Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungu... more
FAQs about Þú veist betur:How many episodes does Þú veist betur have?The podcast currently has 157 episodes available.
September 30, 2020Krabbamein 1.hlutiOrðið krabbamein er líklegast og því miður orð sem við öll höfum heyrt eða átt við, hvort sem það erum við sjálf eða einhver í kringum okkur. En hvað er krabbamein? Fyrir mörgum er það bara orð sem þýðir eitthvað slæmt, án þess þó að við vitum endilega hvað það er nákvæmlega. Ég fékk til mín krabbameinslækninn Örvar Gunnarsson til að útskýra málið betur fyrir mér og þá með það að markmiði að tala fræðilega um málefni sem er viðkvæmt fyrir mörgum. Það var mjög margt sem kom upp úr krafsinu og því verða þættirnir í þetta skiptið tveir, við byrjum á sögunni og almennum útskýringum um fyrirbærið og svo í næsta þætti tölum við meira um framtíðina og hvað við getum sjálf gert, sem dæmi....more50minPlay
September 30, 2020Þú veist betur - Krabbamein 1.hlutiOrðið krabbamein er líklegast og því miður orð sem við öll höfum heyrt eða átt við, hvort sem það erum við sjálf eða einhver í kringum okkur. En hvað er krabbamein? Fyrir mörgum er það bara orð sem þýðir eitthvað slæmt, án þess þó að við vitum endilega hvað það er nákvæmlega. Ég fékk til mín krabbameinslækninn Örvar Gunnarsson til að útskýra málið betur fyrir mér og þá með það að markmiði að tala fræðilega um málefni sem er viðkvæmt fyrir mörgum. Það var mjög margt sem kom upp úr krafsinu og því verða þættirnir í þetta skiptið tveir, við byrjum á sögunni og almennum útskýringum um fyrirbærið og svo í næsta þætti tölum við meira um framtíðina og hvað við getum sjálf gert, sem dæmi....more29minPlay
September 23, 2020SorpNafnið á þætti dagsins er hugsanlega ekki fallegasta umfjöllunarefni sem við höfum átt við, það er kannski ekki í daglegum hugsunarhring okkar allra að hugsa mikið um sorp, fyrirbæri sem er allt í kringum okkur og við eigum við dag hvern. Við hendum því í ruslið heima hjá okkur, svo út í tunnu og pælum ekki meira í því. En hvað svo? Hvert fer þetta allt, hvað er gert við þetta og getum við bara gert það sem við viljum við allan úrgang sem kemur út frá heimilunum sem við rekum. Ég fékk til mín Gyðu Björnsdóttur frá Sorpu til að ræða þetta allt saman við mig....more30minPlay
September 23, 2020Þú veist betur - SorpNafnið á þætti dagsins er hugsanlega ekki fallegasta umfjöllunarefni sem við höfum átt við, það er kannski ekki í daglegum hugsunarhring okkar allra að hugsa mikið um sorp, fyrirbæri sem er allt í kringum okkur og við eigum við dag hvern. Við hendum því í ruslið heima hjá okkur, svo út í tunnu og pælum ekki meira í því. En hvað svo? Hvert fer þetta allt, hvað er gert við þetta og getum við bara gert það sem við viljum við allan úrgang sem kemur út frá heimilunum sem við rekum. Ég fékk til mín Gyðu Björnsdóttur frá Sorpu til að ræða þetta allt saman við mig....more30minPlay
September 16, 2020Fjármál fótboltansÞað eru margir sem fylgjast með fótbolta nú til dags enda ein stærsta íþrótt í heimi ef ekki bara sú allra stærsta. Enska knattspyrnan og Ísland virðast vera nátengd fyrirbæri og liðin þar með fjölmarga fylgjendur hér á landi. En hvernig þróaðist fótboltinn á þann stað sem hann er í dag og hvaðan koma allir peningarnir manni finnst oft verða bara meiri og meiri, launamál leikmanna komin út fyrir þann ramma sem maður skilur og liðin sjálf nánast orðin stórfyrirtæki. Ég fékk til mín Björn Berg frá Íslandsbanka, sem býr yfir gríðarlega yfirgripsmikilli þekkingu um þessi mál til að útskýra þau fyrir okkur....more50minPlay
June 24, 2020RafmagnRafmagn er allt í kringum okkur, við komum heim, kveikjum ljósin og byrjum að elda án þess að pæla mikið í því hvað sé að gerast. Við bara gerum einfaldlega ráð fyrir því að hlutirnir virki, að þegar við stingum einhverju samband þá sé málið bara dautt. En hvaðan kemur rafmagnið okkar, hvernig er það sett upp og hvað gerir það að verkum að við erum ekki sífellt að fá straum hér og þar?Ég fékk til mín Kára Hreinsson, rafmagnsverkfræðing hjá Veitum til að útskýra þetta alltsaman fyrir okkur....more27minPlay
June 17, 2020Samantekt í tilefni 17.júníÍ sérstökum 17.júní þætti Þú veist betur lítum við aðeins yfir farinn veg og heyrum klippur úr liðnum þáttum, hugsanlega eitthvað sem fólk missti af eða gæti verið góð áminning um að hlusta aftur. Það er aldrei of oft hlustað eins og einhver sagði. Skammtafræði, fornleifafræði, erfðir, umferðaljós, bensín og flugvélar koma meðal annars við sögu....more50minPlay
June 10, 2020Skammtafræði 2.hlutiÍ síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um hugtak sem er mörgum hugsanlega framandi, skammtafræði. Ég fékk Sigurð Inga prófessor í HR til að tala við mig og fórum við yfir söguna, um hvað málið kannski snýst að einhverju leyti, eins mikið og hægt er að gera það á 25 mín en það voru frekar áhugaverðar hliðar sem voru eftir. Ef við vitum, svona nokkurnveginn, um hvað skammtafræðin snýst, hvert er hún þá að leiða okkur? Hver er framtíðin? Svo í þetta skiptið ætlum við að fara aðeins yfir hana og reyna að skyggnast með sjónauka í næstu tugi ára. Og hér er hugsanlega ástæða til að vara fólk örlítið við, því það virðist vera einhverskonar kapphlaup að myndast, án okkar vitneskju, og úrslitin geta haft þýðingamiklar afleiðingar....more27minPlay
June 03, 2020Skammtafræði 1.hlutiÍ undanförnum þáttum hef ég oft byrjað á því að nefna umræðuefni þáttarins og talað um að þetta sé allt í kringum okkur án þess þó að við tökum mikið eftir því. Sjaldan hefur það átt jafn vel við og í þetta skiptið þegar umræðuefnið er skammtafræði. Persónulega hafði ég heyrt um fyrirbærið en gat ekki útskýrt það á neinn hátt, því fannst mér tilvalið að kafa aðeins dýpra í efnið og fá sérfræðing til mín að útskýra fyrir okkur um hvað málið snýst. Ég tek fram að efnið var það flókið að þættirnir eru tveir, og er þetta sá fyrri. Einnig skal taka fram að eftir viðtalið þurfti ég að leggja mig í smá tíma til að gefa heilanum á mér frí. Sérfræðingurinn í þetta skiptið er Sigurður Ingi Erlingsson....more28minPlay
May 27, 2020Fornleifafræði 2.hlutiÍ síðasta þætti kom Lísabet Guðmundsdóttir til mín og við ræddum um fornleifafræði, fórum þá yfir helst hvaða staðir verða fyrir valinu, hvernig þetta byrjaði hér heima, þá mest í kringum íslendingasögurnar. Við snertum aðeins á hversu mikið af sögulegum verðmætum eru að tapast í veðri og vindum, áður en við náum að skoða og uppgötva hvað átti sér stað þar. Í þættinum í dag höldum við áfram, en förum aðeins út í hvernig fornleifauppgröftur fer fram, hvernig framtíðin verður og hvort það sé einhver ein pæling eða staður sem margir eru að eltast við. Við byrjum þó aftur á örsnöggri endurkynningu á Lísabetu sjálfri áður en við förum í hvernig þú byrjar að grafa upp minjar....more27minPlay
FAQs about Þú veist betur:How many episodes does Þú veist betur have?The podcast currently has 157 episodes available.