Þetta helst

Þetta helst

By RÚV
Download on the App Store
  • Ranking

    50th

    on News & Politics

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    17 min

    per episode

  • If it hooks

    73%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

All Þetta helst episodes

  • Gervigreindin margfaldar getu hakkara
    Fjöldi alvarlegra netöryggisatvika hefur margfaldast á nokkrum vikum vegna tilkomu gervigreindar sem beitt er í flestum árásum. Árásir sem áður voru einungis á færi þjóðríkja eru nú daglegt brauð þótt á bak við þær séu einungis nokkrir hakkarar.
    18 min
  • Drög að gjaldþroti: Starfsmaður Hamborgarafabrikkunnar segir frá
    Nítján ára gamall fyrrverandi starfsmaður Hamborgarafabrikkunnar ræðir um reynslu sína af því að vinna á staðnum áður en embætti Skattsins og lögreglan innsigluðu hann nú í nóvember.
    Maðurinn lýsir meðal annars samskiptum sínum við Helga Magnús Hermannsson forsvarsmann staðarins.
    Helgi Magnús Hermannsson skilur eftir sig sex gjaldþrota félög á veitingamarkaði. Heildarupphæð krafna í bú þessara félaga gæti numið allt að milljarði króna eða meira.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    18 min
  • Innkalla matvæli sem aldrei fyrr
    Innkallanir á matvælum verða til umfjöllunar í þætti dagsins. Það vakti mikla athygli í lok síðustu viku þegar ákveðið var að innkalla danskt hveiti vegna gruns um að myglueitur gæti reynst yfir mörkum. Þá er ljóst að óvenju mikið hefur verið um innkallanir á mat á árinu.
    Rætt er við Katrínu Guðjónsdóttur, deildarstjóra matvæladeildar Matvælastofnunar, Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, og Guðrúnu Svönu Hilmarsdóttur, lektor við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
    Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
    15 min
  • Tjaldsvæði sem opinber gæði sem mala gull
    Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og greiddi út 98 milljóna króna arð. Tekjurnar á þessu tímabili námu 264 milljónum króna. Hagnaðarhlutfallið er því meira en 40 prósent sem telst afar gott og hátt í rekstri fyrirtækja almennt séð.
    Fyrirtækið rekur þetta þekkta og vinsæla tjaldsvæði á grundvelli samnings við sveitarfélagið Múlaþing.
    Rætt er við sveitarstjórann í Múlaþingi, Dagmar Ýr Stefánsdóttur, um tjaldsvæðið um samninginn um það sem hefur verið umtalaður á Egilsstöðum um hríð. Einnig er rætt við eiganda tjaldsvæðisins, Heiði Vigfúsdóttur.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    18 min
  • Vistkerfi íslenskra bókmennta
    Opinber stuðningur við bókmenntir er verðmætaskapandi fyrir íslenskt hagkerfi. Það sem stjórnvöld hafa gert til að styðja við sköpun íslenskra bókmennta hefur á síðustu árum skipt sköpum fyrir bókaútgáfu en opinbert fjármagn sem rennur til bókmennta hefur engu að síður dregist saman síðustu ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Hákon Gunnarsson, rekstrarhagfræðingur, fékk það verkefni að gera fjárhagsgreiningu á virðiskeðju íslenskra bókmennta.
    20 min
  • Deilur um umdeildan dansara
    Deilur hafa staðið yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík sem hverfast um mann á miðjum aldri sem hefur verið vændur um meinta ósæmilega og meinta ólöglega hegðun gegn unglingsstúlkum. Hann hefur verið dansari í áratugi og tekið þátt í keppnum og orðið Íslandsmeistari auk þess sem hann hefur þjálfað börn og unglinga.
    Umræddur maður hefur verið kærður til lögreglu vegna hegðunar sinnar, síðast árið 2021, en kærunum hefur verið vísað frá. Deilan snýst um það hvort hægt sé að banna manninum að vera félagsmaður og iðkandi í skráðu íþróttafélagi, Dansfélagi Reykjavíkur. Félagið er aðili að Íþróttasambandi Íslands og er því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
    Dómstóll ÍSÍ hefur ítrekað dæmt manninum í hag og sagt að ekki sé hægt að banna honum að vera félagi í Dansfélagi Reykjavíkur. Forsvarsmaður dansfélagsins, Kara Arngrímsdóttir, er ekki sátt við stöðu málsins og telur ekki hægt að maðurinn fái að iðka dans innan félagsins. Rætt er við Köru og Örnu Sif Haukstein Knútsdóttur sem kærði manninn til lögreglu árið 2021.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsosn
    24 min
  • Hlutfall erlendrar neyslu aldrei hærra
    Í þætti dagsins beinum við sjónum að þeirri staðreynd að hlutfall kortaveltu Íslendinga sem fer fram erlendis hefur aldrei mælst hærra - og áhrifum þess á innlenda verslun. Árið 2022 var erlend netverslun Íslendinga um 23 milljarðar króna. Á síðasta ári var hún  komin í 34,5 milljarða og samkvæmt mati Rannsóknarseturs verslunarinnar er búist við að hún fari í allt að 40 milljarða á þessu ári.
    Rætt er við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum.
    Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
    15 min
  • Á slóð gjaldþrota á veitingamarkaði
    Elís Árnason veitingamaður segist hafa orðið fyrir altjóni þegar hann seldi kaffihúsið Adesso og veitingastaðinn Sport og Grill í Smáralind árið 2024.
    Hann seldi þessa staði til fjárfestanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar og að hann hafi bara fengið lítinn hluta kaupverðsins greiddan. Elís segist á endanum hafa þurft að taka tugmilljón króna bankalán til að borga til baka lán sem hvíldu á fyrirtækjunum og hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir. Hann segir tjón sitt í viðskiptunum nema um 100 milljónum.
    Helgi Magnús hefur ítrekað verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu mánuðina vegna fyrirtækja sem hann hefur átt sem farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum. Í síðustu viku var sagt frá því að Skatturinn og lögreglan hefðu innsiglað Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi.
    Fjallað er um þessa sögu í þætti dagsins og rætt við Elís, Helga Magnús og fleiri viðmælendur.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    15 min
  • Stafrænt fullveldi á tímum tæknirisa
    Í dag beinum við sjónum okkar að stafrænu fullveldi þjóðar á tímum þar sem landsmenn, stofnanir, fyrirtæki og stjórnvöld reiða sig mjög á erlenda tæknirisa í leik og starfi. Víðtækar truflanir urðu í forritum Microsoft um heim allan fyrir helgi. Rætt er við Dagbjörtu Hákonardóttur, þingmann, Hafstein Einarsson, dósent í tölvunarfræði, og Guðmund Hálfdánarson, prófessor emeritus í sagnfræði.
    Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
    17 min
  • Sérstök endalok Hamborgarafabrikkunnar
    Lokun Hamborgafabrikkunnar í Katrínartúni vakti talsverða athygli á miðvikudaginn. Skatturinn og lögreglan mættu á veitingastaðinn og innsigluðu hann. Almennt séð fara skatturinn og lögreglan ekki í slíkar aðgerðir gegn veitingahúsum og öðrum fyrirtækjum nema að þau skuldi skatta eða opinber gjöld,
    Hvað gerðist eiginlega hjá Hamborgarafabrikkunni og af hverju lokaði staðurinn?
    Athygli vekur að fyrri eigendur veitingastaðarins seldu hann til nýrra eigenda í mars eftir að hafa skilað tapi árið á undan og eftir að hafa reynt að selja staðinn um hríð. Nýi eigandi staðarins var sjávarútvegsfyrirtæki með enga reynslu á veitingamarkaði og hætti framkvæmdastjóri nýju eigenda Hamborgarafabrikkunnar hjá staðnum í byrjun júní.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    16 min