Þungarokk og þungar lyftur

Þungarokk og þungar lyftur

By RÚVArts
Download on the App Store

Þungarokk og þungar lyftur episodes

  • 7.þáttur - Ásgeir Börkur Ásgeirsson
    Ásgeir Börkur Ásgeirsson er þekktur fyrir ýmsa hluti, meðal annars fyrir að vera einn af harðari fótboltamönnum landsins. Ásgeir spilar sem miðjumaður HK í Pepsi max deildinni en það sem kannski ekki allir vita er að Ásgeir var líka söngvari í hinni goðsoknakenndu hljómsveit Shogun sem vann Músiktilraunir árið 2007 og vakti mikla athygli á sínum tíma. Ásgeir ræddi byrjun Shogun, tæknina við að öskra rétt, lykilinn að góðu skeggi og mikilvægi þess að vita hvað maður er góður í og rækta það.
    44 min
  • 6. þáttur - Veiga Dís Hansdóttir
    Veiga Dís Hansdóttir er kraftlyftingakona, húsasmiður og syngur eins og engill. Veiga á nokkur íslandsmet í kraftlyftingum og vann nýlega titilinn Stálkona Íslands. Veiga ræddi Stálkonuna 2020, húsasmíði, hvernig á að beyta röddinni rétt í söng, stálbrækur og mikilvægi þess að teygja.
    38 min
  • 5. þáttur - Jón Már Ásbjörnsson
    Jón Már Ásbjörnsson er 29 ára Akureyringur sem flutti til Reykjavíkur með stóra drauma. Í dag starfar hann sem útvarpsmaður á X-inu og er söngvari í hljómsveitinni Une Misere. Jón ræddi hvernig maður á að halda sér í formi þegar maður er að túra, vegan mataræði, stöðuna á þungarokki á Íslandi og andlegt jafnvægi.
    42 min
  • 4. þáttur - Sonja Ólafsdóttir
    Sonja Ólafsdóttir er stofnandi Crossfit Austur á Egilsstöðum en starfar í dag sem þjálfari hjá Granda 101. Í fyrra upplifði Sonja kulnun í starfi en einkenni þess var meðal annars að hún missti sjónina við akstur. Sonja ræddi funcional fitness, kulnun í starfi, erfiðleikana við að hægja á sér og Gregg Glassman fyrrum eiganda Crossfit.
    43 min
  • 3. þáttur - Böðvar Tandri Reynisson
    Böðvar Tandri Reynisson er yfirþjálfari víkingaþreks í Mjölni, hann er ekki bara algjört nörd þegar kemur að heilsu og hreyfingu heldur er hann einnig lúmskasti þungarokkshaus á landinu. Böddi fór yfir það hvernig á að líða vel í ræktinni, hvernig hann byrjaði að lyfta og þegar hann fékk óvænt æxli.
    42 min
  • 2. Þáttur - Sunna Ben
    Í þessum þætti kynnumst við Sunnu Ben. Sunna er ljósmyndari, heilsugúrú, norn, myndalistarkona, plötusnúður og margt fleira. Sunna ræðir um að byrja aftur í ræktinni eftir meðgöngu, veganisma, Marilyn Manson og plötunsúðaferilinn.
    46 min
  • 1. Þáttur - Rúnar Geirmundsson
    Í þessum þætti ræðir Gunnar Ingi við Rúnar Geirmundsson, aka Hrodinn. Rúnar sem er þrefaldur evrópur meistari í kraftlyftingum, með óteljandi íslandsmet á bakinu, ljósmyndari, kvikmyndagerðamaður, Söngvari, útúr flúraður og áfengislaus.
    Það er óhætt að segja að Rúnar er braskari af bestu gerð, við ætlum að kynnast kauða betur og heyrum meðal annars hvernig undirbúningur hans fyrir sterkasti maður íslands gekk og hvernig Hafthor Júlíus lyfti 501 kg í réttstöðulyftu.
    Í þungarokki og þungum lyftum fræðumst við betur um samspil heilsu og tónlistar, er einhver tenging þar á milli? Ég veit það ekki, en eg ætla svo sannarlega að tala um það.
    43 min

About Þungarokk og þungar lyftur

From the publisher's feed

Þungarokk og þungar lyftur með Gunnari Inga Jones fjallar um mörkin á milli rokktónlistar og kraftlyftinga. Rokkarar sem lyfta þungu koma til Gunnars með þríhöfðana og eyrun sperrt og tala um allt á…