Þetta helst

Þetta helst

By RÚV
Download on the App Store
  • Ranking

    50th

    on News & Politics

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    17 min

    per episode

  • If it hooks

    73%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

All Þetta helst episodes

  • Farsímasamband ekki öryggiskerfi almennings
    Íbúar í dreifbýli segja farsímasamband hafa versnað verulega eftir að slökkt var á 2G og 3G kerfunum í júní. Sambandsleysið hefur áhrif á öryggi fólks, atvinnurekstur og daglegt líf. Fjarskiptastofa viðurkennir að samband gæti hafa versnað sumstaðar en batnað annarstaðar. Stofnunin hefur takmarkaðar heimildir til inngripa. Niðurstöður umfangsmikilla mælinga á útbreiðslu farsímasambands liggja fyrir í byrjun desember.
    19 min
  • Samherjagátan 2019-2025
    Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta Baldvins Þorsteinssonar og systur hans Kötlu Þorsteinsdóttur með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019 til 2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna.
    Baldvin Þorsteinsson, forstjóri og annar stærsti hluthafa Samherja, svarar spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra.
    Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin væru orðin stærstu hluthafar Samherja. Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum á þeim tíma og hafa verið sagðar margar framhaldsfréttir um þau síðastliðin ár. Helsti kjarninn í umræðunni um viðskiptin árið 2020 var að þau snérust um kvóta og kvótakerfið og hvernig fyrirtæki sem ráða yfir þessari sameign þjóðarinnar fara á milli kynslóða.
    Viðskiptin hafa farið fram í nokkrum liðum í gegnum árin og er hér reynt að kortleggja heildarumfang þeirra.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    19 min
  • Bankarnir hagnast vel á meðan deilt er um bankaskatt
    Stóru viðskiptabankarnir þrír - Íslandsbanki, Arion banki og Landsbankinn - birtu um mánaðarmótin uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Kvika banki fylgdi síðan í síðustu viku. Þegar litið er til stóru bankanna þriggja sést að þeir skiluðu samanlagt um 79 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Í þætti dagsins er sjónum beint að stöðu og hagnaði bankanna - og deilum um bankaskatt.
    Rætt er við Snorra Jakobsson, hagfræðing, og Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
    15 min
  • Umræðan um sölu ríkiseignar í Laugarási
    Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu,
    Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði.
    Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð segir að það sé óvenjulegt fyrirkomulag að til standi að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti og að talsvert hafi verið rætt um málið í sveitarfélaginu.
    Lækninnn og forstjóri Ríkiseigna segja að ekkert verði af sölu hússins með þessum hætti og að á endanum standi til að selja það með opnum hætti á markaði.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    12 min
  • Það sem kom í ljós í viðskiptum Ólafs í Samskipum
    Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli í síðustu viku. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi.
    Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins.
    Fjallað er um sögu eignarhalds Ólafs Ólafssonar í Samskipum á skipafélaginu síðastliðna þrjá áratugi. Upphaflega var Samskip skipadeildin í rekstri Sambands íslenskra samvinnufélaga en fyrirtækið var gert að sérstöku hlutafélagi árið 1991.
    Eitt af því sem hefur ítrekað komið upp á viðskiptaferli Ólafs Ólafssonar, eftir að hann eignaðist Samskip til að byrja með í gegnum þetta þýska fyrirtæki, eru ítrekuð dæmi um leynd yfir viðskiptum sem hann tengist með eða í gegnum erlenda aðila. Þetta kom meðal upp í viðskiptum hans með Samskip, Búnaðarbankann og í Al Thani-viðskiptunum svokölluðu árið 2008.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    19 min
  • Aflandsreikningar forsætisráðherrans
    Þó mest athygli hafi farið í bókaförgun og ritskoðun í tengslum við útgáfu Thorsarabókarinnar fyrir tuttugu árum, var sjálft efni bókarinnar mun eldfimara.
    Upplýsingar um falið fé og eignir Kveldúlfsbræðra. Það átti ekki síst við um þann þeirra sem var forsætisráðherra og hafði þvertekið fyrir að hann eða fjölskyldan ættu ólöglegar peningaeignir erlendis. 150 árum eftir að ungur danskur innanbúðardrengur steig á land á Borðeyri við Hrútafjörð og sá þar tækifæri sem fáir aðrir sáu, gætir enn áhrifa Thors og veldis hans á Íslandi.
    Umsjón: Helgi Seljan
    19 min
  • Týndi kafli Thorsaranna
    Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði um fyrrverandi eiginmanni konu sinnar en óskaði í staðinn eftir umfjöllun um sig og son sinn. Þannig breytt kom bókin út. Guðmundur Magnússon hefur nú gefið bókina út í sínu upprunalegi handriti. En hvað var svona viðkvæmt; hver var þessi fyrrverandi eiginmaður, og af hverju var hann myrtur á leið heim til sín eftir klór?
    17 min
  • Ríkið leigir hjúkrunarrými fyrir níu milljarða í Urriðahvarfi
    Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024.
    Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og þeir sem eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem svo gerði annan samning við ríkið um rekstur á hjúkrunarrýmunum.
    Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljóna króna á mánuði fyrir rúmlega 10 þúsund fermetra eða samtals rúmlega 9 milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag
    Hvernig kom það til að þessi leigusamningur var gerður á þessum tíma?
    Rætt er Teit Guðmundsson, framkvæmdastjóra Heilsuverndar og eiginmann eins eiganda hússins í Urðarhvarfi, um þennan leigusamning og rekstur hjúkrunarrýmanna.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    16 min
  • Heimsókn utanríkisráðherra til Kína
    Í þætti dagsins ræðum við aukin samskipti og viðskipti Kína og Íslands, og afstöðu íslenskra stjórnvalda til Taívan. Utanríkisráðherra fundaði í lok síðustu viku með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing, þar sem hún var í opinberum erindagjörðum í vikunni. Rætt er við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.
    16 min
  • Menn með dóma fyrir glæpi sem starfa við barnavernd
    Í Noregi og Svíþjóð hafa komið upp mál þar sem einstaklingar með tengsl við undiheimana og glæpasamtök hafa unnið hjá og jafnvel stýrt einkareknum fyrirtækjum sem sinna barnavernd og börnum með fjölþættan vanda.
    Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Norska efnahagsbrotalögreglan Ökokrim er nú að gera rannsókn á þessu í öllu landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst.
    Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað í íslensku samfélagi eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur birti fréttaskýringu um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudaginn.
    Er algengt að menn með fortíð úr undirheimunum starfi við barnavernd á Íslandi? Rætt er um þetta við framkvæmdastjóra barnaverndar Reykjavíkur, Þyrí Höllu Steingrímsdóttur.
    Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
    18 min