Loksins annar gestur! Unnur Birna Bassadóttir er haldin tókófóbíu og ætlaði sér aldrei að eignast börn. Nú á hún 10 mánaða dóttur og segir sína sögu sem er mjög áhugaverð og skemmtileg.
Mættar aftur! Við erum loksins komnar með nýtt forrit og munum byrja að taka á móti gestum í næstu viku og mánaðarlega framvegis. Létt spjall í þessum þætti um sálfræðiaðstoð, pararáðgjöf og hreyfingu. Njótið.
Lára var gæsuð fyrir helgi og er himinlifandi með daginn, þrátt fyrir ömurlegt veður sem setti strik í reikninginn. Skemmtilegt gæsunarspjall, en svo fórum við langt út fyrir efnið, eins og vanalega.
Við sögðum frá okkar uppáhalds kvikmyndum, mat, ferðalögum og fleira. P.s. Pink, er hún málið eða er Tinna úti að skíta?
52 min
About Þreyttar mömmur
From the publisher's feed
Við erum Tinna og Lára og við elskum að tala. Við eigum samtals sjö börn og komum til með að tala um allt sem okkur dettur í hug, allt frá barnatengdum hlutum, sambandserfiðleikar, kynlíf o.s.frv.…
Erum ekki feimnar að ræða hluti sem eru tabú. Styrktaraðili þáttarins er Subway á Íslandi.