSKAP. Gestur þáttarins er Friðgeir Einarsson rithöfundur og sviðslistamaður. Við veltum því fyrir okkur hvers vegna mannfólk býr til, hlustar á og segir sögur. Af hverju búum við til ímyndaðan veruleika til þess að tala um raunveruleikann? Getur skáldskapurinn breytt raunveruleikanum? Hvenær byrjaði fólk að segja sögur? Lifum við einhvern tímann meira í skáldskapnum heldur en raunveruleikanum? Er ekki steikt að vilja vinna inní ímynduðum heimi eins og rithöfundar og margt annað listafólk gera?
    Hversdagsleikinn, sviðsetning sjálfsins, biblíugrautur og bókaþjófar.
    1 hr 8 min
  • #5 - Þetta fullorðna fólk hagar sér eins og kindur
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur HJARÐHEGÐUN og ÁHORFENDAÁHRIFUM (e. bystander effect). Gestur þáttarins er Birna Rún Eiríksdóttir leikkona, leikstjóri og skemmtikraftur. Við skoðum með henni ýmsar tilraunir og rannsóknir sem hafa verið gerðar á fyrrnefndum fyrirbærum.
    Af hverju finnum við ekki fyrir ábyrgðartilfinningu þegar við erum hluti af hóp? Af hverju eru meiri líkur á að fá hjálp fái maður hjartaáfall einn á gangi um kvöld í Grafarholtinu heldur en í miðri Smáralind á háannatíma? Erum við öll bara kindur? Eru Íslendingar líka bara kindur?
    Kitty Genovese, kindur og kettir, týnda púslið og tískubylgjur.
    49 min
  • #4 - Þetta fullorðna fólk leikur annað fullorðið fólk
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur LEIKLIST og leikurum, flutningi erindis í gegnum sögur og sviðslistir. Gestur þáttarins er Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og prófessor hjá Listaháskóla Íslands. Við ræðum við hana um starf leikarans, hvernig það er að vera leikkona og af hverju hún vill vera það? Af hverju myndi einhver vilja helga líf sitt því að leika annað fólk? Hvernig og af hverju byrjaði fólk að leika fyrir hvert annað? Hvernig geta leikarar haft svona mikil áhrif á fólk? Af hverju dýrkar fólk leikara?
    Spegilfrumur, tár á hvarmi, performanskvíði og prósaljóð.
    58 min
  • #3 - Þetta fullorðna fólk spáir í stjörnurnar
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur áhuga mannfólks á STJÖRNUSPEKI. Gestur þáttarins er engin önnur en Helga Braga, Queen B baby lotion! Af hverju hefur mannfólk svona sterka tilhneigingu til þess að trúa á eitthvað æðra? Af hverju trúum við ennþá á stjörnuspeki þó að vísindin segi okkur annað? Kosmísk samsvörun, veðurstjörnuspeki, tunglið og tilfinningar, litla japanska punktakonan Yayoi Kusama og nýtt ljóð.
    ,,Við erum bara ein alda, ein bára í hafinu.”
    52 min
  • #2 - Þetta fullorðna fólk elskar morð
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur af hverju fullorðið fólk elskar MORÐ og samsæriskenningar. Gestur þáttarins er Almar Blær Sigurjónsson leikari. Eðlufólkið, O. J. Simpson, ólíklegir morðingjar og geislavirk ungmenni í Úralfjöllum.
    Heitar umræður, stórar spurningar og frumsamið ljóð.
    57 min

About Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið

From the publisher's feed

Fyrir um 25 árum fæddust tvær litlar stelpur á Landspítalanum í Reykjavík sem eru nú sestar hér fyrir framan tvo litla míkrafóna sem senda raddir þeirra rakleiðis í sætu litlu eyrun þín kæri Homo sapiens. Velkomin í hlaðvarpið ÞETTA FULLORÐNA FÓLK ER SVO SKRÝTIÐ þar sem Björk Guðmundsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir kryfja breyskleika manneskjunnar í gegnum ýmsar kenningar og rannsóknir sem tengjast mannlegu eðli, menningu og gríni.