Í þessum fyrsta þætti í fyrstu seríu True Crime Ísland fjöllum við um morðið sem átti sér stað á bílaplani fyrir framan Fjarðarkaup í Hafnarfirði árið 2023. Fjögur ungmenni voru handtekin og einn ungur maður lét lífið. Við lesum dóminn, rýnum í málsatvik og útskýrum hvernig réttarkerfið tók á þessu sakamáli.
Kostendur þáttarins frá byrjun eru Fons Juris, Kjörís, TM, JYSK og Kratos Lögfræðistofa.
Þetta sakamál er fyrsta málið í seríunni okkar Karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við rýnum í dóma sem varpa ljósi á alvarlegustu ofbeldisbrotin á Íslandi. Í hverjum þætti fá hlustendur ekki bara frásögn heldur einnig fræðilega skýringu á því hvernig réttarkerfið virkað út frá þessum málum.
True Crime Ísland er íslenskt true crime podcast sem leggur áherslu á sakamál og dóma á Íslandi. Markmiðið er að gera dóma og málsatvik aðgengilegri almenningi og sýna hvernig íslenskt réttarkerfi bregst við ofbeldisbrotum.
Fylgdu True Crime Ísland á Spotify til að heyra fleiri íslensk sakamál og fá fræðilega innsýn í hvernig dómar og réttarkerfið á Íslandi virka í reynd.
Linkur á Landsréttardóminn og héraðsdóminn í gegnum Fons Juris https://fj.is/?site=heimild&id=landsrettur.4498&query=856%2F2023
Linkur á dóminn í gegnum heimasíðu Landsréttar
https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=c66ca31e-d880-4ca8-aa96-2e60bb7260f9&verdictid=a671b7d6-cd28-4bc6-9b63-b999bf54b3d2