
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um fjármál og rekstur heimilisins. Þar er farið í almennar pælingar um viðhorf og þekkingu á fjármálum og af hverju það er oft svona mikið feimnismál að ræða svona mikilvægan part af lífinu sem fjármálin eru. Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðing í heimsókn sem kafar enn dýpra í málið.
Þátturinn er í boði:
Nútrí Health Bar
HÚÐIN skin clinic
Eldum Rétt
VILA
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Söru Pálsdóttir, dáleiðara og leiðbeinanda í núvitund sem sérhæfir sig í kvíða og streitu – bæði í eigin lífi og í starfi. Hún heldur námskeiðið „Frelsi frá kvíða“ og deilir með okkur aðferðum sem hún hefur notað til að hjálpa fólki að losna við kvíða.
Í seinasta þætti deildum við okkar persónulegu reynslu af kvíða, en nú förum við dýpra ofan í fræðin: Hvað er kvíði í raun? Hver er munurinn á streitu og kvíða? Og hvenær verður kvíði eitthvað sem við þurfum virkilega að bregðast við?
Við ræðum líkamleg einkenni, áhrif samfélagsmiðla og hvernig við getum byggt upp styrk með núvitund, hreyfingu og tengslum.
Fróðlegt og persónulegt, fyrir alla sem vilja skilja kvíða betur.
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um eigin reynslu af kvíða og hvernig hann birtist í líkama og huga. Þær skoða algengar mýtur um kvíða, furðulegustu ráðleggingarnar sem fólk gefur, og áhrif samfélagsmiðla á andlega heilsu.
Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðing í heimsókn sem kafar enn dýpra í málið.
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Láru og Sigríði Örnu, eigendur og stofnendur HÚÐIN skin clinic - einnar vinsælustu húðmeðferðarstofu landsins. Þær fara með okkur dýpra ofan í heim húðmeðferða, virkra innihaldsefna og hvernig við getum raunverulega bætt húðina okkar. Við kíkjum líka á vinsælustu meðferðirnar og nýjustu tæknina í húðheiminum... t.d. meðferð sem nýtir silunga-svil (eða laxasæði eins og við köllum það!) - virkar hún og sýnir hún raunverulegan árangur? Fróðlegur og skemmtilegur þáttur fyrir þau sem vilja læra meira inn á húðina, með ráðum frá sérfræðingum.
Þátturinn er í boði:
Fylgdu Tvær á floti á samfélagsmiðlum: @tvaerafloti
Í þessum þætti kafa Fanney og Sara ofan í heim húðumhirðu, skoða stærstu mýturnar og furðulegustu fegurðarráðin sem fólk trúir enn á. Frá geislavirkum kremum til tannkrems á bólur - hvað virkar í raun og hvað er algjört bull?
Þær deila eigin húðsögum, velta fyrir sér áhrifum samfélagsmiðla og skoða hvað vísindin segja um vinsælustu húðtrendin. Í næsta þætti fá þær til sín sérfræðinga í heimsókn sem kafa enn dýpra í málið.
Þátturinn er í boði:
Fylgdu tvær á floti á Instagram og TikTok - @tvaerafloti
Eva Matta kemur í heimsókn og kafar dýpra með okkur ofan í lífsgæðakapphlaupið og hvernig við getum tekist á það innra með okkur. Eva Matta er markþjálfi, rithöfundur og hélt úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins um árabil. Hún er með alþjóðleg þjálfararéttindi frá Dale Carnegie og hefur þjálfað fjölda fólks í sjálfstrausti, samskiptum og hugarfari. Stútfullur þáttur af fróðleik og góðum punktum til að taka með út í lífið.
Þátturinn er í boði:
Fylgdu Tvær á floti:
Í þessum þætti fara Fanney og Sara yfir pressuna sem mörg okkar finna fyrir, að hafa allt á hreinu í lífinu og almennt kröfuna um að allt þurfi að vera "fullkomið". Er þetta raunhæft eða bara samfélagsleg hugmynd um það hvernig þú átt að lifa lífinu? Þær deila sinni eigin reynslu og vangaveltum en í næsta þætti verður kafað dýpra ofan í viðfangsefnið með skemmtilegum viðmælanda!
Þátturinn er í boði:
Fylgdu Tvær á floti á samfélagsmiðlum:
Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti
Í þessum fyrsta þætti deila Fanney og Sara markmiðum hlaðvarpsins, segja frá því sem framundan er og gefa hlustendum tækifæri til að kynnast sér aðeins betur.
Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti
From the publisher's feed
Tvær á floti er hlaðvarp fyrir konur yfir þrítugt sem halda mörgum boltum á lofti en vilja gefa sér meira rými og tíma til að rækta sjálfa sig, finna jafnvægi og njóta lífsins.
Í…
Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti